Nýr iPhone fær nýtt útlit

Stór snert­iskjár þekur fram­hlið nýs iPhone og inn­rauður skanni þekkir and­litið á þér, ef leki frá Apple gefur réttar vís­bend­ingar.

Framhlið iPhone-símans mun líta svona út, ef smámynd sem fylgir kóðanum gefur rétta mynd af nýjustu kynslóð símans.
Framhlið iPhone-sím­ans mun líta svona út, ef smá­mynd sem fylgir kóð­anum gefur rétta mynd af nýj­ustu kyn­slóð sím­ans. Mynd: Samsett mynd

Miðað við það sem sér­fræð­ingar hafa náð að lesa úr kóða nýrrar tækni frá tölvuris­anum Apple má búast við að nýjasta kyn­slóð iPhone-snjall­sím­ans verði búin inn­rauðum and­litsskanna sem þekkir and­lit eig­anda og aflæsir sím­anum aðeins fyrir hann. Um leið verða fingras­kann­inn og lyk­il­orðin óþörf.

Forrit hug­bún­að­ar­ins fyrir aðra græju frá Apple, HomePod, komst í hendur tölv­un­ar­fræð­inga á dög­unum en þar má finna vís­anir í aðra tækni og teng­ingar á milli þeirra. Ekki er vitað hvort for­ritið hafi verið sent út frá Apple af ásettu ráði svo tækni­menn geti haf­ist handa við að hanna við­bót­ar­hug­búnað við HomePod, eða hvort kóð­anum hafi verið lekið í leyf­is­leysi.

Tölv­un­ar­fræð­ing­arnir sem hafa grafið í kóð­anum segja að fram­hlið nýja sím­ans verði þakin snert­iskjá, og að Apple sé þannig að svara keppi­nautum sínum sem hafa stækkað snert­iskjái tækja sinna svo um munar á und­an­förnum miss­erum.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef breska dag­blaðs­ins The Guardian. Gert er ráð fyrir að nýjasta kyn­slóð iPhone verði síðar á þessu ári.

Ekki er enn komið á hreint hvað nýr iPhone mun heita. Snjall­sími Apple varð 10 ára fyrr á þessu ári, eins og Tækni­varpið fjall­aði um í Hlað­varpi Kjarnans, og þess vegna gera græju­fíklar og tækni­á­huga­menn ráð fyrir að sím­inn muni ekki endi­lega fylgja hinu hefð­bundna rað­núm­era­kerfi sím­anna. Þess vegna er ekki víst hvort sím­inn muni heita iPhone 8, iPhone X eða iPhone 10.

Í kóð­anum sem skoð­aður var er að finna smá­mynd af snjall­síma sem er frá­brugðin fyrri iPhone-símum. Á smá­mynd­inni virð­ast allar skjá­brúnir sím­ans hafa verið tak­mark­aðar fyrir utan smá svæði efst þar sem gert er ráð fyrir mynda­vél, skynj­urum og hátal­ara.

Apple hefur kosið að tjá sig ekki um þennan gagna­leka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár