Atvinnuþátttaka innflytjenda mun hærri hér á landi

Ísland er eina ríki Norð­ur­land­anna þar sem atvinnu­þátt­taka erlendra rík­is­borg­ara er hlut­falls­lega meiri en inn­lendra. Aðgengi inn­flytj­enda að íslenskum vinnu­mark­að­i þykir almennt gott en verra gengur að aðlaga inn­flytj­endur að íslensku skóla­kerfi.

Hlutfall innflytjenda hefur aldrei verið hærra hér á landi en á fyrsta ársfjórðungi 2019 voru innflytjendur 12,7 prósent af heildarmannfjölda. Ísland er jafnframt eina land Norðurlandanna þar sem atvinnuþátttaka innflytjenda er hlutfallslega meiri en innfæddra. Tæplega tuttugu prósent af fjölda starfandi hér á landi eru innflytjendur en talið er aðlögun inn­flytj­enda að íslenskum vinnumarkaði gangi almennt nokkuð vel. Aftur á móti gengur verr að aðlaga innflytjendur að íslenska skólakerfi en til að mynda útskrifast mun færri innflytjendur úr framhaldsskóla en innlendir.

Atvinnuþátttaka innflytjenda hærri á Íslandi

Í nýrri nor­rænni skýrslu um atvinnu­þátt­töku og menntun inn­flytj­enda og flótta­manna á Norð­ur­lönd­unum, sem unnin var fyrir Norrænu ráð­herra­nefnd­ina, kemur fram að hröð fjölgun íbúa í Norð­ur­lönd­unum á síð­ustu ára­tugum megi að miklu leyti rekja til inn­flytj­enda. Árið 1990 bjuggu 23 millj­ónir í Danmörku, Finn­landi, Noregi, Svíþjóð og Íslandi en árið 2018 bjuggu alls 27 millj­ónir sam­an­lagt í þessum fimm löndum. Samkvæmt skýrsl­unni má rekja 60 pró­sent af þess­ari fjölgun til inn­flytj­enda.

Hæsta hlutfall innflytjenda er í Svíþjóð en árið 1990 var hlutfall innflytjenda þar í landi 9 prósent en árið 2018 var hlutfallið 19 prósent. Í Noregi er hlutfallið nú um 16 prósent, í Danmörku 12 prósent og Finnlandi 7 prósent. Árið 2008 voru inn­flytj­endur á Íslandi 27.240 tals­ins, eða 8 pró­sent mann­fjöld­ans, en 10 árum seinna voru þeir orðnir 43.736, eða 12,6 pró­sent mann­fjöld­ans í fyrra.

Í skýrsl­unni er fjallað um hversu vel Norð­ur­lönd­unum vegnar í aðlögun inn­flytj­enda að vinnu­mark­aði en há atvinnu­þátt­taka er Norð­ur­lönd­unum gríð­ar­lega mik­il­væg til að standa undir víð­tækum og kostn­að­ar­sömum vel­ferð­ar­kerfum ríkj­anna. Auk þess sem stórt bil í atvinnu­þátt­töku íbúa er talið geta haft slæm áhrif á jöfnuð í sam­fé­lögum.

Ísland tekið við mun færri hælisleitendum

Í Finn­landi er atvinnu­þátt­taka inn­flytj­enda hins vegar aðeins um 54 pró­sent og rétt um 60 pró­sent í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Mestur munur á atvinnu­þátt­töku inn­flytj­enda og inn­fæddra er í Svíþjóð, þar sem 14 pró­sentum munar á atvinnu­þátt­töku erlendra rík­is­borg­ara miðað við inn­lenda. Í Danmörku og Finn­landi er mun­ur­inn um 10 pró­sent, og í Noregi rúm fimm pró­sent.[adspot]

Á Íslandi er atvinnu­þátt­taka inn­flytj­enda hæst af öllum Norð­ur­lönd­unum en sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar eru starf­andi inn­flytj­endur nú orðnir fimmt­ungur af fjölda starf­andi hér á landi. Í skýrsl­unni segir að þennan mun megi rekja til þess að á síð­ustu árum varð mikil eft­ir­spurn eftir vinnu­afli hér á landi í kjöl­far upp­sveifl­unnar í efna­hags­líf­inu hér á landi frá árinu 2013.

Jafn­framt hefur Ísland tekið við mun færri hæl­is­leit­endum en hin Norð­ur­löndin á síð­ustu árum. Sam­an­lagt tóku Norð­ur­löndin á móti nærri 200 þús­und ungum hæl­is­leit­endum á tíma­bil­inu 2011 til 2016. Svíþjóð tók á móti 74 pró­sent þeirra, Noregur tók á móti 11 pró­sent, Danmörk 8,5 pró­sent, Finnland 6 pró­sent og Ísland 0,2 pró­sent.

Lestrargeta innflytjenda lægri

Í skýrslunni er einnig fjallað um menntun og aðlögun innflytjenda í skólakerfi á Norðurlöndunum en samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegu menntakönnunarinnar PISA gengur enn erfiðlega að hjálpa börnum innflytjenda að aðlagast skólakerfinu á Norðurlöndunum. Þann mun má meðal annars sjá í lestrargetu barna en samkvæmt skýrslunni gengur aðlögun barna mun betur því yngri sem börnin eru þegar þau koma til landsins. 

Í skýrslunni er lagt til að meiri stuðningur sé veittur þeim börnum sem koma eldri inn í skólakerfið. Auk þess er lagt til að ef mögulegt er að kenna innflytjendum í auknum mæli á sínu eigin móðurmáli í ákveðnum fögum þá sé það æskilegt. Jafnframt er lagt til að innflytjendum sé veittur meiri tími til lærdóms, hvort sem það sé með sumarskólum eða námskeiðum í fríum.

Mun færri innflytjendur útskrifast úr framhaldsskóla

Skóla­­sókn inn­­flytj­enda í leik­­skóla, fram­halds­­­skóla og háskóla er að jafn­­aði lægri en skóla­­sókn inn­­­lendri hér á landi. Mestur er mun­­ur­inn í fram­halds­­­skóla en hlut­­falls­­lega færri inn­­flytj­endur en inn­­­lendir byrja í fram­halds­­­skóla við 16 ára aldur og skóla­­sókn þeirra lækkar meira fyrir hvert ald­­ursár.

Í tölum Hagstofunnar má sjá að á árinu 2017 sóttu nærri öll 16 ára ungmenni fædd hér á landi framhaldsskóla en aðeins átta af hverjum 10 inn­­flytj­end­­um. Á nítjánda ald­­ursári sóttu um sjö af hverjum 10 inn­­­lendum íbúum fram­halds­­­skóla, en aðeins um tveir af hverjum 10 inn­­flytj­end­­um.

Móta heildarstefnu í málefnum barna með annað móðurmál en íslensku

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fjallaði um stöðu innflytjenda í menntakerfinu í aðsendri grein í Fréttablaðinu fyrr í vikunni. Þar segir hún að áskoranir nemenda með annað móðurmál en íslensku séu margþættar en að hennar mati er tungumálið er óneitanlega sú stærsta. Hún segir að stjórnvöld leggi nú sérstaka áherslu á að efla íslenskuna á sem flestum sviðum.

Fyrir Alþingi liggur þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis og inni­heldur hún heild­stæða aðgerða­á­ætlun í 22 liðum. Í henni er meðal ann­ars lagt til að þeir sem búsettir eru á Íslandi og hafa annað móð­ur­mál en íslensku, börn jafnt sem full­orðnir, fái við­eig­andi og jafn­gild tæki­færi til íslensku­náms og stuðn­ing í sam­ræmi við þarfir sínar. Að auki hefur verið settur á lagg­irnar starfs­hópur sem Jóhanna Ein­ars­dóttir, pró­fessor í mennt­un­ar­fræðum ungra barna, fer fyrir. Sá hópur mun móta heild­ar­stefnu í mál­efnum barna með annað móð­ur­mál en íslensku. Einnig höfum hefur verið gripið til beinna aðgerða til að bæta þjón­ustu með því að þre­falda fram­lög til sér­stakrar íslensku­kennslu.

„Við erum opið og fram­sækið sam­fé­lag sem vill nýta hæfi­leika allra þeirra sem búa hér. Í sam­ein­ingu og sam­vinnu munum við vinna að umbótum á mennta­kerf­inu, til heilla fyrir sam­fé­lagið allt,“ segir Lilja að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár