Hækkun barnabóta kostar tvo milljarða, en ekki fimm eins og ríkisstjórnin hélt fram

Fyrir lá að skerð­ingar vegna launa­hækk­ana myndu skerða barna­bóta­greiðslur um þrjá millj­arða í ár ef skerð­ing­ar­mörk yrðu ekki hækkuð. Rík­is­stjórnin taldi þá þrjá millj­arða með þegar hún sagð­ist vera að efla barna­bóta­kerfið um fimm millj­arða.

Á mánu­dag kynnti rík­is­stjórnin nokkrar aðgerðir sem hún ætl­aði að grípa til sem áttu á liðka fyrir kjara­samn­ings­gerð og hjálpa lág- og milli­tekju­hópum í sam­fé­lag­inu. Ein stærsta aðgerðin var kerf­is­breyt­ing á barna­bóta­kerf­inu.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði þar að verið væri að ein­falda kerfið með því að draga úr skerð­ingum og með því að lækka jað­ar­skatta af völdum barna­bóta. Teknar yrðu upp sam­tíma­greiðslur barna­bóta sem þýða að þær fara að greið­ast í síð­asta lagi fjórum mán­uðum eftir að barn fæð­ist í stað þess að bíða þurfi fram að næstu ára­mótum til að fá barna­bæt­ur. Þessi breyt­ing átti að skila því að fjöl­skyldum sem fá barna­bætur fjölgað um 2.900.

Í kynn­ingu Bjarna kom fram að heild­ar­fjár­hæð barna­bóta yrði fimm millj­örðum krónum hærri en í óbreyttu kerfi á næstu tveimur árum eftir að breyt­ingin tekur gildi.

Á mánu­dag birti Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra færslu á Facebook þar sem sagði meðal ann­ars: „Við eflum barna­bóta­kerfið um 5 millj­arða á næstu tveimur árum og fjölgum fjöl­skyldum sem fá barna­bætur um þrjú þús­und.“

Í gær gerðu Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans, sér mat úr þessum áformum á sam­fé­lags­miðlum. Í færslum á Facebook og Instagram sagði að flokk­ur­inn væri að „efla barna­bóta­kerfið um 5 millj­arða á næstu tveimur árum.“

Töldu með þrjá milljarða sem fjárheimild var þegar fyrir

Í gær­kvöldi var birt minn­is­blað úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á vef Alþingis sem hafði verið sent til efna­hags- og við­skipta­nefndar sama dag. Þar birt­ist önnur mynd af barna­bóta­kerfi næstu tveggja ára en í kynn­ingum ráð­herra, færslum þeirra á sam­fé­lags­miðlum og aug­lýs­ingum Vinstri grænna.

[adspot]Í minn­is­blað­inu segir að á árinu 2023 sé gert ráð fyrir 600 millj­ónum króna í hækkun barna­bóta og á árinu 2024 sé gert ráð fyrir 1,4 millj­arði króna. Því mun þurfa tvo millj­arða króna í auknar fjár­heim­ildir til að full­fjár­magna þær breyt­ingar sem rík­is­stjórnin kynnti á blaða­manna­fundi sínum á mánu­dag, en ekki fimm millj­arða króna.

En hvernig var fimm millj­arða króna talan þá fundin? Í fjár­heim­ildum áranna 2023, 2024 og 2025 voru 13,9 millj­arðar króna ætl­aðir í barna­bætur á ári. Fyrir lá að sú upp­hæð myndi ekki geta gengið út að öllu leyti á næsta ári vegna launa­hækk­ana í ný und­ir­rit­uðum kjara­samn­ingum ef skerð­ing­ar­mörkum yrði haldið óbreyttum, heldur ein­ungis 10,9 millj­örðum króna. Með því að telja með þrjá millj­arða króna á næsta ári sem ann­ars hefðu verið skertir af fjöl­skyldum fær rík­is­stjórnin út fimm millj­arða króna inn­spýt­ingu.

Í áætlun rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir að barna­bætur muni ná til 2.900 fjöl­skyldna sem myndu ekki fá þær í núver­andi kerfi. Þar er, að minnsta kosti að góðum hluta, að ræða fjöl­skyldur sem hefðu verið áfram inni í núver­andi kerfi ef skerð­ingar vegna launa og verð­lags hefðu verið upp­færðar miðað við aðstæður í efna­hags­líf­inu.

Ásakaði forsætisráðherra um að vera óheiðarlega

Þegar þessi staða varð ljós í gær kom hún til umræðu á þingi. Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd, steig í pontu undir liðnum störf þings­ins og sagði að for­sæt­is­ráð­herra hefði verið „að villa um fyrir Alþingi hér í þessum ræðu­stól í gær þegar hún fjall­aði um umfang þeirra auknu fjár­heim­ild til barna­bóta sem rík­is­stjórnin leggur til og bar saman við til­lögur stjórn­ar­and­stöð­unnar. Í gær áttu barna­bætur að hækka um fimm millj­arða en nú liggja breyt­ing­ar­til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar fyrir. Þar er gert ráð fyrir að barna­bætur hækki aðeins um 600 millj­ónir á gild­is­tíma kjara­samn­ings­ins nýja og að þær hækki um rúm­lega tvo millj­arða [...] Þetta er ótrú­lega óheið­ar­legt. Ég er bara hálf miður mín yfir því að hvers konar stjórn­mála­manni hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, er orðin, að óheið­ar­leik­inn sé svona, að svona sé gengið fram gagn­vart þjóð­þing­inu í land­inu. Ég for­dæmi það.“

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, tók í svip­aðan streng og sagði að það væri „ein­fald­lega verið að blekkja okkur þegar for­sæt­is­ráð­herra segir: Það verða settir fimm millj­arðar í barna­bætur á næstu tveimur árum.“

Efling birti í gær við­brögð við aðgerð­ar­pakka stjórn­valda á heima­síðu sinni þar sem stétt­ar­fé­lagið segir barna­bætur rýrna veru­lega að verð­gildi og að skerð­ingar þeirra verði auknar hjá hinum tekju­lægstu í nýja kerf­inu sem Bjarni kynnti. Hækkun barna­bóta dugi ekki til að halda verð­gildi þeirra eins og þær voru við und­ir­ritun lífs­kjara­samn­ings­ins árið 2019. Þeir sem muni fá hækkun barna­bóta í nýja kerf­inu séu einkum lægri milli­tekju­hópar, en sú hækkun dugi þó í fæstum til­vikum til að verð­bæta barna­bæt­urnar að fullu frá 2019. „Flestir munu fá lækkun á kaup­mætti barna­bót­anna. Verð­bólga á næsta ári mun rýra boð­aða hækkun enn frekar. Að kynna þetta sem kjara­bæt­andi fram­lag til kjara­samn­inga fyrir lág­tekju­fólk er því blekk­ing­ar­brella.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár