Mikið velti á áhættudreifingu lífeyrissjóðanna

Breytt ald­urs­sam­setn­ing þjóða og áhrif hennar á líf­eyr­is­sjóða­kerfið eru á meðal þess sem fjallað er um í nýrri skýrslu fram­tíð­ar­nefndar for­sæt­is­ráð­herra. Að mati nefnd­ar­innar er mik­il­vægt að íslenskum líf­eyr­is­sjóðum tak­ist vel til í áhættu­dreif­ingu.

Ald­urs­sam­setn­ing íslensku þjóð­ar­innar mun breyt­ast með sífellt fleira fólki í eldri lögum sam­fé­lags­ins. Til að mæta þeirri breyttu ald­urs­sam­setn­ingu er mik­il­vægt að vel tak­ist til við áhættu­dreif­ingu í líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Meðal ann­ars með erlendri fjár­fest­ingu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu fram­tíð­ar­nefndar.

Smáar breytingar í nútíð geti dregið úr stórum breytingum í framtíðinni

For­sæt­is­ráð­herra skip­aði fram­tíð­ar­nefnd um áskor­anir og tæki­færi vegna tækni­breyt­inga í júní 2018. Nefndin er skipuð ell­efu þing­mönnum og er for­maður nefnd­ar­innar Smári McCarthy. Fram­tíð­ar­nefndin er eins­konar til­raun til að fá þing­menn til að hugsa á lengri skala en í kjör­tíma­bilum

Fyrsta skýrsla nefnd­ar­innar er komin út og fjallar hún um þróun íslensk sam­fé­lags til næstu 15 til 20 ára með áherslu á atvinnu-, umhverfis-, byggða- og lýð­fræði­þætti og áhrif þeirra á tekju- og útgjalda­þróun rík­is­ins.

Fram kemur í skýrsl­unni að fram­tíð­ar­nefndin telji mik­il­vægt að stjórn­völd taki mið af nið­ur­stöðum skýrsl­unnar við stefnu­mótun og laga­setn­ingu á kom­andi árum, með hlið­sjón af því að smáar breyt­ingar í nútíð geti dregið úr þörf á stórum breyt­ingum í fram­tíð­inni.[adspot]

Íslendingar eru að eldast

Í skýrsl­unni segir að gera megi ráð fyrir miklum breyt­ingum á næstu árum. Þar á meðal í ald­urs­sam­setn­ingu íslensku þjóð­ar­innar. Íslend­ingar séu að eld­ast og mun hlut­fall ein­stak­linga á vinnu­mark­aði fara lækk­andi. Fólki eldra en 70 ára muni fjölga mun hraðar en fólki á aldr­inum 20 til 70 ára og að fólki undir 20 fjölga hægar.

Öldrun þjóða hefur marg­vís­leg áhrif á útgjöld hins opin­bera. Aukinn heild­ar­kostn­aður við alla þætti öldr­unar á alþjóða­vísu, þar með talið heil­brigð­is­þjón­ustu, er áætl­aður um 2 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2060.

Þá kemur fram í skýrsl­unni að hlut­falls­lega mikil atvinnu­þátt­taka á vinnu­mark­aði í Evrópu hafi getað að ein­hverju leyti vegið upp á móti hækkun ald­urs á vinnu­mark­aði. Hins vegar sé talið að eftir árið 2021 muni fjöldi á vinnu­mark­aði byrja að falla og þar með auk­ist þrýst­ingur á líf­eyr­is­kerfin í Evrópu.

„Breytt ald­urs­sam­setn­ing þjóð­ar­innar, ásamt breyt­ingum á flæði fólks milli landa, skapar sam­fé­lags­legar áskor­anir sem þarf að leysa. Í þessum breyt­ingum fel­ast einnig mikil tæki­færi sem þarf að nýta mark­visst,“ segir í skýrsl­unni.

Lífeyrissjóðakerfið skapi Íslandi sérstöðu

Í skýrsl­unni segir að íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið skapi Íslandi mikla sér­stöðu við að mæta breyttri ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar. Líf­eyr­is­sjóða­kerfið byggi á traustum grunni þar sem lögð sé áhersla á lang­tíma­vöxt kerf­is­ins og traust á milli kyn­slóða.

Samkvæmt skýrsl­unni mun íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið áfram byggja á þremur meg­in­þáttum. Í fyrsta lagi skyldu­að­ild allra starf­andi manna að líf­eyr­is­sjóðum, í öðru lagi fullri sjóð­söfnun, í þriðja lagi sam­trygg­ingu sjóð­fé­laga vegna ævi­langra eft­ir­launa sem einnig veitir þeim og fjöl­skyldum þeirra trygg­ingu fyrir tekju­missi af völdum orku­taps og and­láts.

Jafn­framt segir í skýrsl­unni að söfn­un­ar­sjóðslíf­eyr­is­kerfið hér á landi sé lík­legra til að draga úr kostn­aði rík­is­ins til lengri tíma ólíkt gegn­um­streym­is­kerfum sem finna má í ýmsum ESB-ríkjum. 

Tekjur af fjárfestingum í gegnum lífeyrissjóði

Aftur á móti segir í skýrsl­unni að mikið velti á því að vel tak­ist til við áhættu­dreif­ingu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna, þar á meðal með erlendri fjár­fest­ingu, sér­stak­lega að teknu til­liti til smæðar íslenska hag­kerf­is­ins og áhættu í rík­is­fjár­málum til lengri tíma.

Samhliða öldrun þjóðar þá fjölgar líf­eyr­is­út­greiðslum á hverjum tíma og sam­kvæmt skýrsl­unni verða líf­eyr­is­út­greiðslur meiri en iðgjöld frá miðjum næsta ára­tug. Þó að ríkið muni hafa auknar tekjur af skatt­lagn­ingu líf­eyr­is­tekna þá sé jafn­framt ljóst að kostn­aður mun fara vax­andi.

Einnig kemur fram í skýrsl­unni að í fram­tíð­inni muni vax­andi hluti þjóð­ar­innar hafa tekjur af fjár­fest­ingum og þá aðal­lega í gegnum líf­eyr­is­sjóði en minnk­andi hluti mun hafa tekjur af vinnu.

Sjálfvirknivæðing muni allt að fjórfaldast

Í skýrsl­unni er fjallað um fjöl­marga aðra áhrifa­þætti sem munu hafa áfram á íslenskt sam­fé­lag á næstu tutt­ugu árum. Þar á meðal aukn­ingu í komu ferða­manna þrátt fyrir tíma­bundna fækkun á þessu ári og fjölgun fólks sem er af erlendu bergi brotið á Íslandi.

Þá segir nefndin að búast megi við að íslensk hug­bún­að­ar­fram­leiðsla styrk­ist og að smá­fyr­ir­tækjum ein­yrkja og starfs­manna í fjar­vinnu fjölgi veru­lega. Jafn­framt muni fram­leiðsla mat­væla í gróð­ur­húsum aukast og sjálf­virkni­væð­ing allt að fjór­fald­ast.

Nefndin telur enn fremur að þegar árið 2040 renni upp þá hafi dreg­ist veru­lega úr nýt­ingu nátt­úru­legrar orku hér á landi og að elstu orku­auð­lindir lands­ins séu jafn­vel að ganga úr sér. Þá kunni fisk­veiðar að hafa dreg­ist saman um allt að þriðj­ung sam­hliða lofts­lags­breyt­ingum.

Lesa má skýrsl­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár