Stærsti lífeyrissjóður heims í hremmingum

Japanski líf­eyr­is­sjóð­ur­inn GPIF tap­aði 3,9 pró­sent af heild­ar­eignum sínum á þremur mán­uðum. Hluta­bréf féllu og geng­is­þróun jens­ins var sjóðnum óhag­stæð á sama tíma.

Japanski líf­eyr­is­sjóð­ur­inn GPIF (Japan‘s Govern­ment Pension Invest­ment Fund) tap­aði ótrú­legum fjár­hæðum á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2016, eða sam­tals 52 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 6.100 millj­örðum króna. Ástæðuna má rekja til verð­falls á hluta­bréfum í eigu sjóðs­ins og styrk­ingu jens­ins gagn­vart Banda­ríkja­dal á sama tíma. Þróunin var þessum risa­vaxna líf­eyr­is­sjóði Japana því einkar óhag­felld.

Miklir hagsmunir

Þetta þýðir að 3,9 pró­sent af heildar eigna­safni sjóðs­ins hefur gufað upp á und­an­förnum mán­uðum, að því er fram kom í umfjöllun Bloomberg í morgun. Óhætt er að segja að jap­anska ríkið megi ekki við miklum skakka­föllum, ofan á þá stöðu sem fyrir er. Opin­berar skuldir Japans nema meira 260 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu, og eru óvíða hærri í heim­inum.

Japanska hag­kerfið er hins vegar stórt og áhrifa­mikið í alþjóða­við­skiptum. Það er þriðja stærsta hag­kerfi í heimi á eftir því kín­verska og banda­ríska, en íbúar í Japan eru 130 millj­ónir.

Lítill eða enginn hagvöxtur

Vaxandi vandi líf­eyr­is­sjóða í land­inu, meðal ann­ars vegna þess hve illa hefur gengið að byggja upp hag­vöxt heima fyrir, er nú far­inn að valda stjórn­völdum og fjár­festum miklum áhyggjum, sam­kvæmt Bloomberg.

For­stjóri sjóðs­ins, Norihiro Taka­hashi, sagði í yfir­lýs­ingu í morgun, að hann­G­PIF væri með lang­tíma­sýn í fjár­fest­ingum. Skamm­tíma­sveiflur væru eðli­legar, en það væri samt krefj­andi fyrir sjóð­inn að ná ásætt­an­legri ávöxtun í núver­andi árferði.

Sjóð­ur­inn er mik­il­vægur japönsku efna­hags­lífi, en um 60 pró­sent eigna hans er í hluta­bréfum og skuld­bréfum á japönskum mark­aði. Um 25 pró­sent er í erlendum eignum, og afgang­ur­inn að mestu í skuldum erlendra rík­is­sjóða.

Gengissveiflur hættulegar fyrir Japan

Geng­is­sveiflur jens­ins eru því mik­ill áhættu­þáttur fyrir sjóð­inn og það sama má segja um hag­vöxt heima fyrir en hann hefur árum saman verið lít­ill, og vaxta­stig ýmist við núllið eða nei­kvætt. Taka­hashi segir von­ast til þess að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn jap­anski muni rétta úr kútnum á síð­ari hluta árs­ins, en erfitt er þó að spá fyrir um slíkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár