Sigríður ætlar ekki að segja af sér

Dóms­mála­ráð­herra telur nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu ekki vera til­efni til þess að segja af sér. Sigríður seg­ist áfram njóta trausts hjá rík­is­stjórn­inni allri.

Sigríður Á. Andersen
Sigríður Á. Andersen Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra telur dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu ekki vera til­efni til þess að segja af sér. Í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar sagð­ist Sigríður áfram njóta trausts hjá rík­is­stjórn­inni allri og hefur því ekki í hyggju að segja af sér. Hún segir dóm­inn bæði vera óvæntan og for­dæma­lausan og þá komi líka á óvart að dóm­ur­inn hafi klofnað í afstöðu sinni til máls­ins.

Tilefni til að skoða hvort hægt sé að skjóta niðurstöðunni til yfirdómsins

Dóms­mála­ráð­herra segir jafn­framt að verið sé að greina málið en bendir á að dóm­ur­inn sé afar yfir­grips­mik­ill. Hún segir dóm­inn kunna að hafa áhrif um alla Evrópu. Auk þess segir Sigríður að það sé mat bæði sér­fræð­inga í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og hjá rík­is­lög­manni að það sé til­efni til að skoða vand­lega og alvar­lega hvort ekki sé hægt að skjóta nið­ur­stöð­unni til yfir­dóms­ins en slíkt þarf ríkið að gera innan þriggja mán­aða.

Sigríður segir það ekki koma sér á óvart að fólk sé að krefj­ast afsagnar hennar en hún telur að þessi dómur gefi ekki til­efni til þess. „Menn hafa haldið því á lofti eins og þeir mögu­lega geta. En nei, ég tel nú ekki að þessi dómur gefi til­efni til þess og ég minni á og bendi á og árétta að afstaða íslenskra dóm­stóla til lög­mætis skip­unar dóm­ar­anna í Lands­rétti liggur alveg skýr fyrir. Það voru nú allar þrjár greinar rík­is­valds­ins sem einmitt komu að þeirri skipun og end­aði núna síð­ast með Hæsta­rétti sem dæmdi þessa skipun lög­mæta, “ sagði Sigríður í sam­tali við Bylgjuna.

[links]Greint var frá því í fréttum fyrr í dag að Ísland hefði tapað Lands­rétt­­ar­­mál­inu fyrir Mann­rétt­inda­­dóm­stólnum en Ísland braut gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­­­mála Evr­­­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­­­með­­­­­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan er sú að mað­­­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­­­fríður Ein­­­ar­s­dótt­ir, sem er dóm­­­ari við rétt­inn, hafi ekki verið skipuð í hann með lög­­­­­mætum hætt­i. Sig­ríður til­­­­­nefndi dóm­­­ar­ana sem skip­aðir voru í Lands­rétt og Alþingi sam­­­þykkti þá skip­­­an.

Gera kröfu um tafarlausa afsögn

Þing­flokkur Pírata hefur gert kröfu um taf­ar­lausa afsögn dóms­mála­ráð­herra. Auk þess hefur Helga Vala Helga­dótt­ir, for­maður stjórn­skip­un­ar-og eft­ir­lits­nefndar, sagt að Sigríður verði að víkja. Birgir Ármanns­­son, þing­­flokks­­for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, segir hins vegar dóm Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu breyta engu um stöðu dóms­­mála­ráð­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár