Íslendingurinn Reynir ætlar að taka upp Flamenco plötu

Reynir Hauksson hefur lært hjá einum helsta gít­ar­kenn­ara Granada. Nú safnar hann fyrir gerð Flamenco plötu á Karolina Fund.

Fram undan er fyrsta hljóð­ritun Íslend­ings á Flamenco tón­list. Upptökur fara fram í Granada, Spáni haustið 2019. Reynir Hauksson gít­ar­leik­ari mun hljóð­rita 9 frum­samin lög með hjálp nokk­urra fær­ustu Flamenco lista­manna Andalúsíu.

Reynir Hauksson flutt­ist til Spánar til að nema Flamenco gít­ar­leik að loknu fram­halds­námi í Tón­list­ar­skóla FÍH. Hann fór að læra hjá helsta gít­ar­kenn­ara Granada, Alberto Fernández López, sem hefur kennt mörgum af fær­ustu Flamenco gít­ar­leik­urum sam­tím­ans.

Reynir kemur mikið fram í Granada sem ein­leik­ari og einnig í með­leik með söng og dansi.
Und­an­farin ár hefur Reynir stuðlað að auk­inni vit­neskju um Flamenco á Íslandi, með fram­komu á ein­leiks tón­leikum sem og nám­skeiðum í tón­list­ar­skólum lands­ins. Einnig hefur hann í tvígang flutt Flamenco hljóm­sveit með dönsurum til Íslands og hafa þau sett upp sýn­ingar víða um land. „Síðustu árin hef ég lagt allt til söl­urnar í það að læra þetta magn­aða list­form sem Flamenco er, sú veg­ferð hefur verið hlykkj­ótt, tor­fær en alveg ofboðs­lega fal­leg. Samhliða því legg ég mig fram við að semja mín eigin lög, í sem flestum af þeim fjöl­mörgu Flamenco stílum sem til eru en þeir eru um 35 tals­ins. Næsta skref fyrir mig er því að hljóð­rita mínar eigin Flamenco tón­smíðar.“

[adspot]Reynir verður ekki einn á plöt­unni því að nokkrir af fær­ustu Flamenco lista­mönnum Granada ljá honum hæfi­leika sína. „Ég verð með slag­verk, söng, fiðlu, lófa­klapp að sjálf­sögðu og dans. Dansinn er svo hryn­vænn að hann virkar sem slag­verks­hljóð­færi.“

Nokkrir þeirra tón­list­ar­manna sem verða á plöt­unni hafa komið með Reyni til Íslands til að setja upp Flamenco sýn­ingar, þar má t.d. nefna söngv­ar­ann Jacób de Carmen. „Jacób hefur komið með mér tvisvar til Íslands og hann mun koma oftar. Hon­um­hefur verið tekið vel á Fróni og hann kann vel við sig þar í þeirri drauma­ver­öld sem Ísland er. Jacób má líka eiga það að hann hefur senni­lega kennt mér hvað mest um Flamenco af öllum.

Flamenco tón­list er upp­runnin í Andalúsíu, Spáni. Það er ekki að ástæðu­lausu sem eitt­hvað jafn for­vitni­legt og Flamenco fæð­ist þar því Andalúsía hef­uru verið menn­ingar suðu­pottur í árþús­undir. Rætur Flamenco eru margar en þær helstu og mest ein­kenn­andi koma úr Sígauna-, Arab­ískri- og Gyð­ingatón­list. Við þetta bæt­ist að sjálf­sögðu spænsk þjóð­laga tón­list og síðan suður-amer­ísk tón­list.

En hvað með íslenska tón­list?

„Tónlist er í loft­inu, tón­list er loft. Sama hvaðan úr heim­inum hún kemur er söng­ur­inn alltaf sá sami, það eina sem breyt­ist hreim­ur­inn. Íslensk tón­list gengur vel upp innan Flamenco rammans. En hvernig upp­lifir Íslend­ingur Flamenco?

Það kemur í ljós innan skamms!“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár