Sádí-Arabía reynir að ná tökum á orkuiðnaði Asíu

Olíu­stór­veldið Sádí-Arabía hefur að und­an­förnu stigið stór skref í þá átt, að ná tökum á orku­iðn­aði Asíu. Um 70 pró­sent af olíu­út­flutn­ingi fer nú til Asíu, sem er mikil breyt­ing frá því sem áður var. Lágt olíu­verð gerir Sádí-Arabíu lífið leitt.

Sádí-Arabía er olíu­stór­veldi þrátt fyrir að telj­ast lítil þjóð á mæli­kvarða íbúða­fjöld­ans, með um 30 millj­ónir íbúa, miðað við tölur Alþjóða­bank­ans árið 2014. Landið er það fjórt­ánda stærsta í heim­inum þegar kemur að flat­ar­máli.

Að und­an­förnu hefur ríkið breytt um stefnu í olíu­út­flutn­ingi sínum og veðjar á að meg­in­eft­ir­spurn eftir olíu í fram­tíð­inni, verði í Asíu, þar sem miklar innri breyt­ingar með vax­andi neyslu milli­stéttar og auk­inni alþjóða­væð­ingu við­skipta­lífs muni ýta undir olíu­notkun, á meðan aðrir orku­gjafar vaxi jafnt og þétt á Vest­ur­löndum.

Skuld­bind­ingar um að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda munu ekki stöðva þessa þróun, heldur freka skerpa á mun­inum á milli mark­aða sem eru þró­aðir og síðan þeirra sem telj­ast van­þró­aðir.

Einblína á innviði

Samkvæmt frétt Bloomberg frá því í dag, reyna Sádí-Arabar allt hvað þeir geta til að ná tökum á mark­aðnum í Asíu, meðal ann­ars með því að kaupa upp eign­ar­hluti í félögum sem geta liðkað fyrir við­skiptum og „læst“ við­skipta­vini inni, eins og það er orðað. Þar bein­ast spjótin meðal ann­ars að olíu­hreinsi­stöðvum og öðrum innviðum í olíu­iðn­aði.

Nýlega vakti athygli að olíu­fé­lag Sádí-Arabíu, Saudi Arabian Oil Co., keypti 65 pró­sent hlut í olíu­hreins­un­ar­stöð í Suður-Kóreu, Korea’s Onsan Refinery. Þetta þykja vera dæmi­gerð við­skipti fyrir þá stefnu sem Sádí-Arabía hefur haft í Banda­ríkj­unum á und­an­förnum ára­tugum. Saudi Arabian Oil Co. keypti fyrir þrjá­tíu árum, þegar verð féll hratt og erf­ið­leikar komu fram í olíu­iðn­aði, stóra eign­ar­hluti í þremur olíu­hreinsi­stöðvum í Texas og Louisiana. Þetta reynd­ust árang­urs­ríkar fjár­fest­ingar sem hjálp­uðu til við að efla olíu­við­skipti við Banda­ríkin, og stjórna mark­aðnum.

Bloomberg greinir frá því í dag að Motiva Enter­prises LLC, sem Aramco, dótt­ur­fé­lag hins opin­bera olíu­fé­lags Sádí-Araba, á helm­ings­hlut í, flutti inn 65 millj­ónir tunna af olíu til Banda­ríkj­anna á fyrstu átta mán­uðum þessa árs. Það er um þrefalt meira magn en Exxon­Mobil flutti inn frá Sádí-Arabíu á sama tíma. Lyk­il­at­riði í þessum við­skiptum er sögð ver sú, að hafa hags­muni beggja vegna borðs­ins, og getað þannig fest betur niður við­skipta­sam­bandið og fest það í sessi.

Langt í land ennþá

Um 68 pró­sent af öllum olíu­út­flutn­ingi Sádí-Arabíu fer nú til Asíu, en inn­viða­fjár­fest­ingar Sádí-Arabíu í olíu­iðn­aði í álf­unni, þar sem 60 pró­sent mann­kyns­ins býr (4,4 millj­arðar íbúa), eru samt langt frá því að vera jafn umfangs­miklar hlut­falls­lega, og þær hafa verið í Banda­ríkj­unum á und­an­förnum ára­tugum. Þær fjár­fest­ingar lögðu grunn­inn að miklum við­skipta­hags­munum gagn­vart Banda­ríkj­unum. Um 20 pró­sent af olíu­út­flutn­ingi Sádí-Arabíu eru til Banda­ríkj­anna og Suður-Ameríku, en það er ekki síður við­skipti sem tengj­ast inn­viða­fjár­fest­ingum í Banda­ríkj­unum sem eru mik­il­væg og mikil að umfangi. Heild­ar­virði olíu­út­flutn­ings, miðað við árið 2014, var um 285 millj­arðar Banda­ríkja­dala, sam­kvæmt upp­lýs­ingum OPEC.

Pólitísk spenna og stríðsátök

En staðan er við­kvæm um þessar mundir. Það er ekki aðeins að lágt olíu­verð - fall úr 110 Banda­ríkja­dölum niður í um 40 dali á ein­ungis fimmtán mán­uðum sé miðað við tunnu af hrá­olíu - hafi sært hið ógn­ar­sterka rík­is­ol­íu­fé­lag Sádí-Arabíu, heldur eru stríðs­á­tök, póli­tísk spenna og flóknir við­skipta­hags­munir ann­arra ríkja einnig að setja strik í reikn­ing­inn. Írak, þar sem stríðs­á­tök setja mark sitt á lífið alla daga, á landa­mæri að Sádí-Arabíu ásamt Kúveit, Oman, Jemen, og Jórdan­ínu, og Sýrland er ekki langt undan.

Þetta hefur meðal ann­ars leitt til þess að ríki heims­ins hafa þrýst á Sádí-Araba um að leggja sitt af mörkum til að stilla til friðar á þessu svæði, en talið er að allt að tólf millj­ónir manna séu nú á flótta í nágranna­ríkj­unum, einkum vegna átaka í Írak og Sýrlandi. Sádí-Arabar hafa ekki tekið á móti flótta­mönnum, nema sára­fáum miðað við heild­ar­um­fangið, og hafa ekki sýnt sam­starfsvilja um leggja sitt af mörkum þegar kemur að þessum umfangs­mesta mann­úð­ar­vanda vegna flótta­manna frá seinna stríði. Sam­komu­lag, þar sem Sádí-Arabar skuld­binda sig til að vinna gegn hryðju­verkum, er nýlega frá­gengið, og erfitt að segja til um hver áhrifin af því verða. En mark­miðið er að auka hlut­verk Sádí-Arabíu þegar kemur að því að stilla til friðar.

Þessi staða gerir stöð­una enn snún­ari fyrir Sádí-Arabíu, þó stjórn­völd þar hafi sem fyrr mik­il­vægan stuðn­ing frá við­skipta­löndum sínum, Bret­landi og Banda­ríkj­unum.

Láta átök ekki stöðva viðskiptin

En þrátt fyrir átök, og mikla ref­skák á sviði alþjóða­stjórn­mála, þá hefur tónn­inn verið gefin í við­skipt­unum. Sádí-Arabía ein­blínir nú á að koma sér betur fyrir á mark­aðnum í Asíu. Nýr for­stjóri Aramco, Amir Nasser, hefur það mark­mið að tvö­falda afköstu olíu­hreinsi­stöðva fyrir árið 2025, upp í tíu millj­ónir tunna á dag. Ef það tekst þá myndi það setja Aramco skör framar en Exxon Mobil á heims­vísu, þegar kemur að rekstri olíu­hreinsi­stöðva.

Ein helsta áskorun Sádí-Araba er að koma sér betur fyrir í Kína, en þar hefur rekstur olíu­hreinsi­stöðva að mestu verið á hendi kín­verskra yfir­valda. Aramco hefur sóst hefur því að reka olíu­hreinsi­stöð sem getur afka­stað 260 þús­und tunnum á dag, í grennd við Yunnan, sem er við landa­mæri Laos og Víetnam. En kín­versk stjórn­völd hafa ekki opnað á þann mögu­leika nema að örlitlu leyti.

Bassam Fattouth, fram­kvæmda­stjóri orku­rann­sókn­ar­sviðs Oxford háskóla, segir í við­tali við Bloomberg að eitt helsta vanda­mál Sádí-Arabíu í augna­blik­inu, snúi að því að kín­versk stjórn­völd hafi ekki einka­vætt inn­viði í olíu­iðn­aði ennþá. Innganga á mark­að­inn sé erf­ið­ari fyrir vikið. En gera má ráð fyrir að ef það ger­ist, þá muni ekki líða langur tími þar til Sádí-Arabar verði mættir og til­búnir að styrkja stöðu sína. Tíminn vinnur ekki með þeim, á meðan olíu­verð helst lágt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár