Hefði vantraust á Sigríði þýtt endalok ríkisstjórnarsamstarfs?

Í sjón­varps­þætti Kjarnans í kvöld fjalla tveir þing­menn, með algjör­lega and­stæðar skoð­anir á mál­inu, um van­traust­s­til­lögu á dóms­mála­ráð­herra og hvað nið­ur­staðan í atkvæða­greiðslu um hana þýði.

Van­traust á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra er umfjöll­un­ar­efni sjón­varps­þáttar Kjarnans sem frum­sýndur verður klukkan 21 á Hring­braut í kvöld. Gestur þátt­ar­ins eru Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Við­mæl­end­urnir tók­ust hart á um ýmis efn­is­at­riði máls­ins líkt og sjá má í stiklu í spil­ar­anum hér að ofan.

Á meðal þess sem rætt er í þætt­inum er hvort að stuðn­ingur fleiri þing­manna Vinstri grænna á van­traust á einn ráð­herra hefði þýtt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi ganga frá rík­is­stjórn­ar­borð­inu, hvort rétt­læt­an­legt væri að beita van­traust­s­til­lögu sem póli­tísku vopni þegar aug­ljóst væri að hún yrði ekki sam­þykkt og hvort að stjórn­ar­meiri­hlut­inn hafi skroppið saman í 33 þing­menn í gær þegar Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, þing­menn Vinstri grænna, studdu van­traust á dóms­mála­ráð­herra.

Þá takast við­mæl­end­urnir á um hvaða ástæður liggi að baki því að dóms­mála­ráð­herra sitji sem fast­ast þrátt fyrir að hafa brotið gegn stjórn­sýslu­lögum, að yfir 70 pró­sent lands­manna vilji afsögn hennar og að traust á dóm­stóla hafi fallið mikið á þeim tíma sem Sigríður hefur gegnt emb­ætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár