Eignaójöfnuður á miklu hærra stígi en tekjuójöfnuður á Íslandi

Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði, segir að meiri vöxtur á fjár­magnstekjum og tekjum sem stafa af eignum á síð­ustu árum auki á þann ójöfnuð sem ríki hér­lendis.

Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði, segir að meiri vöxtur á fjár­magnstekjum og tekjum sem stafa af eignum á síð­ustu árum auki á þann ójöfnuð sem ríki hér­lendis.

„Þessi aukni eigna­ó­jöfn­uður, sem er á miklu hærra stigi en tekju­ó­jöfn­uð­ur­inn, hann líka býr til fjár­magnstekj­urnar. Þær höfðu vaxið gríð­ar­lega í aðdrag­anda hruns­ins, en detta niður eftir hrun. Svo þegar upp­sveiflan byrjar aftur 2012 þá fara fjár­magnstekj­urnar að aukast og þær eru að skila núna auk­inni tekju­hlut­deild efstu tekju­hópanna umfram aðra, jafn­vel þó að atvinnu­tekjur þeirra hald­ist í hendur við ólíka tekju­hópa. Það hefur verið meiri vöxtur í fjár­magnstekj­unum og öllum eigna­tekjum yfir­leitt á síð­ustu fjórum til fimm árum heldur en vöxtur atvinnu­tekna. Þetta eykur líka á þennan ójöfnuð sem kemur út úr skatt­kerf­inu.“

Þetta segir Stefán Ólafs­son, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem frum­sýndur var síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld.

[adspot]Þar ræðir Stefán þær breyt­ing­ar­til­lögur á skatt­kerf­inu sem hann og Ind­riði H. Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, unnu fyrir Efl­ingu og kynntar voru í síð­ustu viku. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an:

Ekki hafa allir verið sam­mála Stefáni í því að ójöfn­uður ríki á Íslandi, og meðal ann­ars hefur verið vísað í tölur frá OECD og hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins, Eurostat, því til stuðn­ings.

Stefán segir þó ýmis­legt vanta inn í þær tölur, meðal ann­ars um helm­ing af öllum fjár­magnstekjum sem falla til hér­lendis árlega. „Sá hluti tekna er óvenju stór á Íslandi og hann fer fyrst og fremst í efstu hópana. Þær tölur van­meta því svo­lítið ójöfn­uð­inn. En þrátt fyrir það erum við auð­vitað í jafn­ari kant­inum. En við erum samt í dag á mun hærra ójafn­að­ar­stígi en við vorum fyrir 15-20 árum. En flestar aðrar vest­rænar þjóðir hafa verið að fara í átt að auknum ójöfn­uði sem eru þessi áhrif hnatt­væð­ingar, fjár­mála­væð­ingar og allt það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár