Kauphöllin vill að Íslandsbanki og Landsbankinn verði boðnir út

Kauphöllin telur að hags­munum ríkis­sjóðs og fyr­ir­tækja sé best borgið með því að stærstum hluta banka­kerf­is­ins sé komið í dreift eign­ar­hald breiðs hóps fjárfesta. Kaup­höllin telur að beina ætti útboð­inu bæði að inn­lendum og erlendum fjár­festum.

Kauphöllin álítur að hags­munum ríkis­sjóðs, heim­ila og fyr­ir­tækja sé best borgið með því að stærstum hluta banka­kerf­is­ins sé komið í dreift eign­ar­hald breiðs hóps fjárfesta. Að mati Kaup­hall­ar­innar væri besta leiðin til að tryggja dreift eign­ar­hald nokkur útboð, yfir ákveðið ára­bil, sem beint væri bæði að inn­lendum og erlendum fjárfestum í aðdrag­anda og kjölfar skráningar á markað. Þetta kemur fram í umsögn Kaup­hall­ar­innar um Hvítbók um fjár­mála­kerfið.

Hægt að ná aukinni samkeppni meðal banka með skráningu og sölu þeirra til dreifðs hóps fjárfesta

„Hvergi í þeim ríkjum sem við viljum bera okkur saman við á ríkið stóran hluta í banka­kerf­inu. Í þeim löndum sem ríkið hefur fengið banka í fangið í kjölfar áfalla hefur verið unnið að því að losa um það eign­ar­hald. Líkt og í þeim löndum verður þó að gera ráð fyrir að það geti tekið nokkurn tíma. Til að hámarka verð­mæti eign­ar­hluta ríkis­ins er æski­legt að fyrir liggi skýr áætlun um sölu, mark­mið og leið­arlýsing á söluferl­inu.“ segir í umsögn Kaup­hall­ar­innar.

[links]Í umsögn kaup­hall­ar­innar segir að skrán­ing bank­anna á markað hafi margs­konar kosti en með skrán­ing­unni er tryggð fylgni við reglur um sölumeð­ferð. Ákvæði laga um sölumeð­ferð eign­ar­hluta ríkis­ins í fjármálafyr­ir­tækjum kveður á um að áhersla skuli lögð á opið söluferli, gagn­sæi, hlut­lægni og hag­kvæmni. Að mati Kaup­hall­ar­innar er útboð sam­hliða skráningu á markað eins opið og gagn­sætt ferli og kostur er á. Með almennu útboði er leitað til stærsta mögulega mengis fjárfesta sem stuðlar að því að hámarks­verð fáist fyrir þann eign­ar­hlut sem er til sölu.

Kaup­höllin segir að útboð og skráning Arion banka í Nasdaq kaup­hall­irnar á Íslandi og í Stokkhólmi á síðast­liðnu ári hafi tek­ist afskap­lega vel og að það sé góð vísbend­ing um hvers væri að vænta ef sama leið væri farin við sölu á hlutum ríkis­ins í Íslands­banka og Lands­bank­anum. Að mati Kaup­hall­ar­innar þyrfti sterk rök til þess að ann­ari aðferð­ar­fræði yrði beitt við sölu hluta í rík­is­bönk­unum tveimur.

Í Hvítbókinni er nefnt að bein sala á stórum eign­ar­hlut til erlends fjármálafyr­ir­tækis gæti stuðlað að auk­inni sam­keppni með til­heyr­andi ábata fyrir neyt­endur og samfélagið í heild en að mati Kaup­hall­ar­innar mætti allt eins ná fram auk­inni sam­keppni meðal banka með skráningu og sölu þeirra til dreifðs og fjölbreytts hóps fjárfesta. Jafn­framt segir í umsögn­inni að líklegt sé að skráning bank­anna gæti aukið sam­keppni í fjármálakerf­inu í heild sinni.[adspot]

Skráning bankanna forsenda þess að hlutabréfamarkaðurinn nái hæsta gæðaflokki

Í umsögn­inni segir að skráning beggja bank­anna á íslenskan hluta­bréfamarkað sé að öllum líkindum for­senda þess að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn nái í hæsta gæða­flokk alþjóðlegra vísitölufyr­ir­tækja í náinni framtíð. Slík flokkun myndi styrkja til muna stöðu hluta­bréfamark­aðar sem fjármögnun­ar­vett­vangs fyrir íslensk fyr­ir­tæki, enda megi gera ráð fyrir því að hún hefði afger­andi áhrif á þátttöku erlendra fjárfesta á mark­aðnum.

Að lokum segir í umsögn Kaup­hall­ar­in­anr um Hvít­bók­ina að ef farnar verði þær leiðir sem nefndar eru í Hvít­bók­inni til að efla íslenskan verð­bréfa­markað, að teknu til­liti til fram­an­greindra ábend­inga Kaup­hall­ar­innar, ásamt sölu á hlutum í bönkunum og skráningu þeirra á hluta­bréfamarkað, þá gæti það leitt til þess að íslenskur hluta­bréfamark­aður yrði settur í flokk með þeim mörkuðum sem fremst standa áður en áratugur er lið­inn.

Samkvæmt Kaup­höll­ini gæti það haft í för með sér ger­breytta aðstöðu íslenskra fyr­ir­tækja til fjármögnunar, sérstak­lega meðal alþjóðlegra fjárfesta. Jafn­framt gæti það aukið mark­tækt sam­keppni í íslensku fjármálakerfi, samfélag­inu öllu til heilla. Kauphöllin hvetur því til þess að taf­ar­laust verði ráðist í nánari útfærslu á fram­an­greindum leiðum með það fyrir augum að setja fram aðgerðaáætlun um að koma íslenskum hluta­bréfamark­aði í fremsta flokk á kom­andi árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár