Telur kjörnum fulltrúum skylt að rýna í hugmyndir um ódýrari Borgarlínu

Bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi vill rýna betur í hug­myndir um ódýr­ari Borg­ar­línu, sem lagðar hafa verið fram að und­an­förnu, svo vilji sveit­ar­stjórna sé skýr í mál­inu. Einnig viðrar hún sér­stakar áhyggjur af rekstr­ar­kostn­aði.

Horft frá Nauthólsvík yfir á Kársnes og að Hamraborg, þar sem Kópavogsbær stefnir á uppbyggingu þéttrar byggðar meðfram væntum borgarlínuleiðum.
Horft frá Naut­hóls­vík yfir á Kársnes og að Hamra­borg, þar sem Kópa­vogs­bær stefnir á upp­bygg­ingu þéttrar byggðar með­fram væntum borg­ar­línu­leiðum.

Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir, bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópavogi, telur að kjörnir full­trúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi skyldu til þess að fjalla um hug­myndir sem þrýsti­hópur sem kallar sig Áhuga­fólk um sam­göngur fyrir alla (ÁS) hefur sett fram um ódýr­ari Borg­ar­línu.

Þetta kemur fram í bókun sem Karen lagði fram á bæj­ar­ráðs­fundi í Kópavogi í fyrra­dag. Í bók­un­inni segir að hún geti ekki tekið undir það mat, sem fram kom í nýlegu bréfi frá fram­kvæmda­stjóra Betri sam­gangna, að ekk­ert sem fram hefði komið kall­aði á breyt­ingar á þeirri stefnu að fjár­fest yrði í hágæða hrað­vagna­kerfi fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið.

Kjarninn sagði frá inn­taki erind­is­ins, sem Davíð Þor­láks­son fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna er skrif­aður fyrir, síð­ustu helgi. Erindið barst frá Betri sam­göngum til stjórnar Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í upp­hafi mán­aðar og er þessa dag­ana að fá kynn­ingu hjá sveit­ar­stjórnum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.[links]

Ástæðan fyrir því að bæj­ar­full­trú­inn seg­ist ekki geta tekið undir það mat sem Betri sam­göngur setja fram og rök­styðja í bréfi sínu, að ekk­ert hafi komið fram sem kalli á breyt­ingar á stefnu um upp­bygg­ingu hágæða almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, er sam­kvæmt því sem fram kemur í bókun hennar sú að enn sé ein­ungis búið að leggja fram frum­drög að fyrstu lotu Borg­ar­línu.

Áhyggjur af rekstrarkostnaði

Einnig kemur fram í bókun bæj­ar­full­trú­ans að „sér­stakar áhyggjur“ skuli hafa af því að ekki sé enn ljóst hver rekstr­ar­kostn­aður Borg­ar­línu verði, né hvort að sveit­ar­fé­lög­unum sé einum ætlað að bera þann kostnað.

[adspot]

Vert er að halda því til haga í þessu sam­hengi að fram hefur komið að áætl­anir geri ráð fyrir að rekstr­ar­kostn­aður almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu auk­ist um 2 millj­arða króna á árs­grund­velli með til­komu Borg­ar­línu og hærra þjón­ustu­stigi í nýju leiða­neti Strætó, sem Borg­ar­línan á að flétt­ast við í áföngum eftir því sem vinnu við sér­rými fyrir borg­ar­línu­leiðir vindur fram.

Vilji sveitarstjórna þurfi að vera skýr

Bæj­ar­full­trú­inn kemur því þó skýrt áleiðis að hún vilji að til­laga ÁS fái frek­ari rýni hjá kjörnum full­trúum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Það er ábyrgð­ar­hluti að fara með fjár­muni almenn­ings. Tillagan sem Áhuga­fólk um betri sam­göngur leggur fram, setur þær skyldur á kjörna full­trúa að þeir fjalli um hana á sínum vett­vangi svo vilji sveita­stjórna sé skýr þessu mik­il­væga máli,“ segir í bókun Karenar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár