Rannsóknarsetur verslunarinnar greindi frá því í síðustu viku að erlend greiðslukortavelta hérlendis hefði aldrei verið hærri en í nýliðnum júnímánuði. Þá voru erlend greiðslukort straujuð fyrir 26 milljarða króna. Í frétt setursins var einnig greint frá því að mestum peningum var að jafnaði eytt á greiðslukortum sem útgefin eru í Sviss. Alls var meðaleyðsla á slíkt kort 245 þúsund krónur. Það þýðir að 63 prósent meira var tekið út af hverju svissnesku greiðslukorti hérlendis í júní en t.d. hverju bandarísku korti sem notað var á Íslandi í sama mánuði. Í raun kemst ekkert þjóðerni nálægt Sviss þegar kemur að meðaleyðslu á greiðslukort hérlendis. Landið er það eina sem Rannsóknarsetur verslunarinnar greinir sem er með meðaleyðslu yfir 200 þúsund krónur á hvert greiðslukort í júní.
Nú liggur fyrir að Sviss er ríkt land og að íbúar þess hafi umtalsverðan kaupmátt. Því er í sjálfu sér ekki óeðlilegt að þeir eyði meira en íbúar annarra landa þegar þeir ferðast. En önnur skýring gæti líka verið á þessari miklu eyðslu á svissnesk greiðslukort. Að þau séu í eigu Íslendinga sem starfa, búa og lifa á Íslandi, en kjósa að geyma peninganna sína annarsstaðar. Kastljós og Reykjavík Media greindu til að mynda frá því að nokkrir stjórnmálamenn væru í einkabankaþjónustu hjá svissneska bankanum Julius Baer og fyrir liggur að þar starfaði íslenskur starfsmaður um nokkurt skeið. Þá liggur fyrir að efnaðir Íslendingar, sem stundum þurfa að dvelja á Íslandi, hafa sest að í Sviss. Landið er þekkt fyrir mikla bankaleynd og því verið eftirsóknaverður staður fyrir peninga þeirra sem vilja alls ekki að aðrir viti um þá.
Yfirvöld hérlendis hafa áður ráðist í umfangsmiklar rannsóknar, og í einhverjum tilfellum saksóknir, vegna gruns um skattsvik í tengslum við notkun Íslendinga á erlendum greiðslukortum. Það var gert á árinu 2009 vegna korta sem útgefin voru í Lúxemborg. Hin meintu brot fólust í því að þær tekjur sem notaðar voru til að greiða af kortunum voru ekki taldar fram hérlendis.
Kannski er kominn tími til að ríkisskattstjóri fari að kanna hvort mögulega séu einhverjar eignir íslenskra aðila í Sviss sem ekki sé greint frá á skattframtölum, en notaðar eru til að greiða fyrir vöru og þjónustu sem keypt er á Íslandi, af Íslendingum sem hér búa.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir