Vilja flytja út íslenska orku í formi fljótandi metangass

Sviss­neskt fyr­ir­tæki áformar að fram­leiða metan­gas á Reykja­nesi og flytja það til Rott­er­dam. Ferða­lagi gass­ins lyki ekki þar því frá Hollandi á að flytja það eftir ánni Rín til Basel í Sviss. Þar yrði það svo leitt inn í sviss­neska gaskerfið.

Tölvuteikning sem sýnir hina áformuðu verksmiðju í hrauninu við Reykjanesvirkjun. Turnar hennar yrðu 25 metrar á hæð.
Tölvu­teikn­ing sem sýnir hina áform­uðu verk­smiðju í hraun­inu við Reykja­nes­virkjun. Turnar hennar yrðu 25 metrar á hæð. Mynd: Úr matsáætlun

55 MW rafafl mun þurfa til að knýja áform­aða verk­smiðju Swiss Green Gas International við Reykja­nes­virkjun á Reykja­nesi. Í verk­smiðj­unni yrði fram­leitt vetni með raf­grein­ingu sem yrði síðan, ásamt koldí­oxíði úr útblæstri frá jarð­varma­virkj­unum HS Orku, nýtt til að fram­leiða metan­gas. Raf­grein­ing­ar­ferli þetta, þegar vatni er skipt í vetni og súr­efni, er þekkt en hefur til þessa lítið verið notað við vetn­is­fram­leiðslu á borð við þá sem sviss­neska fyr­ir­tækið fyr­ir­hugar.

Til að setja þessa orku­þörf í sam­hengi má minna á að Hval­ár­virkjun á Ófeigs­fjarð­ar­heiði í Árnes­hreppi, sem dótt­ur­fé­lag HS Orku, Vest­ur­verk, hefur haft á teikni­borð­inu í fleiri ár, er einmitt áætluð 55 MW. Hval­ár­virkjun er í orku­nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar og var ekki hreyft við þeirri flokkun, þrátt fyrir að þessi virkj­un­ar­á­form í víð­ernum Vest­fjarða séu mjög umdeild, í með­förum þings­ins síð­asta vor.

[adspot]

Í mats­á­ætlun Swiss Green Gas International, sem er nú kynnt á vef Skipu­lags­stofn­unar, sem þýðir að umhverf­is­mats­ferli fram­kvæmd­ar­innar er hafið, segir að verk­smiðjan yrði bein­tengd við Reykja­nes­virkjun sem HS Orka rekur. Verið er að stækka þá virkjun og auka afl hennar um 30 MW enda marg­vís­leg upp­bygg­ing áformuð á þessum slóðum, m.a. land­eldi og frek­ari upp­bygg­ing Auð­linda­garðs HS Orku.

Til fram­leiðslu í verk­smiðju Sviss­lend­ing­anna stendur til að nota um 60 þús­und tonn af koldí­oxíð á ári sem vinna á úr afgasi jarð­varma­virkj­ana í Svarts­engi og Reykja­nesi, gasi sem nú er losað óhindrað út í and­rúms­loftið. Gasið frá Svarts­engi yrði leitt að verk­smiðj­unni með gaslögn og er því haldið fram í mats­á­ætlun að sú fram­kvæmd yrði á hendi HS Orku og að taka þurfi sér­staka ákvörðun um mat á umhverf­is­á­hrifum hennar. Áformað er að leiðslan verði lögð í jörðu, með­fram háspennu­kapli sem nú þegar liggur milli virkj­an­anna. „Samtal er hafið milli HS Orku og Grinda­víkur- og Reykja­nes­bæjar vegna þessa.“

Að auki þarf til fram­leiðsl­unnar um 135.000 tonn af vatni á ári sem yrði fengið úr ferskvatns­holum HS Orku í Sýrfelli. Verk­smiðjan myndi skila, segir fram­kvæmda­að­il­inn, um 14.000 tonnum af vökva­gerðu met­ani (LSNG) árlega.

Verk­smiðjan yrði að mestu leyti sjálf­virk. Að stað­aldri myndu aðeins einn til tveir starfs­menn vinna í henni.

Swiss Green Gas International Ltd. (SGGI) er hluta­fé­lag sem stofnað var af stórum aðilum í sviss­neska orku­iðn­að­inum. Stærstu hlut­hafar SGGI eru Axpo Holding AG, sem er stærsta raf­orku­fyr­ir­tæki í Sviss, og Holdigaz SA.

Frá Reykjanesi um Rín

Fljót­andi end­ur­nýj­an­legt gas, líkt og það er kallað, er metan­gas sem hefur verið þjappað og ofur kælt niður í mínus 162°C. Við það hita­stig fer gasið af loft­kenndu formi yfir á vökva­form. Rúmmál gass­ins á vökva­formi er 600 falt minna en það rúm­mál sem það fyllir sem loft­teg­und. Það er því hag­kvæmara að flytja gasið á fljót­andi formi um langa vegu, segir í mats­á­ætl­un­inni.

Þessi loka­af­urð, hið fljót­andi metan­gas, yrði sett í þar til­gerða gáma og flutt frá verk­smiðj­unni til hafnar, sem ekki liggur fyrir hver verður, en hafnir í Helguvík, Þor­láks­höfn og Reykja­vík eru sagðar koma til greina. Þaðan yrði gasið flutt til Rott­er­dam í Hollandi og áfram með ánni Rín til Basel í Sviss og loks, á áfanga­stað, inn í gaskerfi lands­ins. Einnig er talað um að selja hluta þess á íslenskum mark­aði fyrir sam­göngur.

Helsta markmiðið er loftslagsmarkmið

Í mats­á­ætl­un­inni er tekið fram að „helsta mark­mið fram­kvæmd­ar­innar“ sé að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, þá helst CO2 „með fram­leiðslu á metangasi úr vetni sem fram­leitt er með grænni raf­orku í stað jarð­efna­olíu“. Önnur mark­mið eru sögð þau að „auka fram­boð á end­ur­nýj­an­legri orku fyrir sviss­neskan markað ásamt því að bjóða íslenskum mark­aði upp á raf­elds­neyti í sam­göngur.“ For­sendur verk­efn­is­ins eru „gott fram­boð og sam­keppn­is­hæft verð á end­ur­nýj­an­legri raf­orku á Íslandi ásamt góðu aðgengi að koldí­oxíði sem eru helstu aðföng fram­leiðsl­unnar“.

Vetnis- og met­an­verk­smiðjan yrði reist, að því er fram­kvæmda­að­ili segir, á skil­greindu iðn­að­ar­svæði sem alfarið er í eigu HS Orku og innan svo­nefnds Auð­linda­garðs fyr­ir­tæk­is­ins yst á Reykja­nesskaga.

Þegar raskað svæði en útivist vinsæl

Tekið er fram að svæðið sé nú þegar tals­vert raskað vegna Reykja­nes­virkj­unar og ann­arra umsvifa á svæð­inu. Það er í um 11 kíló­metra fjar­lægð frá byggð í Höfnum og í u.þ.b. sömu fjar­lægð frá byggð í Grinda­vík. Þéttbýli í Reykja­nesbæ er í tæp­lega 16 kíló­metra fjar­lægð. Hvera­svæði er sunnan fram­kvæmda­svæð­is­ins, oft­ast kennt við Gunnu­hver og er vin­sæll áfanga­staður úti­vi­star­fólks og ferða­manna.

Helstu mann­virki verk­smiðj­unnar eru raf­grein­ing­ar­stöð, CO2 hreinsi­stöð, met­an­stöð og gas­þjöppun/kæli­stöð. Hæstu mann­virkin eru turnar í koldí­oxíð-hreinsi­stöð, um 25 metrar á hæð, en hæstu bygg­ingar yrðu 18 metrar.

Ráðgert er að hefja fram­kvæmdir þegar bygg­ing­ar­leyfi liggur fyrir. Áætlað er að það verði í byrjun árs 2024 og gert er ráð fyrir að verk­smiðjan verði gang­sett í kringum ára­mótin 2025/2026.

Þangað til eru þrjú ár.

Þetta er ekki eina verk­smiðjan sem Swiss Green Gas International hefur verið með á prjón­unum á Íslandi. Í maí á þessu ári tók skipu­lags- og fram­kvæmda­ráð Norð­ur­þings fyrir erindi þar sem fyr­ir­tækið (undir hatti dótt­ur­fé­lags­ins Nordur Renewables Iceland ehf.) óskaði eftir vil­yrði fyrir lóðum undir raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Bakka við Húsavík. Ráðið lýsti ánægju með sýndan áhuga og sagði verk­efnið áhuga­vert „og virð­ist sniðið að þeim ramma sem sveit­ar­fé­lagið hyggst setja utan um þróun græns iðn­garðs á Bakka“. Vildi ráðið hins vegar fá upp­lýs­ingar um hvernig fyr­ir­tækin hygð­ust tryggja sér raf­orku til verk­efn­is­ins. Málið hefur ekki verið tekið aftur fyrir innan stjórn­sýsl­unnar í sveit­ar­fé­lag­inu.

Árið 2020 lagði þetta sama dóttur félag, Nordur Renewables Iceland ehf., fram mats­á­ætlun vegna vetnis- og met­an­verk­smiðju við Hell­is­heið­ar­virkjun. Sú verk­smiðja átti að nýta 25 MW. Álit Skipu­lags­stofn­unar lá fyrir þetta sama ár en lengra hefur verk­efnið ekki farið í umhverf­is­mati.

[adspot]

Að sama skapi er verk­smiðja SGGI ekki sú eina sem keppir um hjarta stjórn­enda HS Orku. Þannig náðu orku­fyr­ir­tækið og Hydrogen Ventures Limited (H2V) sam­komu­lagi um orku­verð og aðra skil­mála vegna fyr­ir­hug­aðrar vetn­is­fram­leiðslu á Reykja­nesi nú í lok ágúst. Vetnið úr verk­smiðju á að nýta til fram­leiðslu á met­anóli. Sem er enn einn fram­tíð­ar­orku­gjaf­inn sem kynntur hefur verið til leiks. Sér­stak­lega er hann sagður koma til greina í sjó­flutn­ingum og sjáv­ar­út­vegi, að því er fram kom í til­kynn­ingu HS Orku um málið. „Ef afrakstur fram­leiðsl­unnar yrði nýttur inn­an­lands myndi verk­efnið því færa Ísland mun nær mark­miði sínu um að ná kolefn­is­hlut­leysi árið 2040,“ sagði í til­kynn­ing­unni.

Verk­smiðja H2V þyrfti 60 MW sem myndi, að því er haft var eftir Tómasi Má Sig­urðs­syni, for­stjóra HS Orku, koma frá virkj­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Og nýta til fram­leiðsl­unnar, rétt eins og SGGI er áfram um, meiri­hluta þess koldí­oxíðs sem losnar frá vinnslu­svæð­unum.

Mikil orku- og vatnsþörf

Sam­an­lögð orku­þörf þess­ara tveggja verk­efna er 115 MW. Hvort þau verði bæði að veru­leika er hins vegar alls óvíst enda aðföng sem þarf til fram­leiðslu á borð við þessa, gríð­ar­leg orka, fersk­vatn og koldí­oxíð, háð tak­mörk­unum.

„Ísland er auð­ugt af upp­sprettum end­ur­nýj­an­legrar orku,“ segir á vef Nordur Renewables Iceland ehf., dótt­ur­fé­lags­ins sem áformar fram­leiðslu raf­elds­neytis bæði á Íslandi og í Noregi. „Með vatns­afli og jarð­varma er fram­leidd í land­inu miklu meiri raf­orka en þar er notuð. En þar sem þetta er eyja án tengsla við hið alþjóð­lega raf­orku­kerfi þá getur Ísland ekki flutt út end­ur­nýj­an­legt raf­magn. Þess vegna liggur meg­in­á­hersla Nordur Renewables Iceland ehf. í „orku til gasverk­efna“ – við breytum end­ur­nýj­an­legu raf­magni og koltví­oxíð í grænt gas.“

Það er full­ljóst að kapp­hlaup erlendra fyr­ir­tækja um íslensku ork­una, þessa sem sífellt er nú tuggið á að sé „end­ur­nýj­an­leg“, „umhverf­is­væn“ og „græn“ (sem vissu­lega eru ekki tíð­indi í okkar íslensku eyrum), er hafið fyrir alvöru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

HSOrka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár