Bjarni: „Yfirvarp til að réttlæta nýja og hærri skatta“

Bjarni Bene­dikts­son, starf­andi fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að staða rík­is­fjár­mála sé frá hans bæj­ar­dyrum séð betri en áður hafði verið gert ráð fyrir.

Hann gagn­rýnir ummæli Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri-grænna, í fréttum í gær þar sem hún sagði stöðu rík­is­fjár­mála þrengri en búist hafi verið við. „Hvers vegna er fólk sem talar svona ekki látið svara fyrir það hvað átt er við? Getur verið að þetta sé ekk­ert annað en yfir­varp til að rétt­læta nýja og hærri skatta?“

Bjarni tjáir sig um málið á Facebook-síðu sinni. Hann segir að í fjár­mála­á­ætlun og fjár­auka­lögum, sem Alþingi hafi afgreitt á síð­ustu mán­uðum, sé dregin upp skýr mynd af stöð­unni. „Það helsta sem hefur breyst er að nú horfir til þess að skattar og gjöld skili a.m.k. 10 millj­örðum meira til rík­is­ins en áður var áætlað á næsta ári. Á móti voru rétt­indi aldr­aðra og öryrkja aukin tölu­vert undir lok þing­starfa.“

Menn geti því ekki vísað í óvænta verri stöðu rík­is­fjár­mála til að rétt­læta skatta­hækk­anir. „Reyndar er alveg magnað að þegar við erum við hámark hag­sveifl­unnar sé verið að tala um þörf á nýjum sköttum til að auka útgjöld veru­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár