Stjórnvöld endurskoði tvísköttunarsamninga strax

Íslensk stjórn­völd þurfa strax að end­ur­skoða tví­skött­un­ar­samn­inga við Holland og Lúx­em­borg í ljósi nið­ur­stöðu skýrslu um aflandseignir Íslend­inga. Þetta segir Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis, við RÚV.

Óli Björn segir ljóst að skýrslan varpi aðeins tak­mörk­uðu ljósi á það vanda­mál sem við sé að glíma og heil­steyp­ari myndi þurfi að fást. „Ég held að það sem þessi skýrsla kennir okkur er að gagna­öflun og gagna­söfnun um fjár­magns­flutn­inga er ekki eins og hún ætti að vera hér hjá okkur.“

Óli Björn sagði líka að eft­ir­lits­stofn­anir eins og rík­is­skatt­stjóri þurfi að meta til hvaða aðgerða eigi að grípa. „En það er líka ljóst, finnst mér, að við þurfum að end­ur­skoða nú þegar tví­skött­un­ar­samn­inga sem eru í gildi milli Íslands og Hollands og Lúx­em­borgar. Þeir samn­ingar eru ekki eins og til var stofnað, það er alveg ljóst.“

Þá vill hann einnig að fram­kvæmd fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­bank­ans verði skoðuð. „Þegar veittur var 20% afsláttur af íslensku krón­unni, og meðal ann­ars íslenskir aðilar með fjár­magn erlendis nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina. Það eru margar spurn­ingar sem vakna þar, og ég held að við þurfum að skoða þá fram­kvæmd, hvernig var staðið að verki þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

aflandssvæði

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Ekki ljúga

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var pirr­aður, nán­ast reiður, þegar hann var beð­inn um að útskýra í sjón­varps­við­tali af hverju hann hefði ekki birt skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum þegar henni hafði verið skilað. Hann sagði af og frá að skýrsl­unni hefði verið haldið leyndri. Allt slíkt tal væri „þvætt­ingur, fyr­ir­sláttur og ekk­ert nema póli­tík.“ Bjarni sagði einnig að ekk­ert...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár