Fjórði hver íbúi á Suðurnesjum útlendingur

Tveir af hverjum þremur erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þrír af hverjum fjórum þeirra búa annað hvort þar eða á Suð­ur­nesj­unum. Það sveit­ar­fé­lag sem er með lægst hlut­fall útlend­inga er ein­ungis með einn útlend­ing á skrá.

Erlendum ríkisborgurum sem ákveða að búa á Íslandi hefur fjölgað gríðarlega hratt á undanförnum árum.
Erlendum rík­is­borg­urum sem ákveða að búa á Íslandi hefur fjölgað gríð­ar­lega hratt á und­an­förnum árum. Mynd: Bára Huld Beck

Af þeim rúm­lega 49 þús­und erlendu rík­is­borg­urum sem bjuggu á Íslandi í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins bjuggu tæp­lega 31 þús­und, bjuggu næstum tveir af hverjum þremur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Lang­flestir þeirra búa í Reykja­vík, um 21 þús­und tals­ins og eru erlendir rík­is­borg­arar nú um 16 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­innar. Á Sel­tjarn­ar­nesi bjuggu 393 útlend­ingar (átta pró­sent íbúa) í Mos­fellsbæ bjuggu 1.019 (átta pró­sent íbúa og í Garðabæ bjuggu 811 (4,7 pró­sent íbúa).

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýjum tölum Þjóð­skrár Íslands um hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara, sem birtar voru í dag.

Þegar við bæt­ist sá hluti erlendra rík­is­borg­ara sem býr á Suð­ur­nesjum, en þeir eru 6.569 alls, þá liggur fyrir að 75 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara búa á suð­vest­ur­horn­inu, annað hvort á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða á Suð­ur­nesjum. Þar af búa um 53 pró­sent í Reykja­vík og í Reykja­nesbæ, þar sem erlendir rík­is­borg­arar eru nú um 26 pró­sent íbúa.

Einn útlendingur í hreppnum

Í töl­unum kemur fram að hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara er afar breyti­legt milli sveit­ar­fé­laga eða frá rúmum 44 pró­sentum niður í tæp­lega eitt pró­sent. Hæsta hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara eru í Mýr­dals­hreppi þar sem 44 pró­sent 717 íbúa hrepps­ins eru með erlent rík­is­fang, eða 398 tals­ins.

[adspot]Það sveit­ar­fé­lag sem er með lægsta hlut­fall íbúa með erlent rík­is­fang er Sval­barðs­hreppur, en einn íbúi af 92 íbúum hrepps­ins er með erlent rík­is­fang,

Líkt og áður sagði er sá lands­hluti sem er með hæst hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara Suðurnes, þar sem þeir eru um 24 pró­sent íbúa. Á Vest­fjörðum eru þeir um 16 pró­sent íbúa, á Suð­ur­landi um 14 pró­sent, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 13 pró­sent og á Aust­ur­landi um 12 pró­sent.

Lægst er hlut­fall erlendra rík­is­borg­ara á Norð­ur­landi vestra (8,5 pró­sent) og á Norð­ur­landi eystra (8,2 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár