Velkomin í góðærið

Efna­hags­lífið er á blússandi sigl­ingu.

Það er allt á fullu í íslensku efna­hags­lífi. Kaup­máttur launa er hærri en hann hefur nokkurn tím­ann verið áður, sam­kvæmt launa­vísi­tölu. Einka­neysla jókst um 4,8% í fyrra sam­kvæmt Hagstofu Íslands og því er spáð að hann verði tals­vert meiri í ár. Á fyrsta árs­fjórð­ungi mæld­ist vöxt­ur­inn 5,6%. Íslend­ingar hafa slegið met í útlanda­ferðum og íbúðir hafa ekki selst hraðar síðan 2007. Sömu sögu er að segja af bygg­ing­ar­krönum, sem hafa ekki verið fleiri frá 2007. Flestir grein­endur eru enda sam­mála um að góð­æri sé komið. Kjarninn tók saman nokkur dæmi.

Met í útlandaferðum slegið

Líkt og greint var frá fyrir helgi settu Íslend­ingar met í útlanda­ferðum í júní síð­ast­liðnum. Þá fóru 67 þús­und Íslend­ingar til útlanda í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Útlanda­ferð­irnar höfðu aldrei áður verið eins margar í einum mán­uði frá því að taln­ingar Ferða­mála­stofu hófust, en áður var metið slegið í júní 2007, þegar 54.800 Íslend­ingar fóru til útlanda.

Ferða­mála­stofa telur að ekki sé ólík­legt að Evr­ópu­mótið í fót­bolta hafi haft tals­verð áhrif á töl­urn­ar. „Í því sam­bandi er vert að slá þann varnagla að hugs­an­lega er óvenju algengt að fleiri en eina brott­för sé að ræða hjá sömu ein­stak­ling­um. Slíkt er þó ekki hægt að segja fyrir um með neinni vissu,“ segir Ferða­mála­stofa. Fjöl­margir fóru aftur til Frakk­lands með ýmsum leiðum eftir að Ísland komst upp úr riðli sínum á EM og einnig þegar liðið komst í átta liða úrslit á mót­in­u.

Ef rýnt er nánar í töl­urnar sést að brott­farir Íslend­inga fyrstu sex mán­uði þessa árs voru rétt tæp­lega 254 þús­und tals­ins, meira en nokkuð annað ár frá því að mæl­ingar Ferða­mála­stofu hófust. Árið sem kemst næst þessum fjölda er 2008, en fyrri helm­ing þess árs fóru Íslend­ingar í rétt tæp­lega 230 þús­und utan­lands­ferðir á fyrri hluta árs­ins, örlítið fleiri en árið 2007, þegar það voru tæp­lega 228 þús­und ferðir. Með þessu áfram­haldi fer árið í ár létt með slá fyrra met árs­ins 2007, þegar Íslend­ingar fóru í 469.885 utan­lands­ferðir.

Íbúðir ekki selst hraðar í tæpan áratug

Þá hafa íbúðir á Íslandi ekki selst eins hratt og þær gera nú í tæpan ára­tug, eða frá fyrr­nefndum júní 2007. Ein­ung­ist tekur nú um sjö vikur, eða 1,87 mán­uði, að með­al­tali að selja íbúð­ar­hús­næði miðað við veltu á fast­eigna­mark­aði í apríl. Eina dæmið um hrað­ari veltu á mark­aði var í júní 2007, sam­kvæmt hag­vísum Seðla­banka Íslands.

Þá hefur gengið hratt á fram­boð eigna. Þannig var fram­boð af ­sér­býl­is­eignum á sölu ríf­lega 900 í apríl 2012, en fjöld­inn var kom­inn niður í 320 í apríl á þessu ári. Sömu sögu er að segja af fjöl­býl­is­eign­um. Þær vor­u tæp­lega 1.900 í apríl 2012 en voru um 900 í apríl síð­ast­liðn­um.

Byggingarkranarnir að ná 2007

Ummæli Roberts Z Aliber hag­fræð­ings um bygg­ing­ar­krana á Íslandi fyrir hrun vöktu mikla athygli. Hann sagði að það þyrfti bara að telja kran­ana til að sjá ofþenslu í efna­hags­líf­inu. Samkvæmt sam­an­tekt Braga Fannars Sig­urðs­sonar, sem heldur úti síð­unni visitala.is og heldur utan um gögn um skoð­aða bygg­ing­ar­krana, höfðu 157 bygg­ing­ar­kranar verið skoð­aðir af Vinnu­eft­ir­lit­inu á fyrri helm­ingi þessa árs. Það eru ekki endi­lega allt virkir kranar, en þykir gefa vís­bend­ingu um ástandið. Það eru litlu færri en fyrri hluta áranna 2007 og 2008. Árið 2007 voru 364 bygg­ing­ar­kranar skoð­aðir af Vinnu­eft­ir­lit­inu. Árið 2008 voru þeir 310, en þeim fækk­aði veru­lega á síð­asta árs­fjórð­ungi þess árs, þegar hrunið varð. Árið í fyrra fór yfir árið 2008, með 318 skoð­uðum bygg­ing­ar­krönum, en í ár stefnir í enn meiri aukn­ingu.

Í Morg­un­blað­inu í gær er rætt við Árna Jóhanns­son, for­stöðu­mann bygg­inga- og mann­virkja­sviðs Samtaka iðn­að­ar­ins, og hann segir að þrátt fyrir þessa fjölgun sé upp­bygg­ing í land­inu enn á upp­hafs­stigum. „Þetta er rétt að byrja. Það sem er ólíkt við það sem var á árunum fyrir hrun að upp­bygg­ing inn­viða er ekki hafin af neinu viti. Fyrir utan Þeista­reyki og Búr­fells­virkjun er ekk­ert í gangi hjá hinu opin­bera. Allt var á fleygi­ferð á vegum hins opin­bera fyrir hrun. Það er ekki svo núna. Upp­bygg­ingin er studd af einka­geir­anum.“ Spreng­ingin fyrir hrun hafi einnig verið í íbúð­ar­hús­næði fyrir hrun en það sé ekki enn til­fellið nú.

Tölu­verður fjöldi nýbygg­inga er á skipu­lagi, sér­stak­lega í Reykja­vík, á næstu árum. Hafa verður í huga að upp­bygg­ing af þessu tagi fór nærri því að stöðvast eftir hrun og hefur þörfin því safn­ast upp. Það vantar enn tals­vert upp á að fram­boðið mæti eft­ir­spurn­inni eftir hús­næði, eins og Arion banki kemur inn á í grein­ingu sinni um horfur á fast­eigna­mark­aði.

Fleiri sjónvörp flutt inn en fyrir hrun

Í síð­ustu viku tók grein­ing­ar­deild Arion banka saman áhuga­verðar upp­lýs­ingar um vöru­skipti. Þar kemur meðal ann­ars fram að vöru­inn­flutn­ingur til Íslands á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins svipar mjög mikið til þess sem var á árunum 2006 til 2008. Allir helstu liðir inn­flutn­ings hafa auk­ist frá því að efna­hags­bat­inn hófst á Íslandi, og vöru­inn­flutn­ingur jókst um 48% af raun­virði frá 2010 til 2015.

Þegar rýnt er nánar í tölur um inn­flutn­ing kemur einnig ýmis­legt áhuga­vert í ljós, til dæmis það að fleiri sjón­vörp voru flutt inn á fyrstu fimm mán­uðum þessa árs en árin 2006 og 2008. Tæplega þrettán þús­und sjón­vörp voru flutt inn á þessu ári, 12.888 tals­ins. Sömu sögu er að segja af þvotta­vélum, og inn­flutn­ingur á kæli- og frysti­tækjum er meiri en hann var árið 2008.

Þá voru ríf­lega tíu þús­und fólks­bílar fluttir til Íslands á fyrstu fimm mán­uðum þessa árs, mjög svipað því sem var árið 2006. Munurinn nú er auð­vitað sá að aukn­ing í inn­flutn­ingi bíla er að stórum hluta vegna fjölg­unar ferða­manna sem þurfa fleiri bíla­leigu­bíla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár