Mál Arion banka gegn Fjármálaeftirlitinu á dagskrá dómstóla í haust

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans sektaði Arion banka um tæpar 88 millj­ónir króna í fyrra­sumar. Ástæðan var sú að upp­lýs­ingar um fyr­ir­hug­aðar fjölda­upp­sagnir í bank­anum birt­ust í fjöl­miðlum. Arion banki höfð­aði mál og vill að ákvörð­un­inni hnekkt.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arion banki

Mál sem Arion banki höfð­aði gegn Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands (FME) til að fá semkt sem eft­ir­litið lagði á bank­ann í fyrra­sumar er á dag­skrá hér­aðs­dóms Reykja­víkur í haust. Frá þessu er greint í árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sem var birtur í lok síð­asta mán­aðar. Þar kemur enn fremur fram að FME hafi skilað inn grein­ar­gerð vegna máls­ins í nóv­em­ber í fyrra.

Sektin, sem var upp á 87,7 millj­ónir króna, var lögð á vegna þess að Arion banki birti ekki inn­herj­a­upp­lýs­ingar nægj­an­lega tím­an­lega.

Snýst um frétt sem Mannlíf birti

Forsaga máls­ins er sú að 6. sept­em­ber í fyrra var hald­inn fundur hjá nefnd sem kall­ast Insider Disclosure Forum (indifo) innan Arion banka. Til umræðu á fund­inum voru fyr­ir­hug­aðar skipu­lags­breyt­ingar og hóp­upp­sagnir hjá bank­anum.

[adspot]Í fund­ar­gerð nefnd­ar­innar, sem birt var í ákvörðun FME, kom fram að til stæði að segja upp 80 til 100 manns. Það, ásamt skipu­lags­breyt­ingum sem ráð­ast átti í sam­hliða, átti að lækka rekstr­ar­kostnað bank­ans um 1,5 millj­arða króna á árs­grund­velli. Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að um inn­herj­a­upp­lýs­ingar væri að ræða og að skil­yrði væru fyrir því að til­kynna ákvörð­un­ina ekki í Kauphöll Íslands strax, til að gæta jafn­ræðis fjár­festa.

22. sept­em­ber 2019 birt­ist frétt á vefnum Mannlíf.is með fyr­ir­sögn­inni „Allt að 80 manns sagt upp hjá Arion banka“. Í frétt­inni var full­yrt að skipu­lags­breyt­ingar væru í far­vatn­inu hjá Arion banka og að upp­sagnir myndu hefj­ast dag­inn eftir. Sama dag birti Kjarninn frétta­skýr­ingu um að þrá­látur orðrómur væri um að umfangs­miklar upp­sagnir væru í far­vatn­inu hjá Arion banka.

Indifo-nefndin ræddi frétt Mannlífs dag­inn eftir, þann 23. sept­em­ber. Nefnd­ar­menn voru sam­mála um að frétt Mannlífs væri röng, bæði væri tala þeirra sem ætti að segja upp ekki nákvæm­lega rétt né dag­setn­ing upp­sagna. Því væru enn skil­yrði fyrir hendi til að fresta birt­ingu á inn­herj­a­upp­lýs­ingum.

Tilkynnt um uppsagnir 26. september

Þremur dögum síðar, 26. sept­em­ber 2019, var birt til­kynn­ing frá Arion banka um að stjórn bank­ans hefði á fundi sínum þá um morg­un­inn sam­þykkt nýtt skipu­lag sem taka ætti gildi sama dag. Um eitt hund­rað manns myndu missa vinn­una vegna þessa.

Haft var eftir Benedikt Gísla­syni, banka­stjóra Arion banka, að rekstr­ar­kostn­aður bank­ans væri of hár og að skipu­lag bank­ans tæki ekki nægj­an­lega vel mið af núver­andi mark­aðs­að­stæðum og þörfum atvinnu­lífs­ins.

FME ákvað að taka til athug­unar hvort að þær upp­lýs­ingar sem ræddar höfðu verið á nefnd­ar­fund­inum 6. sept­em­ber, og var ákveðið að fresta birt­ingu á, væru sam­bæri­legar og þeim sem birt­ust í frétt Mannlífs 22. sept­em­ber 2019.

„Marktæk áhrif á markaðsverð“

FME komst að þeirri nið­ur­stöðu að svo væri. Í nið­ur­stöðukafla ákvörð­unar eft­ir­lits­ins sagði meðal ann­ars að upp­lýs­ing­arnar sem um ræddi væru lík­legar til að hafa „mark­tæk áhrif á mark­aðs­verð“ Arion banka enda um umfangs­miklar breyt­ingar á lyk­il­stærðum í rekstri bank­ans að ræða.

Að mati FME vant­aði mikið upp á að Arion banki virti þá skyldu sem á bank­anum hvíldi um að birta inn­herj­a­upp­lýs­ing­arnar eins fljótt og auðið var eftir að ljóst var að ekki hefði tek­ist að gæta trún­aðar um þær. „Með því að birta ekki inn­herj­a­upp­lýs­ingar á þeim tíma­punkti hefðu fjár­festar með réttu getað gert ráð fyrir að frétta Mannlífs væri orðrómur sem ætti ekki við rök að styðj­ast.“

Eft­ir­litið ákvað að sekta Arion banka um 87,7 millj­ónir króna. Við ákvörðun sekt­ar­fjár­hæðar var meðal ann­ars tekið mið af því að brot bank­ans hafi staðið í fjóra daga.

Í árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sem birtur var í fyrra­haust var greint frá því að bank­inn hefði höfðað mál fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur til að fá nið­ur­stöðu FME hnekkt. Bankinn telur að umfjöllun Mannlífs hafi falið í sér get­gátur byggðar á þegar birtum upp­lýs­ingum en haustið 2019 hafði ítrekað birst umfjöllun í fjöl­miðlum um að vænta mætti breyt­inga og hag­ræð­ingar í rekstri bank­ans. Af þessu leiddi að skil­yrði fyrir frestun á birt­ingu inn­herj­a­upp­lýs­inga voru enn upp­fyllt að mati bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

samfélagmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár