Ólafur Ragnar hættir sem forseti Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, ætlar ekki að bjóða sig fram til emb­ætt­is­ins í sjötta sinn. Þetta til­kynnti hann í nýársávarpi sínu rétt í þessu.

Ólafur Ragnar sagði að óvissan sem var fyrir hendi fyrir fjórum árum, og leiddi til áskor­ana um að hann yrði áfram for­seti, móti ekki lengur stöðu Íslend­inga. Búið væri að leggja til hliðar aðild að ESB, upp­gjör föllnu bank­anna og afnám hafta væri senn í höfn og deilur um stjórn­ar­skrána hefðu vikið fyrir sátt.

„Nú er góður tími fyrir þjóð­ina að ganga með nýjum hætti til ákvörð­unar um for­seta; sess Íslands og inn­viðir þjóð­lífs­ins eru traust­ari en um langan tíma. Þótt annar muni halda um for­seta­stýrið verð ég áfram reiðu­bú­inn að sinna verkum á þjóð­ar­skútu okkar Íslend­inga; er á engan hátt að hverfa frá borði; verð ætíð fús að leggj­ast með öðrum á árar,“ sagði for­set­inn meðal ann­ars. Hann sagði þjón­ustu við þjóð­ina vera æðstu skyldu for­set­ans, og sú skylda vari lengur en ábyrgðin sem form­lega felist í emb­ætt­inu.

Hann sagð­ist ætla að sinna Norð­ur­slóða­málum, lofts­lags­breyt­ingum og sam­starfi við þjóðir heims um aukna nýt­ingu hreinnar orku.

Þetta þýðir að nýr for­seti verður kjör­inn í for­seta­kosn­ingum í júní.

For­set­inn lauk máli sínu með sama hætti og hann gerði í inn­setn­ing­ará­varpi sínu árið 1996. „Ég bið ykkur öll að minn­ast áa okkar og ætt­jarðar. Megi blessun guðs og gjöful nátt­úra færa Íslend­ingum gæfu um alla fram­tíð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár