Helgi Hrafn: Efist og ekki trúa öllu sem þið lesið

Fals­fréttir og nafn­laus áróður sem dreift er í gegnum sam­fé­lags­miðla eru orðin sífellt stærri hluti af veru­leika okkar. Þessi mál eru til umfjöll­unar í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum í kvöld á Hring­braut klukkan 21.

„Mér finnst vanta nú sem fyrr áherslu á það að trúa ekki öllu sem þú lest. Þótt þér finn­ist það geta verið satt þýðir ekki að það sé satt. Bara að eitt­hvað meiki sens, þýðir ekki að það sé satt. Bara það að þér detti það í hug, þýðir ekki að það sé satt. Maður þarf að efast. Efast um upp­lýs­ingar sem maður fær.“ Þetta segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum í kvöld.

Þar er til umfjöll­unar fals­fréttir og áróður sem miðlað er í gegnum sam­fé­lags­miðla, áhrifa­máttur sam­fé­lags­miðla í nútíma­sam­fé­lagi og hvernig okkur gengur að takast á við þessar breyt­ingar. Í aðdrag­anda nýlið­inna kosn­inga voru áróð­urs­síður á borð við Kosn­ingar 2017, Kosn­inga­vakt­ina, Kjóstu og Aldrei aftur vinstri­st­jórn áber­andi. Um er að ræða nafn­lausa hópa, suma hverja vel fjár­magn­aða, sem dreifðu áróðri sem í besta falli mætti flokk­ast sem upp­lýs­inga­röskum og í versta falli sem rætnar lygar.

Helgi Hrafn skrif­aði grein um málið í aðdrag­anda kosn­inga þar sem hann hvatti fólk til að refsa flokkum fyrir árás­ar­aug­lýs­ingar. Hann segir það í raun og veru alltaf hafa vantað í mann­legt sam­fé­lag að gera grein­ar­mun á því sem er satt og því sem er ósatt. „Mann­fólkið í eðli sínu er frekar lélegt í þessu. Bara almennt og hefur alltaf verið. [...]Þvæla og útúr­snún­ingur hefur alltaf verið svo­lítið sann­fær­andi. Hefur alltaf verið svo­lítið öfl­ugt fyr­ir­bæri.“

Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stýra fjöl­miðla­nefndar, er einnig gestur þátt­ar­ins.

Hún segir þar að það hefði alveg mátt reikna með því að það sama ger­ist á Íslandi sem ger­ist ann­ars staðar. Því hafi áróð­urs- og árás­ar­aug­lýs­ingar í gegnum sam­fé­lags­miðla ekki átt að koma á óvart. „Ég held líka að eitt af því sem er oft sagt í umræð­unni er að áróður hefur alltaf verið til. Við höfum alltaf reynt að hafa áhrif á fólk, skoð­anir fólks og svo fram­vegis. En það sem við verðum að hafa í huga er að við erum búin að gefa alveg gríð­ar­lega mikið af upp­lýs­ingum um okkur. Það þýðir það að það eru stór­fyr­ir­tæki sem hafa mjög miklar upp­lýs­ingar um hvernig við erum, svona prófíla um okkur, sem að gefa ákveðnar vís­bend­ingar um það hvaða skoð­anir við höfum og svo fram­vegis. Það er þarna sem að það sem heitir á ensku „micro tar­get­ing“ kemur inn. Það er að segja mis­mun­andi fram­setn­ing á t.d. gildum eða hvernig maður hefur til­finn­ingar, það er hægt að nota það gagn­vart ólíkum hópum í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár