Nefndarmenn starfskjaranefndar Orkuveitunnar fá 25 þúsund krónur á tímann

Starfs­kjara­nefnd Orku­veitu Reykja­víkur ákvarð­aði í síð­asta mán­uði að hækka tíma­kaup sitt í 25 þús­und krónur á klukku­tím­ann. Formaður nefnd­ar­innar fær 37.500 krónur fyrir hvern unn­inn klukku­tíma. Starfs­kjara­nefnd ákvarðar meðal ann­ars laun for­stjóra OR.

Orkuveita Reykjavíkur
Orku­veita Reykja­víkur Mynd: Kjarninn.

Stjórn Orku­veitu Reykja­víkur sam­þykkti í des­em­ber á síð­asta ári að laun nefnd­ar­manna starfs­kjara­nefndar fyr­ir­tæk­is­ins verði 25 þús­und krónur fyrir hvern unn­inn klukku­tíma. Formaður nefnd­ar­innar fær sama tíma­kaup auk 50 pró­sent álags eða 37.500 krónur á tím­ann. Starfs­kjara­nefndin leggur til hver laun nefnd­ar­manna skulu vera. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þriggja manna nefnd sem fjallar um kjör forstjóra

Nefndin er þriggja manna nefnd sem hefur það verk­efni að fjalla um kjör for­stjóra og innri end­ur­skoð­anda Orku­veit­unnar. Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir, for­maður starfs­kjara­nefndar OR, lagði fram og kynnti til­lögu nefnd­ar­innar um laun nefnd­ar­manna á stjórn­ar­fundi Orku­veit­unnar í des­em­ber. Geir Guð­jóns­son, vara­maður í stjórn OR, lagði á fund­inum fram breyt­ing­ar­til­lögu um að lækka launin í 10 þús­und krónur fyrir hverja unna klukku­stund. Sú til­laga var felld og til­laga nefnd­ar­innar um eigin laun upp á 25 þús­und krónur á tím­ann var sam­þykkt.

[links]Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins segir að Sjálf­stæð­is­menn í stjórn Orku­veit­unnar hafa löngum deilt á starfs­kjara­nefnd og sagt hana óþarfa pen­inga­sóun. Kjartan Magn­ús­son, sem setið hefur í starfs­kjara­nefnd, hefur ítrekað bent á það að stjórn­ar­for­maður og stjórn Orku­veit­unnar geti vel séð um þetta verk­efni. [adspot]

Orku­veita Reykja­víkur er sam­eign­ar­fyr­ir­tæki í eigu þriggja sveit­ar­fé­laga, Reykja­vík­ur­borg á 94 pró­sent, Akra­nes­kaup­staður 5 pró­sent og Borg­ar­byggð 1 pró­sent. Dótt­ur­fé­lög OR eru Veitur, Orka nátt­úr­unnar og Gagna­veita Reykja­víkur. Orku­veitan starfar á grund­velli laga nr. 139/2001 um stofnun sam­eign­ar­fyr­ir­tækis um Orku­veitu Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár