Sigurður segir brýnt að rannsaka Lindarhvol: „Miklir hagsmunir eru undir“

Sigurður Þórð­ar­son, settur rík­is­end­ur­skoð­andi í mál­efnum Lind­ar­hvols, segir brýnt að rík­is­sak­sókn­ari taki mál­efni Lind­ar­hvols til efn­is­legrar með­ferðar.

Áríðandi
Áríðandi „Tel ég brýnt að emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara taki mál­efni Lind­ar­hvols ehf. til efn­is­legrar með­ferðar og afgreiðslu,“ skrifar Sigurður. Mynd: Skjáskot/Rúv

Veru­legur skortur“ var á því að Lind­ar­hvoll, Seðla­banki Íslands og slitabú bank­anna sem féllu í efna­hags­hrun­inu veittu Sigurði Þórð­ar­syni, fyrr­ver­andi settum rík­is­end­ur­skoð­anda „nauð­syn­legar upp­lýs­ingar“ sem hann þurfti til að sinna skoðun sinni. 

Þetta kemur fram í bréfi sem Sigurður sendi rík­is­sak­sókn­ara í lok júní og Heim­ildin hefur undir höndum. 

Hlutverk Lind­ar­hvols var að halda utan um og koma í verð eignum sem feng­ust frá slita­búum föllnu bank­anna eftir hrun. Sigurður fékk það hlut­verk að end­ur­skoða og hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd samn­ings rík­is­ins við Lind­ar­hvol um það. 

Hann var leystur frá emb­ætti setts rík­is­end­ur­skoð­anda fyrir tæpum fimm árum síðan. 

„Samhliða því að ég lauk störfum tók ég saman grein­ar­gerð um stöðu verks­ins og vakti sér­staka athygli á til­teknum atriðum, sem ég hafði ekki, þrátt fyrir beiðnir þar um, fengið upp­lýs­ingar og svör við,“ skrifar Sigurður. 

„Meðal þess­ara atriða voru upp­lýs­ingar um verð­mat og ráð­stöfun …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Eg renndi yfir plaggið sem birtist á Pírata vefnum. Ég reyndar fór hratt yfir en skildi illa. Það þarf greinilega heilmikla yfirlegu til að átta sig nægilega vel á því því sem þarna var tínt til.

    Greinilegt er að Sigurður hafði hvergi uppi neina dóma sem er auðvitað skiljanlegt. En víða er sagt frá stirðbusahætti þeirra sem áttu að vinna hlutina með algjörlega gegnsæjum hætti.

    Af reynslu þjóðarinnar af þögguðum hundakúnstum ráðandi afla í gegnum tíðina sem urðu svo sannarlega ljós við hrunið hefði maðu haldið að þessir karlar hefðu vandað sig. Það virðist ljóst enn einu sinni hvernig viðskiptahættir og pólitík fara saman.

    Það er auðvitað mikilvægt að t.d. saksóknari rannsaki þessa greinargerð og jafnvel aðrir sem gætu verið óhultir af hagsmunagæslu fjármaálaflana og af gömlu valdaflokkunum.
    1
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Má saksóknari það... getur hann það ... hefur hann þekkinguna og mannskapinn og heilindin ? Ég efa það stórlega.

      Saksóknari tilheyrir kerfinu... svo hann á að rannsaka yfirmenn sína ??? Í alvöru Æi.
      -1
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Umtalsverðum fjármunum stolið
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár