Fleiri leita til Kvennaathvarfsins vegna ofbeldis gegn börnum

Til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi til lög­reglu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru 15 pró­sent fleiri fyrri hluta árs­ins en á sama tíma í fyrra. Fleiri hafa sótt aðstoð í Kvenna­at­hvarfið og fleiri segja kyn­ferð­is­legt ofbeldi og ofbeldi gegn börnum ástæðu kom­unnar.

UN Women hafa allt frá upphafi faraldurs COVID-19 vakið athygli á því að við slíkar aðstæður sé oftar beitt ofbeldi í nánum samböndum.
UN Women hafa allt frá upp­hafi far­ald­urs COVID-19 vakið athygli á því að við slíkar aðstæður sé oftar beitt ofbeldi í nánum sam­böndum. Mynd: UN Women

Í skugga far­ald­urs kór­ónu­veirunnar braust út annar far­aldur. Sá bitnar helst á konum sem voru – og eru sumar enn –inni­lok­aðar á heim­ilum sínum með ofbeld­is­hneigðum maka eða öðrum sér nákomnum. Ein­angr­unin jók þá spennu og það álag sem varð vegna áhyggna af heilsu, öryggi og fjár­hag. Á þessa hættu hafa fram­kvæmda­stýrur UN Women og Kvenna­at­hvarfs­ins á Íslandi bent. UN Women vöktu í apríl athygli á því að heim­il­is­of­beldi er útbreiddasta mann­rétt­inda­brot heims en jafn­framt það sem sjaldn­ast frétt­ist af. Slíkt ofbeldi auk­ist á kreppu­tímum því þá magn­ist þörf ger­enda til að leita útrásar fyrir valda- og drottn­un­ar­girnd sína á kostnað fórn­ar­lamba sinna.

„Konur ein­angr­ast með ofbeld­is­hneigðum maka, eru aðskildar frá því fólki og þeim úrræðum sem best gagn­ast þeim. Þetta eru kjörað­stæður fyrir drottnun og ofbeldi fyrir luktum dyrum,“ sagði Phumzile Mlambo-Ngcuka fram­kvæmda­stjóri UN Women, Jafn­rétt­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna, í vor.

[adspot]

Þetta eru slá­andi orð. En þau eru ekki sögð án til­efnis og rök­stuðn­ings. UN Women hafa bent á að fjöldi til­kynn­inga um heim­il­is­of­beldi þre­fald­að­ist í Kína er far­ald­ur­inn stóð sem hæst og útgöngu­bann og aðrar tak­mark­anir voru í gildi. Það jókst um 14 pró­sent í Finn­landi og um rúm­lega 20 pró­sent í Banda­ríkj­unum.

Þetta er ekki tæm­andi listi.

Á Spáni jókst heim­il­is­of­beldi um þriðj­ung. Einnig í Frakk­landi og Singapúr.

Og Ísland er hér ekki und­an­skilið.

Það sem af er ári hefur lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu borist 15 pró­sent fleiri til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi en að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár. Í júní bár­ust 68 til­kynn­ingar.

[links]Heim­il­is­of­beldi er ofbeldi sem ein­stak­lingur verður fyrir af hálfu ein­hvers sem er honum nákom­inn, tengdur eða skyldur. Ofbeldið getur verið lík­am­legt, and­legt, kyn­ferð­is­legt, fjár­hags­legt eða jafn­vel staf­rænt. Þar sem ger­andi og þol­andi tengj­ast á þol­andi oft erf­ið­ara um vik með að slíta tengslum við ger­and­ann og áhrif ofbeld­is­ins verða djúp­stæð­ari.

Sig­þrúður Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stýra Kvenna­at­hvarfs­ins, sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í byrjun apríl að kann­anir sýndu, sem og reynsla ann­arra landa, að í aðstæðum á borð við heims­far­aldur, þar sem ýmsar tak­mark­anir eru settar á athafnir fólks, skap­ist hætta á auknu heim­il­is­of­beldi.

Í sam­tali við Kjarnann nú bendir hún á að aðsókn í Kvenna­at­hvarf­inu end­ur­spegli ekki endi­lega strax þá stöðu sem upp er komin út í sam­fé­lag­inu. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins dvöldu átta­tíu konur í Kvenna­at­hvarf­inu en á sama tíma í fyrra var fjöld­inn 74.

Sig­þrúður minnir á að alltaf sé sveifla í fjöld­anum á milli mán­aða og ára og því ómögu­legt að draga miklar álykt­anir út frá fjölgun milli ára að svo stöddu. Hins vegar hafi tölu­vert fleiri konur komið til við­tals í Kvenna­at­hvarfið í ár en á sama tíma í fyrra án þess að til dvalar í athvarf­inu kæmi. Í fyrra komu 145 konur í við­tal fyrstu sex mán­uði árs­ins en í ár var fjöld­inn 180.

„Góðu frétt­irnar eru þær að fjöldi þeirra kvenna sem fer úr athvarf­inu og aftur heim til ofbeld­is­manns­ins það sem af er ári er ekki að aukast milli ára þrátt fyrir þessar aðstæður í sam­fé­lag­inu,“ segir Sig­þrúður. Í ár hafi 12 pró­sent kvenn­anna snúið aftur til ofbeld­is­manns­ins en í fyrra var hlut­fallið 14 pró­sent. Fyrir fram ótt­að­ist Sig­þrúður að fleiri konur en áður myndu sjá þann eina kost að snúa aftur í aðstæð­urnar en miðað við töl­fræð­ina virð­ist svo ekki vera.

Þegar þær ástæður sem kon­urnar gefa fyrir komu í Kvenna­at­hvarfið eru skoð­aðar sést að í ár eru þær oftar en í fyrra kyn­ferð­is­legt ofbeldi og ofbeldi gegn börnum. „Við erum að vona að ástæðan fyrir því að fleiri konur segi frá ofbeldi gegn börnum sé sú að það hefur verið hamrað á því und­an­farna mán­uði að ofbeldi á heim­ilum sé ofbeldi gegn börnum þó það bein­ist ekki af þeim sér­stak­lega,“ segir Sig­þrúður. „Við vitum þetta auð­vitað ekki en vonum að þetta sé skýr­ingin frekar en að ofbeldi gegn börnum sé að aukast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár