Umhverfis- og auðlindaráðuneytið styrkir Veganúar

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið styrkti Samtök Grænkera á Íslandi um 400 þús­und krónur fyrir Veganúar 2019. Þetta er í fyrsta skipti sem ráðu­neytið styrkir Samtök Grænkera en mark­mið fram­taks­ins er að vekja fólk til umhugs­unar um neyslu dýra­af­urða.

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið veitti Samtökum Grænkera á Íslandi styrk upp á 400 þús­und krónur fyrir Veganúar 2019. Veganúar er áskorun þar sem fólki er hvatt til að neyta ein­göngu vegan fæðis í jan­úar mán­uði. Markmið Veganúar að vekja fólk til umhugs­unar um áhrif neyslu dýra­af­urða og kynna kosti og kynna kosti vegna fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýra­vernd. Þetta er í fyrsta skipti sem ráðu­neytið styrkir Veganúar eða Samtök Grænkera.

Veganúr í fimmta sinn á Íslandi

Íslend­ingum er nú, í fimmta sinn, boðið að taka þeirri áskorun að neyta ein­göngu vegan fæðis í mánuð. Samtök Grænkera standa fyrir fram­tak­inu hér á landi og þau skora á þátt­tak­endur að taka þátt í áskor­un­inni og þannig upp­lifa hversu gef­andi, heilsu­efl­andi og auð­velt það geti verið að neyta ein­göngu vegan fæðis.

Á heima­síðu Veganúar segir að margar og fjöl­breyttar á­stæður liggi að baki þess að fólk á­kveði að taka þátt í Veganúar. Fyrir flesta sé það dýra­vernd en aðrir geri það til að líða betur og minnka um­hverfis­á­hrif sín. Aðrir noti á­skor­un­ina sem ára­móta­heit og nýta þannig mán­uð­inn til að byrja nýtt ár heilsu­sam­lega.

„Veganimsi er lífs­háttur þar sem leit­ast er við að úti­loka og forð­ast, eftir fremsta megni, hag­nýt­ingu og ofbeldi gagn­vart dýrum, hvort sem það á við um fæðu, fatnað, skemmtun eða aðra neyslu,“ segir á heima­síðu Veganúar. [adspot]

Við­burð­ur­inn er hluti af al­þjóð­legri hreyf­ingu sem hófst í Eng­landi árið 2014 og hefur frá því náð til margra landa víða um heim. Síðan hreyf­ingin byrj­aði fyrir fimm árum síðan hafi þátt­tak­endur í Veganúar tvö­fald­ast og í byrjun jan­úar höfðu meira en 250.000 manns í 193 löndum skráð sig, sam­kvæmt frétt á vef Guardian.

Sleppa dýraafurðum til að sporna gegn loftlagsbreytingum 

Umræða um vegan­isma hefur auk­ist tölu­vert hér á landi á síð­ustu árum en í dag eru 21.653 með­limir í Facebook grúpp­unni Vegan Ísland. Grúppan er hugsuð sem umræðu­hópur um vegan­isma á Íslandi og að allir sem hafi ein­lægan áhuga á að ger­ast vegan eða eru það nú þegar séu vel­komnir í hóp­inn. Ein af þremur helstu ástæðum þess að fólk ger­ist vegan er til að hafa jákvæð áhrif á nátt­úr­una, segir á heima­síðu Veganúar. Þetta helst í hendur við að á síð­ustu árum hefur fjöldi rann­sókna verið birtar sem sýna fram á ein af þeim aðgerðum sem talið er að gætu haft úrslita­á­hrif í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar eru breyttar neyslu­venjur fólks.

[links]Í byrjun októ­ber 2018 kom út ný skýrsla loft­lags­sér­fræð­inga á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna þar sem skýrt var frá­ ó­hugn­an­legri ­stöðu er varðar hlýnun jarð­ar. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýna að hita­stig á jörð­unni mun hækka um 1,5 gráðu fyrir 2030 ef ekki er brugð­ist hratt við. Í skýrsl­unni segir að nauð­syn­legt sé að breyt­a því hvernig lönd eru nýtt, hvernig fólk borð­ar, hvernig menn ferð­ast og svo fram­veg­is.

Önnur yfir­grip­mis­mikil rann­sókn á áhrifum mat­væla­fram­leiðslu var birt í vís­inda­rit­inu Nature í fyrra. Nið­ur­staða ­rann­sókn­ar­inn­ar ­sýndi að gíf­ur­legur sam­dráttur í kjöt­neyslu gæti haft úrslita­á­hrif í að halda hættu­legum veð­ur­fars­breyt­ingum í skefjum. Samkvæmt rann­sókn­inni þarf neysla á Vest­ur­löndum á nauta­kjöti að drag­ast saman um 90 pró­sent og auka þarf neyslu á baunum og belg­jurtum fimm­falt. Í rann­sóknin er sýnt fram á land­bún­aður og fram­leiðsla dýra­af­urða veldur ekki aðeins losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá búpen­ingi, heldur einnig eyð­ing skóga, gríð­ar­mik­illi vatns­notkun og súrnun sjáv­ar.

Þessar rann­sóknir sýna að hinn almenni borg­ari geti með breyt­ingum á mat­ar­venjum sínum haft áhrif á kolefn­islos­un. Fjöldi rann­sókna hafa aftur á móti sýnt að erfitt getur verið að fá fólk til að breyta mat­­ar­venj­ur eða ferða­mátum með það að mark­miði að hafa áhrif á umhverf­is­mál. Því hefur verið bent á ábyrgð stjórn­valda í þessum mál­u. Stefna íslenskra stjórn­valda varð­andi kolefn­is­spor mat­væla á Íslandi, allt frá fram­leiðslu til neyslu, er hins vegar óljós.

Stefna íslenskra stjórnvalda varðandi kolefnisspor matvæla óljós

Umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið birti í sept­em­ber á síð­asta ári aðgerða­á­ætlun í loft­lags­mál­u­m. ­Sam­kvæmt heima­síð­u um­hverf­is­ráðu­neyt­is­ins á áætl­unin að vera horn­steinn og leið­ar­ljós um útfærslu á stefnu stjórn­valda í mála­flokkn­um. Í heild voru settar fram 34 aðgerðir í áætl­un­inni, engin af þeim aðgerðum snýr að mat­ar­venjum fólks og hvergi í skýrsl­unni er minnst á vit­und­ar­vakn­ingu um kosti þess að minnka neyslu dýr­af­urða.

Áður en aðgerða­á­ætlun stjórn­valda var birt í sept­em­ber þá stóðst til boða fyrir fólk að senda inn hug­myndir um aðgerðir sem stjórn­völd gæt­u lagst í til að hafa áhrif á kolefn­is­fót­spor Íslands. Sex hug­myndir sneru að ­sam­drætt­i í kjöt­neyslu á Íslandi. Meðal þeirra var hug­mynd um að stjórn­völd myndu hækka skatta á mjólkur og kjöt­vör­ur. Önnur var að styrkja græn­met­is­bændur í þeirra von að hvetja al­menn­ing að neyta meira græn­metis og minnka inn­flutn­ing græn­metis frá­ út­lönd­um. Ein hug­myndin benti á ábyrgð stjórn­valda við að fræða fólk um hvað felst í að breyta mat­ar­venjum sínum og hver afleið­ingar þess yrðu á umhverf­ið. Engin af þessum hug­myndum röt­uðu þó í aðgerða­á­ætl­un­ina.

Fyrsti skipti sem umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið veitir Samtökum Grænkera styrk

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið hefur um ára­bil veitt ýmsum félaga­sam­tökum, sem starfa á verk­efna­sviði þess rekstr­ar­styrki en úthlutað er árlega úr sér­stökum rekstr­ar­styrkja­potti. Í heild veitti ráðu­neytið styrki upp á rúmar 34 millj­ónir til ýmissa sam­taka og verk­efna árið 2018. Meðal þeirra fengu Samtök Grænkera styrk upp á 400 þús­und vegna verk­efn­is­ins „Veganúar – vit­und­ar­vakn­ing um græn­met­is­fæði í jan­úar“. Þetta er í fyrsta skipti sem ráðu­neytið veitir Samtökum græn­kera eða sam­tölum græn­metisæta styrk.

Ofan­greind aðgerða­á­ætlun í loft­lags­málum verður upp­færð í ljósi umsagna sem bár­ust eftir að fyrsta útgáfa áætl­un­ar­innar var birt og mun önnur útgáfa koma út á þessu ári. For­vitni­legt verður að sjá hvort að neysla dýra­af­urða verði á dag­skrá í nýrri útgáfu aðgerða­á­ætl­un­ar­innar. Grein­ar­gerð Loft­lags­ráðs um mark­mið stjórn­valda um kolefn­is­hlut­leysið 2040 mun síðan vera birt í mars á þessu ári. Hall­­dór Þor­­geir­s­­son for­­maður lofts­lags­ráðs og fyrr­ver­andi for­­stöð­u­­mað­­ur­ ­lofts­lagsamn­ing ­Sam­ein­uðu þjóð­anna sagði í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í októ­ber á síð­asta ári, að allar líkur sé á því að neysla dýra­af­­urða verði tekin fyrir í grein­­ar­­gerð Loft­lags­ráð.

Þingmaður Vinstri grænna segir kjötskatt mögulegt næsta skref

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna, birti í gær stöðu­upp­færslu um kosti þess að nota kjöt­skatt sem lið í aðgerðum gegn loft­lags­breyt­ingum. Hann deildi frétt frá The Guardian sem greinir frá því að þing­maður breskra Græn­ingja vilji að breski þingið leggi skatt á kjöt­vörur, með það fyrir augum að minnka losun gróð­ur­húsa­lof­t­eg­unda.

„Áhuga­verð hug­mynd frá þing­manni breskra Græn­ingja. Hér á landi er tóbak skatt­lagt sér­stak­lega, m.a. vegna þess sam­fé­lags­kostn­aðar sem reyk­ingar valda, og kolefn­is­gjald á jarða­efna­elds­neyti er ein af þeim leiðum sem eru not­aðar til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda,“ segir Andrés í færsl­unni.

Í færsl­unni segir Andrés að kannski sé kjöt­skattur rök­rétt næsta skref, bæði til að bregð­ast við áhrif á kjöt­neyslu á heilsu­far en ekki síður sem liður í aðgerðum gegn loft­lags­breyt­ingum af manna­völdum. 

Hann segir að þetta sé eitt­hvað til að melta í Veganúar og bendir á að hægt væri til dæmis að nota skatt­tekj­urnar til að hjálpa bændum að verða kolefn­is­hlut­hlausir, ásamt því væri hægt að styðja bæandur í að taka upp fram­leiðslu á græn­meti og fræða almenn­ing um breytta neyslu­hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár