Stjórnarmaður RÚV vill að stjórn ræði fréttaflutning um fjárkúgun

Kristinn Dagur Giss­ura­son, sem situr í stjórn RÚV fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins, er óánægður með frétta­flutn­ing frétta­stofu RÚV af fjár­kúg­un­ar­mál­inu og vill að málið verði rætt á næsta fundi stjórn­ar­innar. Í athuga­semd við stöðu­upp­færslu á Facebook tekur hann undir pistil Páls Vil­hjálms­sonar á Mogga­blogg­inu þar sem hann segir RÚV vilj­ugt verk­færi fjár­kúg­ara. „Stjórnin ber nefni­lega ábyrgð á því að RÚV starfi eftir þeim lögum sem um þá stofnun hafa verið sett af Alþingi,“ segir Kristinn Dagur. Hann telur frétta­flutn­ing RÚV af mál­inu óvand­aðan.

Hér má sjá ummæli Kristins Dags í athuga­semd:

Páll Vil­hjálms­son gagn­rýndi í gær frétta­stofu RÚV í pistli á blogg­svæði sínu. Hann telur RÚV leggja sig fram um að beina athygl­inni frá ger­end­unum í mál­inu og gera for­sæt­is­ráð­herra að skúrki. „Blaða­manna­syst­urnar sem reyndu að kúga fé úr fjöl­skyldu for­sæt­is­ráð­herra eru öllum hnútum kunn­ugar í íslenskum fjöl­miðlum. Þeir vita sem er að íslenskir fjöl­miðlar nota nafn­lausar heim­ildir í meira mæli en þekk­ist á byggðu bóli í okkar heims­hluta. Frétta­stofa RÚV er sér­lega óvand­virk að þessu leyti,“ skrifar Páll og vísar í frétt RÚV um málið.



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár