Karolina Fund: Á besta veg

Sigurður Sig­urðs­son munn­hörpu­leik­ari og söngv­ari safnar fyrir útgáfu á sinni fjórðu plötu.

Sigurður Sig­urðs­son munn­hörpu­leik­ari og söngv­ari hefur starfað meira eða minna í tón­heimum um ára­tuga­bil. Þar hefur hann m.a. haldið sig í félags­skapi Kentára, sem stofnuð var árið 1982. Sigurður hefur komið víða við, leikið inn á hljóm­plötur og diska hjá fjölda hljóm­sveita og ein­herja.

Sigurður hefur gefið út þrjá hljóm­diska undir sínu nafni, „ALMANAK fyrir Ísland 2008", „At my place" sem kom út árið 2009 og „Kvæði" sem kom út haustið 2011. Nú stefnir Sigurður á útgáfu á sínum fjórða hljóm­disk og mun hann bera nafnið "Á besta veg".

Hvernig vakn­aði hug­myndin að þessu verk­efni?

„Ég var búinn að vera að rýna í ljóð eftir Kristján Hreins­son, bæði á net­inu og í ljóða­bók sem mér áskotn­að­ist hjá honum. Ljóðin hans eru þess eðlis, alla­vega hvað mig varðar, að það er mjög auð­velt að finna riþma og lag­línur við ljóðin og það gerð­ist oftar en ekki þegar ég las þau. Þetta safn­að­ist saman og þegar ég var kom­inn með 16 grunna að lögum var ekk­ert annað að gera en að drífa sig í upp­tökur. Ég var grimmur við sjálfann mig og end­aði með því að velja 11 lög sem ég vann síðan áfram með eðal­tón­list­ar­mönnum.

[adspot]Þetta eru þeir Björgvin Gíslason, nafni hans Björgvin Ploder, Frið­þjófur Ísfeld, Guð­mundur Pét­urs­son, Pálmi J. Sig­ur­hjart­ar­son, Matthías Stef­áns­son, Daníel Sig­urðs­son og Jens Hansson. Auk þeirra naut ég nokk­urra radda úr Karla­kóri Graf­ar­vogs.“

Hvert er þema verks­ins?

„Það er kannski ekk­ert ákveðið þema, og þó, því að það kemur oftar en einu sinni fyrir þau skila­boð að allt muni fara á besta veg eins og Birt­ingur hans Voltaires hélt fram forðum að heim­ur­inn væri ekk­ert annað en dásam­legur og: ".... að allt sé í allra­besta lagi.“ Allavega ríkir ákveðin bjart­sýni í textum Krist­jáns þó hann sé nú aðeins gagn­rýnni en Birt­ingur á til­ver­una. Það átti alla­vega vel við að tit­ill albúms­ins yrði "Á besta veg".

Upptökur fóru fram í stúdíó Sogaveri og voru að nokkru leiti teknar upp "lif­andi" þ.e.a.s. trommur, bassi og gítar voru teknir upp saman í einu rennsli, en síðan var öðrum hljóð­færum bætt við síðar.

Þetta er búið að vera ein­stak­lega gef­andi og skemmti­legt ferli og vil ég nota tæki­færið að þakka öllum sem höfðu nennu í þetta með mér.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár