Of stórir hópar hafa lent utangarðs á fasteignamarkaði

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins segir rót vand­ans sem verið sé að takast á við í kjara­við­ræðum liggi í þróun fast­eigna­mark­aðar. Þar hafi stórir hópar verið skildir eftir. En vandi þeirra verði ekki leystir með hækkun launa.

„Fyrir mér hefur það verið aug­ljóst í langan tíma að þegar við horfum inn í þetta kjara­samn­ings­um­hverfi þá sé rótin á þessu, hún liggi fyrst og fremst á fast­eigna­mark­aði.“

Þetta segir Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, i við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur verður klukkan 21 í kvöld.

Þar ræðir hann meðal ann­ars stöðu mála í kjara­við­ræðum, yfir­vof­andi verk­föll, útspil rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir lausn í við­ræðum vinnu­mark­að­ar­ins og launa­hækk­anir rík­is­for­stjóra. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Halldór segir að staðan á Íslandi sé góð en á sama tíma virð­ist hún vera slæm. „Það er mikið róstur framundan á vinnu­mark­aði sem á sér ein­hverjar aðrar und­ir­liggj­andi aðstæður. Eigna­staða við útlönd er jákvæð í fyrsta skipti í langan tíma. Við eigum meiri eignir í útlöndum heldur en skuldir. En á sama tíma sjáum við þegar við horfum inn í heim­ili lands­ins þá virð­ist vera að það sé hluti þar sem standi utan­garðs.“

[adspot]Þar sé þróun fast­eigna­mark­aðar fyrst og síð­ast um að kenna. „Hún liggur þar að það séu of stórir hópar ein­stak­linga og fjöl­skyldna sem hafi lent utan­garðs á fast­eigna­mark­aði. Ekki allir, mik­ill minni­hluti, vegna þess að þeir sem hafa átt fast­eign á þessu tíma­bili hafa séð alveg gríð­ar­lega aukn­ingu á sinni eigna­stöðu yfir þetta tíma­bil. En þeir sem hafa verið á leigu­mark­aði í ótryggu hús­næði og hafa þurft að glíma við erf­iðar afleið­ingar hækk­andi hús­næð­is­verðs og þar af leið­andi leigu­verðs.“

Halldór seg­ist hafa haldið því fram allt frá þvi að yfir­stand­andi deila hófst, og í raun mörgum mán­uðum áður, að lausnin á deil­unni myndi liggja í gegnum rót hans, fast­eigna­mark­að­inn. „Við sjáum það í hendi okkar það sem á sér stað inni í Karphúsi og á samn­inga­fundum Samtaka atvinnu­lífs­ins við öll þessi verka­lýðs­fé­lög er fyrst og fremst karp um kaup og kjör. En við leysum ekki fram­boðs­skort á fast­eigna­mark­aði sem er sann­ar­lega und­ir­liggj­andi rót vand­ans með því að hækka laun. Við leysum þann fram­boðs­skort með því að byggja meira, með því að byggja hag­kvæmar og auka fram­boð af hús­næði á við­ráð­an­legu verði. Allar lausnir sem líta fram hjá þess­ari stað­reynd eru dæmdar til að mis­takast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár