Spekingar spá í opnunarleikinn á HM - Olíuleikur tveggja landa ójafnaðar

Opn­un­ar­leikur heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu fer fram nú á eftir þar sem mæt­ast gest­gjafa­þjóðin Rússar og lið Sádi-Arabíu. Kjarninn fékk tvo fót­bolta- , fjár­mála- og geopóli­tíska sér­fræð­inga til að spá í spilin fyrir þennan fyrsta leik móts­ins.

Opn­un­ar­leikur heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu fer fram nú á eftir þar sem mæt­ast gest­gjafa­þjóðin Rússar og lið Sádi-Arabíu. Kjarninn fékk tvo fót­bolta- og geopóli­tíska sér­fræð­inga til að spá í spilin fyrir þennan fyrsta leik móts­ins, sem er kannski ekki sá mest spenn­andi knatt­spyrnu­lega séð, en út frá alþjóða­stjórn­mála­fræð­inni er hann hins vegar mjög áhuga­verður. Báðir spá síðan fyrir um úrslitin.

Miklir peningar í deildunum

Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur segir löndin tvö koma úr tölu­vert ólíkum áttum. Rússland sé með langa og mikla fót­bolta­hefð á meðan Sádi-Arabía sé í því til­liti ein­hvers konar nýríki. Hann segir Sádana hafa notað pen­inga sína grimmt og keypt mikið af gömlum evr­ópskum stjörnum í þjálfun. „Án þess að hafa skoðað það sér­stak­lega þá reikna ég með að tölu­verður hluti af lands­lið­inu sé ekki fæddur í Sádi-Arabíu heldur verið fluttir þangað inn ungir frá norður Afríku til að spila og fengið rík­is­fang.“

Stefán segir liðin bæði eiga það sam­eig­in­legt að vera í þeirri stöðu að deild­irnar í heima­land­inu greiði það há laun, þvert á gæði deild­anna, sem gerir það að verkum að obb­inn af leik­mönn­unum spili í við­kom­andi landi. Rúss­arnir spili í Rúss­landi og Sádi-Arabara í Saudi-Arabíu. „Það er ekki endi­lega gott fyrir fót­bolt­ann á við­kom­andi stöðum. Leik­menn­irnir eru ekki að fara í sterk­ari deildir og verða þar með betri. Það þarf alla­vega hel­víti fín til­boð til að lokka þá í burtu.“

Lítið gert úr þætti Sádi-Arabíu í stríðsrekstrinum í Jemen

Bæði þessi lönd hafa verið í eld­lín­unni á alþjóða­vett­vangi. Stefán segir Sádana fara miklu meira undir rad­ar­inn, „á meðan að heim­ur­inn var alveg á inn­sog­inu fyrir fáeinum vikum yfir því hvort Rúss­arnir hafi drepið ein­hvern njó­sn­ara, sem nú er allur orð­inn hress­ari og gæti jafn­vel bara skellt sér á leik­inn.“ Hann segir að á móti sé furðu lítið gert úr stríð­inu sem Sádarnir herji nú á Jemen. „Bara í gær gerðu þeir árás eða til­raun til að taka hafn­ar­borg í Jemen sem hefur verið aðal dreif­ing­ar­mið­stöðin fyrir mat og lyf til stórs hluta lands­ins. Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa lýst áhyggjum af því að þetta geti þýtt massífa hung­ursneyð og leit til dauða tug­þús­unda manna. Við gætum verið að horfa upp á svim­andi mann­fall í tengslum við þetta. Þetta hefur verið að mestu talið óáreitt af Vest­ur­löndum. Kannski af því að fólkið í Jemen flýr ekki til Evrópu, það kemst ekki svo langt.“

Stefán Segir Sádi-Arabíu eyða meiru í vopn heldur en Rússland. „Sem er alveg galin stað­reynd. Þeir eru eitt allra stærsta vopna­kaupa­land í heimi og er land sem að er alveg stór­kost­lega ábyrgt fyrir stöðu mála í Mið-Aust­ur­löndum, þá fyrst og fremst sem fjár­magn­andi og upp­runa­land fyrir vopn. Þeir eru ekki bara að safna þessum gríð­ar­legu vopna­búrum í geymslur sínar heldur hafa þeir miðlað þeim áfram í þessum borg­ara­stríðum í grann­ríkj­unum,“ segir Stefán.

Auðvelt pólitískt val

Þeir sem hafi til­hneig­ingu til þess að velja sér lið út frá ein­hverjum póli­tískum for­sendum í HM eiga þægi­legt val fyrir höndum í þessum leik að mati Stefáns.

En hvernig fer þetta? Stefán segir að þegar horft sé á sög­una hafi það lengi verið þannig að opn­un­ar­leikur á HM var ávísun upp á annað hvort marka­laust jafn­tefli eða óvænt úrslit. Í seinni tíð hafi kúr­s­inn breyst örlítið og heima­menn náð að landa sigri. „Ég held að svo verði, Rúss­arnir vinni 2-1 en verð ekki hissa ef þeir verða orðnir smá stress­aðir þegar fyrsta markið kemur loks­ins.“

Sádar tvöfalt ríkari á mann en Rússar

Björn Berg Gunn­ars­son fræðslu­stjóri Íslands­banka og fót­boltaunn­andi segir þennan leik Rússa gegn Sádi-Aröbum mjög áhuga­verðan út frá efna­hags­málum. „Þetta er olíu­leikur. Löndin tvö eru tveir stærstu olíu­út­flytj­endur í heimi. Heild­ar­út­flutn­ingur Sádi-Arabíu á hrá­olíu er 16 pró­sent af heild­inni og 11 pró­sent hjá Rússum. Og þetta eru alvöru upp­hæðir. Útflutn­ingur Sádanna var að and­virði 13.400 millj­arða króna á síð­asta ári og Rússar fluttu út hrá­olíu fyrir 9.300 millj­arða króna. Þetta eru tveir lang­sam­lega stærstu aðil­arnir á mark­aðnum.

Björn segir að sé horft til ann­arra helstu hag­stærða þá sé mun­ur­inn milli ríkj­anna tölu­verður.

„Ef við skoðum lands­fram­leiðslu á hvern íbúða í þessum löndum, sem er reyndar frekar lítið að marka þar sem ójöfn­uð­ur­inn er svo mikil, þá er hún tvisvar sinnum hærri í Sádi-Arabíu en Rúss­landi. Sádar er því tvö­falt rík­ari á mann en Rússar. Þeir eru bara miklu færri og þar er miklu meiri vel­megun. Í Sádi-Arabíu er miklu meiri olía á hvern íbúa en í Rúss­landi. Og Rússar standa alveg hræði­lega í efna­hags­legu til­liti. Þar hefur verið ofboðs­legur sam­dráttur í lands­fram­leiðslu í síð­asta ára­tug­inn. Til dæmis hefur rúblan fallið um helm­ing frá 2014. Myntin ríal­inn í Sádi-Arabíu er hins vegar fastur við dollar þannig að hann er hvað það varðar til­tölu­lega stöð­ugur.

Enginn innflutningur á fólki í Rússlandi

Björn segir einnig áhuga­vert að athuga að fólks­fjöld­inn hefur síð­asta ára­tug­inn staðið í stað í Rúss­landi. „Þeim hefur fjölgað um 1 pró­sent síð­asta ára­tug­inn en Sádi-Aröbum um 31 pró­sent á sama tíma. Þetta er rosa­legur munur. Sádarnir dirfnir áfram af erlendu vinnu­afli en það er nátt­úru­lega eng­inn inn­flutn­ingur á fólki í Rúss­landi.“

Ef löndin eru borin saman við Ísland í efna­hags­legu til­liti þá er hér á landi sjö sinnum meiri lands­fram­leiðsla á mann heldur en í Rúss­landi. „En ef við leið­réttum fyrir kaup­mætti sem að segir í raun­inni þá hversu langt nær hver króna, það er ódýrt að búa í Rúss­landi enda lífs­gæðin minni, þá er Ísland með tvö­falt hærri lands­fram­leiðslu á mann, í stað sjö sinnum hærri og eig­in­lega alveg á pari við Sádana. Munurinn er að hér er miklu meiri jöfn­uður heldur en á báðum stöðum sem skekkir þennan sam­an­burð.

Allt muni ganga með heimaliðinu

Björn spáir Rússum sigri líkt og Stefán. „Vegna þess að þeir eru á heima­velli. Opn­un­ar­leik­ur­inn hefur oft verið „anticlimax“, valdið von­brigðum. Ég held að Rúss­arnir muni vera á þessu móti eins og Suður-Kórea var árið 2002 - að allt gangi með þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár