Ellefu prósent vilja Ólaf Ragnar Grímsson áfram sem forseta - 21 prósent vilja Jón Gnarr

Sex af hverjum tíu vita ekki hvern þeir vilja sem næsta for­seta Íslands. Ellefu pró­sent þjóð­ar­innar sem hefur myndað sér afstöðu gagn­vart spurn­ing­unni vilja Ólaf Ragnar Grímsson áfram á for­seta­stóli en 21 pró­sent aðspurðra vilja fá Jón Gnarr í hann. Þetta kemur fram í nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup sem RÚV greinir frá.

Þegar ein­ungis er tekið til­lit til þeirra sem tóku afstöðu til sér­staks fram­bjóð­enda þá kom í ljós að 21 pró­sent vill fá Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóra Reykja­víkur, sem næsta for­seta Íslands. Þá nefndu 17 pró­sent Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna, sem þann sem þeir vilja í emb­ætti for­seta Íslands. Mun fleiri nefndu nöfn þeirra tveggja en nafn Ólafs Ragnars Gríms­sonar, sem mun hafa setið í for­seta­emb­ætti í 20 ár þegar kosið verður á næsta ári. Vert er að taka fram að bæði Jón og Katrín hafa gefið það út að þau sæk­ist ekki eftir því að verða næsti for­seti Íslands.

Jón gerði það afdrátt­ar­laust í pistli í Frétta­blað­inu í mars og sagði ástæð­una meðal ann­ars vera þá að hann vildi ekki standa and­spænis freka kall­inum. Skömmu síðar sagði Katrín frá því í útvarps­þætt­inum Sprengisandi að hún sæi sig ekki fyrir sér í emb­ætti for­seta Íslands.

Ýmis önnur nöfn voru nefnd í könnun Gallups. Um átta pró­sent þeirra sem tóku afstöðu vildu að Þóra Arn­órs­dóttir, sem er nýráðin rit­stjóri Kast­ljóss og bauð sig fram gegn Ólafi Ragnari árið 2012, verði næsti for­seti. Auk þess voru nefnd þau Ragna Árna­dóttir (sex pró­sent), Davíð Oddsson (þrjú pró­sent), Þórarinn Eldjárn (tvö pró­sent) og Kristín Ing­ólfs­dóttir (tvö pró­sent). Alls nefndu 28 pró­sent aðspurðra önnur nöfn og þrjú pró­sent sögð­ust vilja "ein­hverja konu".

Gallup spurði í rúm­lega 1400 manns í net­könnun 19. júní til 1. júlí: Hvern myndir þú vilja sjá sem næsta for­seta Íslands? 55,5 pró­sent svör­uðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár