Hver á að lýsa okkur nú?

Jón Kalman Stef­áns­son fjallar um stjórn­málin, veltir fyrir sér hversu vel okkur hefur tek­ist að skapa heið­ar­legt sam­fé­lag og hvað fram­tíðin ber í skauti sér.

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar er þjóð­menn­ingu gert nokkuð hátt undir höfði. Og slík er áherslan, slíkur er áhug­inn, slíkur er vilj­inn að standa við þau orð, að Sig­mundur Davíð lét færa Þjóð­minja­safnið frá mennta­mála­ráðu­neyt­inu og undir for­sæt­is­ráðu­neytið. Að baki þeirri ákvörðun virt­ist per­sónu­legur áhugi Sig­mundar á mála­flokknum vega þyngst, því engin fag­leg rök studdu hana. Kostn­að­ur­inn vel á annað hund­rað millj­ónir, og Þjóð­minja­safnið hálf­gert vand­ræða­barn innan for­sæt­is­ráðu­neytis þar sem, eðli­lega, engin þekk­ing var fyrir á mál­efni þess og innri starf­semi. Snemma á síð­asta ári úthlut­aði for­sæt­is­ráð­herra síðan rúm­lega 200 millj­ónum til ýmissa verk­efna sem tengd­ust minja­vernd, án sam­ráðs við við­kom­andi fag­að­ila; sumum styrkj­unum, sem hlupu á nokkrum millj­ónum, var úthlutað með smá­skila­boðum úr síma ráð­herr­ans. „Bæði þessi mál“, skrif­aði Berg­sveinn Þórsson, for­maður íslenskra safna og safnamana, „vekja upp spurn­ing um fram­tíð safna, starfs­um­hverfi þeirra og fag­leg vinnu­brögð.“

Vel stæð en veruleikafirrt þjóð?

Við erum fámenn en efnuð þjóð, búum að miklum auð­lindum í hafi, jarð­varma, fall­vatni, menn­ingu, síð­ustu árin hefur straumur ferða­manna þyngst ákaf­lega og tekj­unar af þeim orðnar veru­legar. Allar ytri aðstæður til fyr­ir­myndar, og góður meiri­hluti lands­manna ein­huga um að hér eigi að ríkja jöfn­uður, að sam­fé­lagið dragi dám af nor­ræna vel­ferða­kerf­inu, með öfl­ugu heil­brigð­is­kerfi þar sem allir hafi jafnan aðgang, og að hér skuli ríkja fag­mennska í öllu.

Und­an­farin miss­eri hafa verið með ein­dæmum góð fyrir sjáv­ar­út­veg­inn, stóru fyr­ir­tækin skila svim­andi gróða, á sama tíma er heil­brigð­is­kerfið þó á öruggri nið­ur­leið, aðstaðan á Land­spít­al­anum ekki boð­leg meðan einka­rekst­ur­inn styrk­ist og hinir efna­meiri fá mun betri þjón­ustu en aðrir. „Vel stæð þjóð með afgang á fjár­lögum“ skrifar Eng­il­bert Sig­urðs­son, pró­fessor í geð­lækn­is­fræði, yfir­læknir lækna­deild Háskóla Íslands og geðsviði Land­spít­al­ans, „á ekki að sætta sig við heil­brigð­is­kerfi sem sífellt berst í bökkum.“ Eng­il­bert bendir á að heil­brigð­is­kerfið, þar með þjón­ustan, hafi skerst tölu­vert á und­an­förnum árum, og að við nálg­umst hættu­mörkin.

Eldri kona sem ég þekki, nýhætt að vinna eftir að hafa unnið af trú­festu ýmis verka­manna- og umönn­un­ar­störf í hálfa öld, þarf að fara í augn­steina­skipti. Heim­il­is­lækn­ir­inn tjáði henni að það væri allt að tveggja ára bið eftir aðgerð, nema, bætti lækn­ir­inn við, þú eigir nokkur hund­ruð þús­und krónur á lausu: Þá kemstu að eftir örfáar vikur.

Þetta er sam­fé­lagið sem við búum við.

Íslenskt lýð­veldi verður 73 ára þegar næsta rík­is­stjórn tekur við völdum. Við höfum því haft rúma sjö ára­tugi til að byggja upp gott sam­fé­lag að nor­rænni fyr­ir­mynd, þar sem jöfn­uður og fag­mennska ríkir.

Hið unga fólk sem nú stjórnar land­inu, Sig­mundur Davíð, Bjarni, Vigdís Hauks­dóttir og fleiri, er óhrætt við að stíga fast til jarðar í yfir­lýs­ingum, fljót að finna söku­dólga. Vigdís finnur fjár­muni til bjargar heil­brigð­is­kerf­inu hjá öryrkjum og skattsvik­urum, Sig­mundur segir að íslenska þjóðin sé veru­leikafirrt komi hún ekki auga á hversu vel rík­is­stjórn­inni gangi að stjórna land­inu. Þetta sama unga fólk hefur lækkað auð­legð­ar­skatt og veiði­gjöldin, afnumið raf­orku­skatt­inn og komið þannig til móts við fyr­ir­tæki á borð við Rio Tinto: þessi þrjú for­gangs­mál þeirra kosta rík­is­sjóð um 15 millj­arða á ári. Það má vinna krafta­verk í heil­brigð­is­kerf­inu fyrir þá upp­hæð. Vigdís nefnir það aldrei, ekki heldur Sig­mundur, hvað þá Bjarni.

Það er hættulegt að borða íslenskt kjöt

Íslenskt lýð­veldi verður 73 ára þegar næsta rík­is­stjórn tekur við völdum. Við höfum því haft rúma sjö ára­tugi til að byggja upp gott sam­fé­lag að nor­rænni fyr­ir­mynd, þar sem jöfn­uður og fag­mennska ríkir.

En okkur hefur mis­tek­ist.

Spilling sam­fé­lags­ins, frænd­hyglin, slá­andi völd hags­muna­afla, van­megn­ugir stjórn­mála­menn, veik­burða fjöl­miðlar: allt þetta blasti átak­an­lega við okkur í kjöl­far hruns­ins. En þá virt­ist líka skýr vilji hjá þjóð­inni til að bæta úr: fimm árum síðar kusum við hins vegar Fram­sókn­ar­flokk­inn, leiddan af þjóð­ern­issinn­uðum Sigmundi Davíð með stór­yrt lof­orð um betri tíma, og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, leiddan af Bjarna Bene­dikts­syni, með sára­lít­inn vilja til breyt­inga.

Fram­sókn­ar­menn spil­uðu mjög á þjóð­rækn­ina í kosn­inga­bar­átt­unni; þeir ætl­uðu til að mynda með kylfu og hagla­byssu á fund erlendra aðila sem þeir upp­nefndu „hrægamma“, en var ólíkur hópur fólks sem varð inn­lyksa með eignir á Íslandi. Und­ir­liggj­andi þau skila­boð að útlend­ingar væru vondir, þeir stæðu í vegi fyrir að allt yrði gott hér á ný. Andúð, ótti eða tor­tryggni gagn­vart útlend­ingum kom víðar fram en í fjár­málum, því minnst í tvígang full­yrti Sig­mundur Davíð, og núver­andi umhverf­is­mála­ráð­herra tók undir, að það væri hættu­legt fyrir Íslend­inga að borða útlent kjöt.

Hvers­vegna er í lagi að æðsti valda­maður Íslands tali þannig? Afhverju reis þjóð­fé­lagið ekki á fætur og mót­mælti? Hvers­vegna kröfð­ust fjöl­miðlar þess ekki að hann drægi orð sín til baka? Orð sem lýsa maka­lausri þröng­sýni, andúð og ótta gagn­vart umheimnum, en líka þeirri skoðun að Ísland sé á ein­hvern hátt æðra, Íslend­ingar fremri – stef sem fóstri hans, for­seti Íslands, spil­aði ósjaldan fyrir hrun. Hvers­vegna má æðsti maður lands­ins daðra við þjóð­ern­is­fas­isma án þess að þurfa að gjalda fyrir?

Kannski vegna þess að við erum vön bull­inu, og búumst ekki við að valda­menn lands­ins vinni að fag­mennsku?

Gerum ráð fyrir að frænd­hyglin ráði ríkjum.

Eða hvers­vegna reis þjóðin ekki upp í reiði þegar Sig­mundur og Bjarni létu það vera sitt alfyrsta verk að lækka skatta á auð­menn, sem þeir sjálfir til­heyra, og veið­gjöldin á útveg­inn, þrátt fyrir að við hefðum þeirra eigin orð fyrir að rík­is­sjóður stæði illa og nú þyrfti að skera niður?

Var það vegna þess að við gerðum hvort sem er ráð fyrir að þeir störf­uðu fyrst fyrir auð­stétt­ina og hags­muna­öflin, síðan þjóð­ina?

Vegna þess að við höfum gefið það upp á bát­inn að íslenskt sam­fé­lag öðlist þá festu, fag­mennsku og gegn­sæi sem hefur í ára­tugi verið við lýði í þeim löndum sem við berum okkur saman við, og þess­vegna flýr unga, mennt­aða fólkið landið, það hefur misst til­trú á sam­fé­lagið?

Fyrr á öldum var hungrið, vos­búðin og íhalds­semin okkar skæð­asti óvinur. Nú er það skortur á fag­mennsku, þar með stöð­ug­leika.

Íslenskt samfélag er hamstur

Það er eitt­hvað átak­an­lega tákn­rænt við það, að Þjóð­minja­safnið, safn þjóð­ar­innar – þar sem for­tíð okkar býr – hafi orðið fórn­ar­lamb hins algera skorts á fag­mennsku. Fært á milli ráðu­neyta, með miklum til­kostn­aði, ein­göngu vegna per­sónu­legs áhuga for­sæt­is­ráð­herr­ans. Ég veit af fólki sem hefur keypt sér kampa­víns­flösku til að opna þegar Sig­mundur Davíð fer frá völdum. Ekki mun ég gráta þá brott­för, en Sig­mundur, með sín þjóð­ern­issinn­uðu, gam­al­dags við­horf, sinn grímu­lausa pop­u­l­isma, og hinir ungu ráð­herra hans sem haga sér eins og gamlir, frekir hrepp­stjórar, eru ein­fald­lega afurð þess sam­fé­lags sem við sjálf berum ábyrgð á. Fyrr á öldum var hungrið, vos­búðin og íhalds­semin okkar skæð­asti óvinur. Nú er það skortur á fag­mennsku, þar með stöð­ug­leika. Íslensku lýð­veldi var hróflað upp í flýti í júní­mán­uði 1944, meðan heim­ur­inn brann, Danir varn­ar­lausir undir hæl nas­isma. Við slógum upp veislu meðan millj­ónir dóu. Og eftir þá veislu er eins og við höfum aldrei litið við, bara ætt áfram, með gamla, danska stjórn­ar­skrá upp á vas­ann. Íslenskt sam­fé­lag eins og hamstur inni í hjóli, hamstur sem telur sig vera á mik­illi ferð, en er alltaf á sama stað. Orkan sem hann fram­leiðir fer í drífa áfram eigin neyslu, og lýsa upp banka­hvelf­ingar kvóta­veld­is­ins og ann­arra efna­manna.

Núver­andi rík­is­stjórn á eftir að sitja að völdum í eitt og hálft ár. Við vitum ekki hvaða flokkar mynda næstu stjórn, en það virð­ist ekki ólík­legt að víg­reifir Píratar kom­ist í odda­stöðu með mik­inn vilja til að umturna öllu. Gott og vel, kannski eigum við bara að gefa þeim tæki­færi. En í hrifn­ingu okkar á Pírötum krist­all­ast höf­uð­vand­inn í íslensku sam­fé­lagi þar sem hver ný rík­is­stjórn breytir stóru og smáu eftir sínu höfði, þeim hags­muna­öflum sem standa á bak við hana, eða per­sónu­legu áhuga­sviði hvers ráð­herra fyrir sig. Hér vantar allan botn og þess­vegna vitum við tæp­ast til hvaða dags við munum vakna á morgun. Vitum ekki hvort Land­spít­al­inn verði sveltur, lífi efna­minni sjúk­linga stefnt í hættu meðan einka­geir­inn bólgnar út, höfum ekk­ert um það að segja hvort þeir sem græða ævin­týra­lega á sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar greiði sann­gjörn gjöld eða ekki, höfum ekki hug­mynd um hvort við vöknum upp við nýja stjórn­ar­skrá eða ekki, hvort Rík­is­út­varpið verði lagt niður eða Sig­mundur Davíð gerður að útvarps­stjóra.

En kom­ist Píratar í odda­stöðu í næstu rík­is­stjórn, verður mörgum nýjum hug­myndum hrint í fram­kvæmd. Núver­andi stjórn­ar­flokkar, með hags­muna­öflin og gríð­ar­legt fjöl­miðla­veldi á bak við sig, munu ham­ast gegn öllum breyt­ingum, ala á ósætti, tor­tryggni, kom­ast aftur til valda vorið 2021 – og taka til við að aft­ur­kalla ákvarð­anir Pírata.

Á meðan höm­umst við inni í hjól­inu okkar, muldr­andi ljóð­línur sænska skálds­ins: „Segið, sér­fræð­ingar í myrkri/hver á að lýsa okkur nú?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár