Telur blekkingum hafa verið beitt gegn þjóðinni

Björgólfur Thor kallar eftir skýr­ingum á hvert gjald­eyr­is­forði þjóð­ar­innar hafi í raun farið í hrun­inu.

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son athafna­maður kallar eftir í pistli á heima­síðu sinni í dag að nú þurfi á 10 ára hrunaf­mæl­inu að fá end­an­legar skýr­ingar á því hvert gjald­eyr­is­forði þjóð­ar­innar hafi farið sem Kaupþing fékk að láni frá Seðla­bank­anum.

Í pistl­inum lýsir Björgólfur því hvernig rík­is­stjórn Íslands hafi átt mögu­leika á að bjarga einum af stóru bönk­unum þremur haustið 2008. Hann gagn­rýnir að Lands­bank­inn hafi ekki fengið lán frá Seðla­bank­anum til að „bjarga“ bank­anum hrun­helg­ina 2008 en þess má geta að Björgólfur var einn aðal­eig­andi Lands­bank­ans á þeim tíma.

Samkvæmt Björgólfi þurfti Lands­bank­inn 200 millj­óna punda fyr­ir­greiðslu frá Seðla­bank­anum til að koma inn­láns­reikn­ingum Lands­bank­ans undir breska lög­sögu en í stað þess veitti Seðla­bank­inn Kaup­þingi 500 millj­óna evra þraut­vara­lán gegn veði í danska bank­anum FIF, dag­inn sem neyð­ar­lögin voru sett.

„Allur gjald­eyr­is­forð­inn rann þar einu bretti í vafa­samar björg­un­ar­að­gerðir Kaup­þings­manna, þar sem helsta mark­miðið var að tryggja stjórn­endum bank­ans, mönnum sem höfðu stýrt félagi í örfá ár, millj­arða í eigin vasa,“ segir Björgólfur.

[adspot]

Fyrr í vik­unni sagði Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í við­tali í Kast­ljósi að hann teldi að hann hefði verið blekktur í aðdrag­anda láns Seðla­bank­ans til Kaup­þings árið 2008. Í við­tal­inu seg­ir hann að veðið í FIH-bank­an­um hafi þótt vera mjög traust veð. Það hafi átt að duga fyr­ir þessu þrauta­vara­láni og öðrum skuld­um. Það hafi hins veg­ar verið hans skiln­ing­ur að fjár­magnið sem átti að fara til Kaup­þings ætti að fara í að greiða úr þeim erf­ið­leik­um sem bank­inn átti við að stríða gagn­vart breska fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Þá hefði verið hægt að bjarga bank­an­um og að það hefði gjör­breytt stöð­unni ef Kaupþing hefði lifað krepp­una af, þess vegna hafi lánið verið veitt. „En því miður fór þetta á ann­an veg og þess­ir pen­ing­ar fóru, eft­ir því sem ég best veit, eitt­hvað annað en til stóð,“ seg­ir Geir í við­tal­inu.

Björgólfur fer einnig mik­inn í pistl­inum um hversu hent­ugt það hafi verið hversu lengi Icesave-deilan var í brennid­epli í sam­fé­lag­inu, að málið hafi verið smjör­klípa sem þjón­aði hags­munum ákveð­inna aðila. „Og á meðan hrópað var hátt um að Icesave héldi þjóð­inni í helj­ar­g­reipum og hneppti íslensk börn í breska ánauð um ókomna tíð var horft fram­hjá því að menn fengu að stinga gjald­eyr­is­forða lands­ins að stórum hluta í eigin vasa og stjórn­völd fóru sínu fram með vafasömum björg­unum á spari­sjóðum í æski­legum kjör­dæmum, svo eitt dæmi sé tekið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár