„Þetta eru allt íslensk börn“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir það mark­mið sitt að börn af erlendum upp­runa sem búa á Íslandi hafi sömu tæki­færi í íslensku skóla­kerfi og önnur börn.

Íslenskir grunn­skóla­nem­endur koma ár eftir ár lang­verst allra á Norð­ur­lönd­unum úr PISA-könn­un­inni svoköll­uðu. Í öllum fögum sem mæld eru er Ísland undir með­al­tali OECD-ríkja og engin bæt­ing hefur verið í nið­ur­stöð­unum frá árinu 2012.

Brott­fall úr skóla er miklu meira hér en í nágranna­lönd­unum og feiki­legur munur er á getu nem­enda af erlendum upp­runa og þeirra sem fæð­ast hér­lendis þegar kemur að árangri í skóla. Þetta er meðal þess sem kom fram í skýrslu sem Norræna ráð­herra­nefndin gaf út nýverið.

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála, var gestur sjón­varps­þáttar Kjarnans á Hring­braut sem frum­sýndur var á mið­viku­dag og ræddi þessar miklu áskor­anir. Þar fór hún líka yfir þær aðgerðir sem hún hyggst ráð­ast í til að takast á við kenn­ara­skort sem stefnir að óbreyttu í að verða mjög alvar­legur á næstu árum. Hægt er að sjá brot úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Varðandi stöðu nem­enda af erlendum upp­runa, sem eiga mun erf­ið­ara um vik í íslensku mennta­kerfi en þau börn sem fæð­ast hér­lendis, segir Lilja að hún hafi verið að hugsa um þau mál frá því að hún varð vara­for­maður mennta­ráðs Reykja­vík­ur­borgar árið 2006. Þá hafi henni þótt tími til að grípa til aðgerða. Og þess frekar nú, tólf árum síðar. „Við sjáum líka að þessu er mjög skipt eftir borg­ar­hlutum. Í gamla skól­anum mínum, Fella­skóla, þar er mjög hátt hlut­fall barna af erlendum upp­runa. Á gamla leik­skól­anum mínum, Fella­borg, ég heyrði tölur um að það væru komin 90 pró­sent barna af erlendum upp­runa. Mitt mark­mið sem mennta­mála­ráð­herra er að þessi börn hafi sömu tæki­færi í íslensku skóla­kerfi eins og önnur börn. Þetta eru allt börn. Þetta eru allt íslensk börn.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið undanfarið ár