Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir starf Landsréttar ekki í uppnámi

Birgir Ármanns­son segir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu breyta engu um stöðu dóms­mála­ráð­herra. Hann er ósam­mála nið­ur­stöðu dóms­ins.

Birgir Ármannsson
Birgir Ármanns­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu breyta engu um stöðu Sigríðar Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra. Frá þessu er greint á RÚV í dag.

Í frétt RÚV segir hann starf Lands­réttar ekki vera í upp­námi þar sem dóm­ur­inn hafi ekki bind­andi nið­ur­stöðu „nema að því leyti að íslenska ríkið þarf að greiða bætur.“

[links]Eins og fram hefur komið í fréttum þá tap­aði Ísland Lands­rétt­ar­mál­inu fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stólnum en Ísland braut gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­­mála Evr­­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­­með­­­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti.

Ósammála niðurstöðunni

Birgir segir í sam­tali við RÚV að nið­ur­staða meiri­hluta dóms­ins virð­ist í meg­in­at­riðum vera á sömu for­sendum og dómur Hæsta­réttar frá því í des­em­ber. „Ég segi fyrir mitt leyti að ég er jafn ósam­mála þeirri nið­ur­stöðu og ég var nið­ur­stöðu Hæsta­réttar.“ Hann vekur jafn­framt athygli á sam­eig­in­legu sér­á­liti tveggja dóm­ara við mann­rétt­inda­dóm­stól­inn þar sem kom­ist sé að þver­öf­ugri nið­ur­stöðu og aðferð­ar­fræði meiri­hluta dóms­ins gagn­rýnd.

Birgir telur að dóm­ur­inn kalli á áfram­hald­andi umræður um hvernig eigi að haga skipan dóm­ara. Starf Lands­réttar sé ekki í upp­námi. „Hann hefur ekki bind­andi nið­ur­stöðu nema að því leyti að íslenska ríkið þarf að borga bætur.“ Birgir seg­ist jafn­framt telja að dómur MDE breyti engu um stöðu Sigríðar. „Hún hefur gert grein fyrir sínum skoð­unum og afstöðu í þessu og staðið af sér van­traust vegna þessa máls.“

Helga Vala Helga­dótt­ir, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd­ar, sagði aftur á móti í sam­tali við Kjarnann í morgun að hún teldi að Sigríður yrði að segja af sér strax í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár