Öfga-hægriflokkur gæti náð fótfestu í Portúgal

Portú­galir ganga að kjör­köss­unum á sunnu­dag, einu og hálfu ári á undan áætlun. Samkvæmt skoð­ana­könn­unum gæti öfga­flokk­ur­inn Chega bætt þar tölu­vert við sig og orðið þriðji stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins.

Leiðtogi Chega-flokksins, André Ventura, er hér fyrir miðju.
Leiðtogi Chega-flokks­ins, André Ventura, er hér fyrir miðju. Mynd: EPA

Þrátt fyrir sögu­legan póli­tískan stöð­ug­leika, sér­stak­lega ef miðað er við lönd í sunn­an­verðri Evrópu, ganga Portú­galar að kjör­kössum á sunnu­dag, einu og hálfu ári á undan áætlun. Forseti Portú­gals, Marcelo Rebelo de Sousa, leysti upp þingið og boð­aði til kosn­inga seint á síð­asta ári eftir að Sós­í­alista­flokkur Antonio Costa náði ekki að koma fjár­lögum í gegnum þingið.

Ástæðan fyrir því að fjár­laga­frum­varpið var fellt í þing­inu er sú að Komm­ún­ista­flokk­ur­inn og vinstri blokkin, sem stóðu á bak við minni­hluta­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins, studdu það ekki. Þetta var í fyrsta sinn sem fjár­laga­frum­varp er fellt í Portúgal síðan lýð­ræði var tekið upp í land­inu 1974 - þegar landið losn­aði undan hinu fasíska Estado Novo (Nýja Ríkinu), sem stýrt var af ein­ræð­is­herr­anum Antonio Salazar.

Sósíalistar dala í skoðanakönnunum

Fylgi við flokk Antiono Costa hefur dalað í skoð­ana­könn­unum und­an­farnar vikur, úr 39% fylgi niður í 37%, en flokk­ur­inn fékk 36,4% í síð­ustu kosn­ingum. Helsti and­stæð­ingur Sós­í­alista­flokks­ins, Sós­í­alde­mókratar, bæta við sig fylgi og fara úr rúmum 27 í síð­ustu kosn­ingum í 33%. Sós­í­alistar eiga því langt í land með að ná meiri­hluta þing­sæta, en til þess þarf á bil­inu 42-45% atkvæða sam­kvæmt portú­gölskum lögum. Á sama tíma hefur Vinstri blokkin misst eitt pró­sentu­stig af fylgi sínu frá því síð­ustu skoð­ana­könnun og mælist nú með sama fylgi og Komm­ún­ista­flokk­ur­inn, eða 5%. Margir telja að kjós­endur muni refsa þessum tveimur vinstri flokkum fyrir að steypa minni­hluta­stjórn­inni.

Antonio Costa er þó af flestum tal­inn hæf­ari leið­togi en for­maður Sós­í­alde­mókrata, Rui Rio, en sundr­ung hefur ríkt innan flokks­ins und­an­farin ár. Þrisvar sinnum á síð­ustu fjórum árum hafa með­limir Sós­í­alde­mókrata reynt að steypa honum úr for­manns­stóli án árang­urs en margir hafa kallað eftir því að hann verði rót­tæk­ari gagn­vart Antonio Costa og Sós­í­alistum.

„Costa er fæddur leið­togi og í augum kjós­enda er hann betur und­ir­bú­inn en Rui Rio,“ sagði stjórn­mála­fræði pró­fess­or­inn Marina Costa Lobo í sam­tali við France 24.

Chega komið með nóg

Það sem vekur sér­staka athygli er að til­tölu­lega nýr stjórn­mála­flokkur, Chega (sem þýðir „Nóg“) gæti bætt við sig allt að 9 nýjum þing­mönnum en flokk­ur­inn fékk ekki nema eitt af 230 þing­sætum í síð­ustu kosn­ingum og yrði því þriðji stærsti flokk­ur­inn í Portúgal sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum. Chega hall­ast mikið til hægri miðað við aðra portú­galska stjórn­mála­flokka og hafa sumir stjórn­mála­skýrendur gengið svo langt að kalla hann öfga-hægri­flokk. Ólíkt því sem gerst hefur í mörgum öðrum Suður-Evr­ópu­ríkjum hefur öfga-hægri­stefna ekki náð fót­festu í land­inu fyrr en nú.

Erfitt er að útskýra nákvæm­lega af hverju þessi popúl­íski flokkur er að fá slíkan með­byr en stjórn­mála­skýrendur telja að það megi rekja til ýmissa þátta. Lokun veit­inga­staða og sam­dráttur í atvinnu­líf­inu hefur eflaust haft sitt að segja. Á sama tíma hefur borið á nostal­gíu, aðdáun á fyrri tímum þegar að Portúgal átti nýlendur og var talið heims­veldi. „Guð, land, fjöl­skylda og atvinna,“ er slag­orð Chega, en margir hafa illan bifur á slag­orð­inu og minna á að í Nýja Ríki Salazar var það „Guð, land og fjöl­skylda“.

Formaður Chega, André Ventura, er því veru­lega umdeildur. Flokk­ur­inn telur fátæka minni­hluta­hópa vera á spena portú­gölsku milli­stétt­ar­innar og því verði að ljúka, segir André Ventura. Sjálfur var hann nýlega kærður fyrir að kalla portú­galska fjöl­skyldu af afrískum upp­runa „glæpa­gengi“ en fjöl­skyldan var fest á mynd með for­seta Portú­gals. Chega brást við þessum ásök­unum með mót­mælum undir nafn­inu „Portúgal er ekki rasískt land“ þar sem því var haldið fram að vinstri væng­ur­inn í portú­gölskum stjórn­málum not­aði ras­isma sem verk­færi til að grafa undan Chega. Þrátt fyrir þennan aukna með­byr innan Portúgal búast fáir við því að aðrir flokkar vilji mynda stjórn­ar­meiri­hluta með Chega, þrátt fyrir að Sós­í­alde­mókratar hafi þó ekki stað­fest það. .

Nýlega sagði André Ventura í ræðu sem hann flutti að það „yrði ekki mynduð rík­is­stjórn til hægri án Chega.“. André Ventura er fyrr­ver­andi félagi í flokki Sós­í­alde­mókrata en hann sagði sig úr flokknum árið 2018 og stofn­aði Chega. Sjálfur bauð hann sig fram til for­seta í fyrra og hlaut um það bil 12% atkvæða.

Erfitt að mynda ríkisstjórn

Því gæti það reynst flokk­unum á portú­galska þing­inu erfitt að mynda rík­is­stjórn. Antonio Costa sjálfur seg­ist ætla að mynda stjórn með hjálp minni stjórn­mála­flokka en stjórn­mála­skýrendum í Portúgal þykir það fjar­lægur mögu­leiki án hjálpar frá Komm­ún­ista­flokknum og vinstri blokk­inni. Antonio Costa hefur hafnað því að mynda banda­lag með þeim aftur. Þarf hann því að leita til enn minni flokka, eins og græna flokks­ins PAN sem mælist með 2% atkvæða sam­kvæmt skoð­anna­könn­unum. Frjáls­lyndi flokk­ur­inn IL mælist með 5% atkvæða meðan að hægri flokk­ur­inn CDS-PP og Græn­ingja­flokk­ur­inn L mæl­ast báðir með um 2% atkvæða.

Búist er við dræmri kjör­sókn en ein­ungis 48.6% kjós­enda kusu í síð­ustu kosn­ingum, 7,2% færri en kusu árið 2015 og gæti Covid-19 far­ald­ur­inn spilað þar inn í. Rétt eins og ann­ars staðar í heim­inum hefur Portúgal þurft að glíma við Omíkron-afbrigðið sem gæti haft enn frek­ari áhrif á kosn­inga­þátt­töku þrátt fyrir að landið sé með eitt hæsta bólu­setn­ing­ar­hlut­fall í heimi. Þegar þetta er skrifað eru samt sem áður um það bil 600.000 manns í ein­angrun eða sótt­kví en þeim verður þó leyft að mæta á kjör­staði milli klukkan 18:00 og 19:00 á kjör­dag. Meira en 300.000 manns hafa skráð sig til að kjósa í utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu, en þær hófust sunnu­dag­inn 23. jan­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár