Fyrrverandi þingmenn og ráðherrar fengu hálfan milljarð í eftirlaun 2015

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins greiddi hálfan millj­arð króna í eft­ir­laun til 231 fyrr­ver­andi þing­manna í fyrra. Með­al­eft­ir­laun 48 fyrr­ver­andi ráð­herra voru 330.000. Taki fólk annað starf á vegum rík­is­ins drag­ast eft­ir­launin frá launum.

Ríkisráðsfundur 1988: Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Bjarnason, Steingrímur Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Baldvin Hannibalsson.
Rík­is­ráðs­fundur 1988: Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, Guð­mundur Bjarna­son, Stein­grímur Her­manns­son, Vigdís Finn­boga­dóttir for­seti Íslands, Jón Baldvin Hanni­bals­son, Halldór Ásgríms­son, Jón Baldvin Hanni­bals­son. Mynd: Mynd. Stjórnarráð Íslands

Eft­ir­launa­greiðslur úr Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) til fyrr­ver­andi ráð­herra og alþing­is­manna námu rúmum 510 millj­ónum króna á síð­asta ári. Þar af voru rúmar 400 millj­ónir til fyrr­ver­andi þing­manna og rúmar 100 til fyrr­ver­andi ráð­herra. Ráð­herrar fá þó bæði greidd eft­ir­laun fyrir þing­mennsku og ráð­herra­starf.

231 fyrr­ver­andi alþing­is­maður fékk greitt eft­ir­laun frá LSR árið 2015. Þar af voru 183 þing­menn sem fengu ein­ungis eft­ir­laun fyrir þing­mennsku, en 48 fyrr­ver­andi ráð­herrar sem fengu einnig greidd eft­ir­laun fyrir það starf.

Fyrrverandi ráðherrar fá 330.000 krónur að meðaltali

Eft­ir­launa­greiðslur til fyrr­ver­andi þing­manna námu sam­tals rúmum 406 millj­ónum króna, sem gerir tæpa 1,8 milljón á ári á hvern að með­al­tali, eða um 150.000 krónur á mán­uði.

Eins og áður segir fengu 48 fyrr­ver­andi ráð­herrar eft­ir­launa­greiðslur frá LSR í fyrra, sam­tals um 105 millj­ónir króna. Það gerir að með­al­tali um 2,2 millj­ónir króna á ári á hvern fyrr­ver­andi ráð­herra að með­al­tali, eða rúmar 180 þús­und krónur á mán­uði. Þeir fá einnig greidd eft­ir­laun fyrir þing­mennsku og námu því eft­ir­launa­greiðslur til hvers fyrr­ver­andi ráð­herra í fyrra að með­al­tali um 330.000 krónum á mán­uði, eða tæpum fjórum millj­ónum á ári.

150 þúsund króna meðaleftirlaun hjá öðrum

Samkvæmt nýj­ustu árs­skýrslu LSR fyrir árið 2015 greiddi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn alls 40,5 millj­arð til 22.615 líf­eyr­is­þega. Þetta gerir með­al­tals­greiðslur um tæpar 1,8 milljón á mán­uði eða um 150 þús­und krónur á mán­uði, eins og óbreyttir þing­menn eru að fá að með­al­tali í eft­ir­laun. Þetta kemur fram í svari LSR við fyr­ir­spurn Kjarnans um eft­ir­launa­greiðslur ráð­herra og þing­manna.

Árið 2014 fengu 224 fyrr­ver­andi þing­menn eft­ir­laun, sam­tals 388 millj­ónir króna, eða rúm­lega 1,7 milljón á mann að með­al­tali, sem gerir um það bil 145 þús­und krónur á mán­uði. Þar af eru 50 fyrr­ver­andi ráð­herrar sem fengu sömu­leiðis eft­ir­launa­greiðslur fyrir þau störf, um 110 millj­ónir alls. Það gerir um 2,2 millj­ónir á ári, eða tæpar 185 þús­und krónur á mán­uði. Alls fengu þessir 224 ein­stak­lingar greidd um 500 millj­ónir króna í eft­ir­laun árið 2014, sem eru um 10 millj­ónum minna heldur en í fyrra.

Ekki hægt að fá eftirlaun og vera á launum

Fyrr­ver­andi ráð­herrar og þing­menn fá greitt sam­kvæmt lögum númer 141/2003, um eft­ir­laun for­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­manna og hæsta­rétt­ar­dóm­ara. Fram kemur í svari LSR að rétt sé að minna á að með lögum númer 12/2009 voru fyrr­nefnd lög afnumin, en þegar áunnin rétt­indi skyldu halda sér. Taki menn annað starf á vegum rík­is­ins á meðan eft­ir­launa­greiðslur eru greiddar, koma þau laun til frá­dráttar. Með öðrum orðum þá er ekki hægt að fá greidd laun fyrir starf á vegum rík­is­ins ofan á eft­ir­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár