Ísland er eina EES-landið með ríkiseinokun á póstþjónustu

Í engu öðru EES-landi en Íslandi hefur ríkið einka­rétt á póst­þjón­ustu. Til stendur að afnema einka­rétt­inn með nýju frum­varpi, en Við­skipta­ráð styður það heils­hugar.

Póstþjónusta á Íslandi er í dýrari kantinum.
Póst­þjón­usta á Íslandi er í dýr­ari kant­inum. Mynd: Anton Brink

Ísland er eina landið innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins sem ekki hefur afnumið einka­rétt rík­is­ins á póst­þjón­ustu. Til stendur að afnema einka­rétt­inn, en frum­varp þess efnis verður lík­lega lagt fyrir á Alþingi í haust. Þetta kemur fram í

nýrri umsögn

sem Við­skipta­ráð Íslands skil­aði inn til

sam­göngu-og

sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Eina EES-landið

Umsögn Við­skipta­ráðs er um drög að frum­varpi um póst­þjón­ustu sem birt voru á vef Stjórn­ar­ráðs­ins fyrir mán­uði síðan. Í drög­unum er lagt til að einka­réttur rík­is­ins verði lagður niður og opnað fyrir sam­keppni á póst­markað, en þannig yrði hag­kvæm lág­marks­þjón­usta tryggð um allt land.

Samkvæmt drög­unum að laga­frum­varp­inu eiga umræddar breyt­ingar sér langan aðdrag­anda. Einka­réttur rík­is­ins á póst­þjón­ustu var skil­greindur í lögum árið 1940, en frá 1998 hefur dregið úr honum eftir breyt­ingum á reglu­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Núgild­andi lög eru frá 2002, en sam­kvæmt þeim eru bréf undir 50 grömmum háð einka­rétti. Frum­varpið, sem búist er við að verði lagt fram í haust, er byggt á til­skipun Evr­ópu­þings­ins frá árinu 2008. Öll önnur ríki innan EES hafa þegar inn­leitt til­skip­un­ina og fellt einka­rétt hins opin­bera á póst­þjón­ustu úr gildi

Við­skipta­ráð seg­ist fagna þessu skrefi og tekur heils­hugar undir meg­in­efni frum­varps­ins. Samkvæmt umsögn­inni telur ráðið afnám einka­réttar vera fyrsta skrefið í átt að við­un­andi póst­þjón­usta verði stunduð á hag­kvæman hátt, í virku sam­keppn­isum­hverfi og með lág­marks­kostn­aði fyrir hið opin­bera.

Í hópi með Samkeppniseftirlitinu

Við­skipta­ráð eru ekki einu sam­tökin sem gagn­rýnt starf­semi Íslands­pósts, en í febr­úar síð­ast­liðnum setti Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyr­ir­tæk­inu skil­yrði um breyt­ingar á starf­semi þess. Voru skil­yrðin sett til þess að vinna á móti sam­keppn­is­hömlum sem séu til staðar vegna mark­aðs­ráð­andi stöðu Íslands­pósts.

Ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var kærð af Póst­mark­aðnum ehf. og móð­ur­fé­lagi þess, Sam­skipum ehf., þar sem þeir töldu ekki vera tekið nægt til­lit til kvart­anna þeirra. Í dag sendi Sam­keppn­is­eft­ir­litið hins vegar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hefur stað­fest ákvörðun eft­ir­lits­ins og stendur hún því enn.

Í dýrari kantinum

Tölu­verður kostn­að­ar­munur er á póst­þjón­ustu Íslands og ann­arra landa, ef marka má verð­skrár nágranna­land­anna. Grafið hér að neðan sýnir verð á B-póst­send­ingu inn­an­lands á 20 gramma bréfi. Upp­lýs­ingar eru fengnar frá Íslands­pósti auk póst­fyr­ir­tækja í Svíþjóð, Noregi, Finn­landi og Danmörku.

B-Póst­send­ingar á Íslandi eru dýrastar allra Norð­ur­landa, en mestur er mun­ur­inn 50% milli Íslands og Sví­þjóðar.

Hag­fræði­stofnun hefur klárað skýrslu um verð­lagn­ingu á grunn­þjón­ustu Íslands­pósts, en skýrslan verður birt á vef stjórn­ar­ráðs­ins á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pósturinn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár