Hvernig fáum við kýrnar til að prumpa minna? Gefum þeim þara

Ein til­lagan í bar­átt­unni við lofts­lags­vand­ann er að láta kýr freta og ropa minna.

Mikið metan verður til í maga kúa.
Mikið metan verður til í maga kúa. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vís­inda­menn um allan heim freista þess nú að finna lausn á lofts­lags­vand­anum sem steðjar að mann­kyn­inu. Engin töfra­lausn mun leysa öll þau vanda­mál sem munu fylgja hlýnun lofts­lags eða koma í veg fyrir frek­ari hlýnun. Víg­stöðv­arnar eru þess vegna fjöl­margar.

Einn þeirra geira sem talið er mögu­legt að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá er land­bún­aður. Áhrif land­bún­aðar á lofts­lagið eru marg­þætt; Allt frá breyttri land­notkun til útblást­urs hættu­legra loft­teg­unda.

Lausn­irnar sem lagðar hafa verið til eru marg­þættar, og sumar eru rót­tæk­ari en flestir kæra sig um. Ein til­lagan er að láta kýr prumpa og ropa minna.

Í nýlegri rann­sókn sem gerð var við James Cook-háskóla í Ástralíu fjallar einmitt um þetta: Ef sjáv­ar­þangi er blandað við fóður naut­gripa í smáum skömmtum – aðeins tvö pró­sent fóð­urs­ins – er hægt að minnka met­anprump og -rop dýr­anna um 90 pró­sent. Þör­ung­arnir sem próf­aðir hafa verið heita Asp­ara­gopsis tax­iformis og falla í fylk­ingu rauð­þör­unga, eins og söl sem er einn þeirra þör­unga sem not­aður hefur verið til mann­eldis. Þetta hefur einnig verið prófað á sauð­fén­aði með svipað jákvæðum nið­ur­stöðum.

Kýr eru falla í flokk jórt­ur­dýra og þær hafa fjóra maga sem gerir dýr­unum kleift að borða ill­melt­an­lega fæðu eins og gras. Þetta hefur hins vegar þær auka­verk­anir að mikið magn metangass verður til í maga dýr­anna sem þau losa sig við og út í and­rúms­loftið.

Metan er talið vera ein skað­leg­asta gróð­ur­húsa­loft­teg­undin. Til sam­an­burðar við koldí­oxíð, sem er algeng­asta gróð­ur­húsa­loft­teg­undin, þá hefur metan 84 sinnum áhrifa­rík­ari hlýn­un­ar­á­hrif á fyrstu tveimur ára­tug­unum sem það er í and­rúms­loft­inu. Áhrifin eru svo allt að 25 sinnum meiri en af koldí­oxíði yfir 100 ára tíma­bil.

Meðalkú getur losað um það bil 70 til 120 kíló af metangasi á hverju ári. Það er mikið metan, svona miðað við að fjöldi kúa í heim­inum sé um 1,5 millj­arðar.

Hingað til hefur lausnin við þessu sér­staka vanda­máli falist í því að hvetja fólk til að borða minna af nauta­kjöti og neyta minna af afurðum kúa. Þannig væri hægt að minnka fjölda kúa og um leið met­an­mengun and­rúms­lofts­ins. Hér er hins vegar komin leið sem gæti fært land­búnað nær sjálf­bærni – í það minnsta tíma­bundið þar til mann­kynið fer að byggja fæðu sína meira á græn­meti og ávöxtum.

Nú er verið að rann­saka hver áhrif þess­arar aðferðar við að breyta fæðu naut­gripa eru í stærra sam­hengi. Nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar ættu að liggja fyrir á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár