Starfsfólk á útfarastofum: „Hinir látnu birtast í draumum mínum“

„Á einn eða annan hátt kemst ég í gegnum þetta. Ég tek róandi lyf, það er allt og sumt,“ sagði hin 59 ára gamla Svitlana Osta­penko, sem starfar á útfar­ar­stofu í Úkraínu.

Í borg­inni Sumy í norð­aust­ur­hluta Úkraínu gekk útfar­ar­stjór­inn Svitlana Osta­penko fram og aftur á meðan hún bjó hina látnu undir þeirra síð­ustu ferð. Eftir fimm ára starf í útfar­ar­þjón­ust­unni var hún orðin vön því að sjá lík, en sívax­andi fjöldi lát­inna, og þar á meðal ungs fólks sem lést í árásum Rússa, var far­inn að yfir­buga hana. „Dauðinn gerir ekki grein­ar­mun á ungum og gömlum,“ sagði hún grát­andi við AFP.

Á útfar­ar­stofum í Úkraínu starfar fólk sem er sjálft að reyna að lifa stríðið af en verður ítrekað vitni að ofbeld­is­fullum dauðs­föllum í kjöl­far inn­rásar Rússa, sem hófst snemma árs 2022, og ber vax­andi til­finn­inga­lega byrði á sama tíma og það styður syrgj­andi fjöl­skyldur.

Þar að auki hefur heima­bær Osta­penko, Sumy, sem er nálægt landa­mærum Rúss­lands, orðið fyrir sprengju­árásum allan inn­rás­ar­tím­ann. Framlína rúss­neska hers­ins hefur fært bar­dag­ana í allt að 20 kíló­metra nálægð. Íbúar borg­ar­innar ganga hjá án …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár