Alls eru 45.752 Íslendingar með skráða búsetu í útlöndum

Þjóðskrá hefur tekið saman upp­lýs­ingar um Íslend­inga í útlöndum.

Alls eru 46.572 íslenskir rík­is­borg­arar með skráða búsetu í útlöndum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Þjóðskrá hefur birt.

Flestir eru búsettir í Danmörku eða alls 10.628 ein­stak­lingar. Næst­flestir eða 9.556 ein­stak­lingar búa í Noregi, og í Svíþjóð rúm­lega 8.500.

Samtals búa því yfir 28 þús­und Íslend­ingar á Norð­ur­lönd­unum.

„Flestir íslenskir rík­is­borg­arar sem búsettir eru í útlöndum búa á Norð­ur­löndum eða 62,8%. Utan Norð­ur­landa búa 37,2%. Þess má geta að í 20 ríkjum er aðeins einn íslenskur rík­is­borg­ari með skráða búsetu sam­kvæmt gögnum Þjóð­skrár Íslands. Þetta eru meðal ann­ars Sambía, Albanía, Gínea, Gana, Belís, Mongólía og Papúa Nýja-Gínea,“ segir í umfjöllun Þjóð­skrár.

Íslenska rík­is­borg­ara er að finna í alls 118 ríkjum af 193 aðild­ar­ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár