Formaðurinn stóð í vegi fyrir frumvarpinu

Ekki er ein­hugur innan Sam­fylk­ingar um leiðir að afnámi verð­trygg­ingar. Frumvarp þess efnis hefði löngu verið komið fram ef ekki hefði verið fyrir and­stöðu for­manns­ins, segir þing­maður flokks­ins. Vara­for­maður segir stefnu flokks­ins ekki óskýra.

Þingmenn Sam­fylk­ingar verða að íhuga hvers vegna kjós­endur yfir­gáfu flokk­inn. Stefna flokks­ins varð­andi afnám verð­trygg­ingar gæti verið liður í því. Þetta segir Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar og annar flutn­ings­manna frum­varps um afnám verð­trygg­ingar sem hún lagði fram í gær ásamt Helga Hjörvari þing­flokks­for­manni.

Sigríður Ingi­björg segir að eftir miklar og langar sam­ræður um málið innan þing­flokks­ins hafi þau ákveðið að leggja frum­varpið fram.

„Málið væri löngu komið fram ef ekki hefði verið fyrir and­stöðu for­manns­ins,” segir hún. „En nú er þetta umdeilda mál komið upp á yfir­borðið og við Helgi að bjóða upp á tæki­færi til umræðu um það.”

Sigríður Ingi­björg segir umræð­una um verð­trygg­ing­una lengi hafa staðið yfir innan flokks­ins og að ekki hafi verið ein­hugur um málið. Nú eftir jól hafi hún og Helgi fengið leyfi til að flytja frum­varpið, sem þau og gerðu í gær.

Hvorki Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, né Katrín Júl­í­us­dóttir vara­for­maður segj­ast munu styðja frum­varpið.

Árni Páll sagði í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun að stefna Sam­fylk­ing­ar­innar væri skýr. Flokk­ur­inn vilji afnema verð­trygg­ingu með því að taka upp annan gjald­miðil og að auka vægi óverð­tryggða lána, en ekki afnema verð­trygg­ingu núna.

„Þessir tveir þing­menn eru þeirrar skoð­unar og það er eðli­legt að það rúmist ólíkar skoð­anir innan flokks­ins,“ sagði hann.

Ósammála um aðferðir

Sigríður Ingi­björg tekur undir að ein­hugur sé innan flokks­ins um afnám verð­trygg­ingar, bara ekki leið­ina að henni. Hún segir að þing­menn flokks­ins verði að spyrja sig hvers vegna kjós­endur hafi yfir­gefið Sam­fylk­ing­ing­una, sem er að ítrekað að mæl­ast með mjög lítið fylgi í skoð­ana­könn­unum.

„Frum­varpið er lagt fram af heilum hug og er yfir­lýs­ing okkar Helga um skoðun okkar í þessu máli. Sam­fylk­ingin á að vera opinn flokkur sem sé óhræddur við að taka á þessu grund­vall­ar­at­riði,” segir hún. Aðspurð hvort þetta geri stefnu flokks­ins í mál­inu ekki óskýra gagn­vart kjós­endum telur hún svo ekki vera.

„Sam­fylk­ingin verður að huga að því að kjós­endur mis­skilji ekki stefnu hennar. Og ég held að mörgum af okkar fyrri kjós­endum hafi ekki hugn­ast stefna okkar í þessum málum.”

Allir þingmenn hafi rétt á sinni skoðun

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ingar, tekur undir orð Sigríðar Ingi­bjargar um að ekki sé ein­hugur innan flokks­ins um hvaða leið eigi að fara að afnámi verð­trygg­ingar þó að allir séu sam­mála um að afnema hana.

„En við erum eini flokk­ur­inn sem hefur þó lagt raun­veru­lega af stað í að afnema hana, með við­ræðum við ESB og upp­töku evru,” segir Katrín. „Síðan deilum við um það hvort það dugi að taka á mein­inu sem er und­ir­liggj­andi eða ekki.”

Hún segir þing­menn hafa fullan rétt á að leggja fram alls kyns mál. Þetta til­tekna mál hafi verið rætt í langan tíma. Frum­varpið geri stefnu flokks­ins ekki óskýra, heldur séu þetta bara ólík sjón­ar­mið.

„Þau ákveða að gera þetta og það er þeirra réttur,” segir hún. „Þau geta alveg lagt þetta fram með þessum hætti og standa fyrir það sjálf.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár