Hvernig slátrum við … og hvers vegna?

Davíð Hörgdal Stef­áns­son gefur nú út sína fjórðu ljóða­bók, en hún ber tit­il­inn Heima­slátrun og aðrar vöggu­vísur.

Rit­höf­und­ur­inn Davíð Hörgdal Stef­áns­son hefur komið víða við síðan hann gaf út sína fyrstu ljóða­bók árið 1996. Auk þess að gefa út þrjár ljóða­bækur hefur hann sent frá sér smá­sagna­safnið Hlýtt og satt (2014), fræðslu­bók­ina Tví­skinnu (2008) og ótal náms­bækur um íslensku, menn­ingu og gagn­rýna hugsun fyrir Mennta­mála­stofnun. Til við­bótar hefur Davíð verið ötull í mál­efnum skap­andi skrifa með fyr­ir­lestrum og nám­skeiðum á vegum Sköp­un­ar­skól­ans.

Davíð gefur nú út sína fjórðu ljóða­bók, en hún ber tit­il­inn Heima­slátrun og aðrar vöggu­vísur.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Nýja bókin er tví­skipt. Annars vegar er þarna Heima­slátrun, langur ljóða­bálkur sem ég skrif­aði árin 2005-2006 og lak ofan í skúff­una en vildi aldrei alveg gleym­ast. Í Heima­slátrun kraumar mikið óþol og reiði gagn­vart sam­fé­lags­málum þess tíma og þar glittir t.d. í valda­tíð George Bush og Davíðs Odds­sonar. Inn í þetta bland­ast mjög kjöt­legar pæl­ingar, því að í rann­sókn­ar­vinn­unni rakst ég á leið­bein­inga­skjal um slátrun sem kveikti áhuga minn.

Fyrir mörgum árum fór ég á Helfar­ar­safnið í Buchenwald og það sem sló mig mest þar var hversu úthugsuð útrým­ingin var; hvernig allt var gert til að gera útrým­ing­una þægi­lega og skil­virka fyrir „starfs­fólkið“. Í kjöt­fram­leiðslu er að finna hlið­stæðu við þetta; við erum búin að þróa mjög skil­virkt kerfi til að gjör­nýta hverja kú og eymd hennar og stilla upp tækni­bún­aði sem auð­veldar okkur að slátra kúnni og afkvæmum hennar.

[adspot]

Annars vegar er að finna í bók­inn heilan hell­ing af ljóðum frá síð­ustu 10-15 árum, enda hef ég aldrei hætt að skrifa ljóð þótt langt sé um liðið frá síð­ustu bók. Þessi ljóð mynda ágætis mót­vægi við hörk­una og póli­tík­ina í Heima­slátrun, enda er ég innst inni drullu­væm­inn gaur og veikur fyrir ást, feg­urð og sann­leika.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins.

Þemað í bálk­inum Heima­slátrun er valda­bar­átta innan neyslu­sam­fé­lags­ins, þar sem öllu er att saman, enda byggir kap­ít­al­ismi í grunn­inn á frum­skóg­ar­lög­mál­inu. Ég er kannski að velta fyrir mér hvernig okkur, sem sann­ar­lega erum dýr, farn­ast innan þessa kerfis, þegar við erum líka við­kvæmar og and­legar verur. Hvaða tog­streita mynd­ast þarna á milli? Og hvernig vinnum við úr henni?

Aug­ljós­lega fjallar bálk­ur­inn einnig um kjöt­iðn­að­inn, sem er meira til umræðu í dag en á rit­un­ar­tíma text­ans. Það eru tæp tvö ár síðan ég gerð­ist sjálfur vegan, en fram að þeim tíma hafði ég verið dæmi­gerð og „karl­mann­leg“ kjöt­æta. Þess vegna var virki­lega gaman að geta séð, í Heima­slátrun, hvaðan þetta fræ kemur og hversu gam­alt það er. Ég er hand­viss um að þarna var fræ­inu sáð, fyrir 13-14 árum … ég var bara lengi að fatta!

Um önnur ljóð í bók­inni er ekki hægt að segja að ríki sér­stakt þema. Fyrir mér eru ljóð leið til að hugsa um sjálfan mig, annað fólk, heim­inn og tungu­málið sem við lifum í. Ég smjatta á orðum og skynja sterkt hvað sum þeirra eru gild­is­hlaðin. Sjáðu t.d. orðið „heima­slátrun“, hvað það er mikil sprengja ef við smjöttum á því og skoðum tog­streit­una í orð­unum „heima“ og „slátrun“. Hvernig fara þessi orð saman … og viljum við yfir­höfuð að þau fari saman?

Eitthvað sér­stakt sem þú vilt að komi fram um þitt verk­efni?

Ég er mjög hugsi yfir því hvar heim­ur­inn er staddur varð­andi kjöt- og mjólk­ur­neyslu. Á meðan vís­inda­menn og stofn­anir víða um heim mæla gegn þess­ari meng­andi fram­leiðslu erum við nán­ast ekk­ert að gera hér heima, sér­stak­lega ekki á opin­berum vett­vangi. Á heima­síðum ráðu­neyta er ekki minnst á vegan­isma eða að draga úr kjöt- og mjólk­ur­neyslu – sem er hneyksli og ætti að vera frétta­efni – og það eru engin merki þess að núver­andi stjórn­völd hafi áhuga á mála­flokknum. Fyrir mér er ástæðan ein­föld: Við erum svo bundin í sveita­róm­an­tík­ina að hún er rót­gró­inn hluti sjálfs­myndar okkar. Við erum í alvöru ennþá að nið­ur­greiða kjöt- og mjólk­ur­fram­leiðslu … sem samt verður að smjör­fjalli sem síðan er seldur til útlanda á spott­prís!

Þess vegna – þótt nýja bókin mín fjalli efn­is­lega ekki nema að hluta til um þessi mál­efni – fá Samtök græn­kera kr. 300- af hverju seldu ein­taki. Þetta verður kannski ekki há upp­hæð, en þetta er mín leið til að segja: Við þurfum að breyta því hvernig við hugsum um kjöt; hvernig það er óþarfur og grimmd­ar­legur milli­liður fyrir nær­ingu. Vissu­lega hélt kjöt líf­inu í for­feðrum og for­mæðrum okkar – en sú tíð er liðin.

„Heima“ er fyrir mér heil­agt athvarf, ekki staður fyrir dýr sem hefur verið slátrað … að óþörfu.

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár