Mikill samdráttur í umferð á Suðurlandi

Umferðin á Hring­veg­inum dróst saman um 1,7 pró­sent í sept­em­ber en mestur sam­dráttur var á Suð­ur­landi og mæld­ist hann 8,5 pró­sent.

Umferðin á Hring­veg­inum dróst saman um 1,7 pró­sent í nýliðnum sept­em­ber­mán­uði en lítið hefur verið um sam­drátt í umferð­inni á und­an­förnum miss­erum. Þetta kemur fram í frétt Vega­gerð­ar­innar.

Athygli vekur að mestur sam­dráttur er á Suð­ur­landi og mælist hann 8,5 pró­sent. Samkvæmt Vega­gerð­inni má þó reikna með að í heild auk­ist umferðin í ár um 2 til 3 pró­sent á Hring­veg­inum.

Þetta er í annað sinn sem sam­dráttur mælist á milli mán­aða á þessu ári en áður hafði umferðin dreg­ist saman í mars­mán­uði sem á sér þó skýr­ingar sem snúa að tíma­setn­ingu páska, sam­kvæmt Vega­gerð­inni. Við þetta bæt­ist hins vegar minnsta mögu­lega aukn­ing í ágúst síð­ast­liðnum eða aukn­ing sem ein­ungis nam 0,1 pró­sent. Umferðin jókst ein­ungis á einu land­svæði eða á Vest­ur­landi um 1,7 pró­sent.

„Í ljósi þessa má velta því fyrir sér hvort að hag­kerfið sé tekið að kólna, rétt eins og mæl­ingar Seðla­banka og Hagstofu gefa til kynna. Umferða­töl­urnar styðja þá nið­ur­stöðu því eins og umferð­ar­deild Vega­gerð­ar­innar hefur bent á, í þessum fréttum af umferð, að þá virð­ist vera mikið sam­hengi á milli hag­vaxtar og umferð­ar­talna. Þegar grannt er skoða er það kannski heldur ekki skrítið heldur í raun eðli­legt að umferðin fari saman við umsvif í sam­fé­lag­inu og því ekki óvænt að hag­sveiflur mælist í umferð­ar­tölum,“ segir á vef Vega­gerð­ar­innar.

Þriðja fjölmennasta sumarið frá upphafi

Samkvæmt Ferða­mála­stofu var nýliðið sumar það þriðja fjöl­menn­asta frá upp­hafi. Fækkun á milli ára er að mestu bundin við tvo mark­aði, Norður-Ameríku og Bretland á meðan Mið- og Suður-Evrópa heldur nán­ast hlut sínum og fjölgun er frá Asíu. Banda­ríkja­menn voru eftir sem áður fjöl­menn­astir eða 27,8 pró­sent af heild­ar­fjölda.

Lang­flestir heim­sóttu Höf­uð­borg­ar­svæðið eða 89 pró­sent, 81 pró­sent Suð­ur­land, 61 pró­sent Reykja­nes, 57 pró­sent Vest­ur­land, 42 pró­sent Norð­ur­land, 38 pró­sent Aust­ur­land og 16 pró­sent Vest­firði. Þegar svar­endur voru hins vegar spurðir að því í hvaða lands­hluta þeir hefðu gist nefndu 75 pró­sent Höf­uð­borg­ar­svæðið, 55 pró­sent Suð­ur­land, 36 pró­sent Vest­ur­land, 34 pró­sent Norð­ur­land, 28 pró­sent Aust­ur­land, 24 pró­sent Reykja­nes og 10 pró­sent Vest­firði.

Nið­ur­stöður byggja á brott­far­ar­taln­ingum Ferða­mála­stofu og Isavia á Kefla­vík­ur­flug­velli og könnun Ferða­mála­stofu og Hagstofu Íslands sem fram­kvæmd er meðal ferða­manna á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Minnsta aukning frá 2012

Frá ára­mótum hefur umferðin auk­ist um tæp 3 pró­sent og er það minnsta aukn­ing miðað við árs­tíma frá árinu 2012. Mest hefur umferðin auk­ist um Vest­ur­land en dreg­ist mest saman um Aust­ur­land eða 3 pró­sent.

Það sem af er ári hefur umferðin auk­ist í öllum viku­dögum en þó hlut­falls­lega mest á sunnu­dögum eða um 6 pró­sent. Minnst hefur umferðin auk­ist á mánu- og laug­ar­dögum eða um 1,8 pró­sent. Að jafn­aði er mest ekið á föstu­dögum en minnst á þriðju­dögum.

Í frétt Vega­gerð­ar­innar kemur fram að umferð­ar­líkan umferð­ar­deild­ar­innar geri ráð fyrir 4 til 5 pró­sent vexti í umferð­inni í þremur síð­ustu mán­uðum árs­ins. „Ef hag­kerfið er hins vegar að kólna verður það að telj­ast ólík­leg nið­ur­staða og gæti aukn­ingin orðið heldur minni en þau 3,3 pró­sent sem reikni­módel umferð­ar­deildar gerir ráð fyrir. Ef gengið er út frá 0 pró­sent aukn­ingu í næstu mán­uðum verður heildar aukn­ing árs­ins 2,3 pró­sent. Þar af leið­andi mætti gera ráð fyrir að aukn­ingin verði á þessu bili í árs­lok.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár