Frambjóðendur allra flokka nema Sjálfstæðisflokks vilja virða þjóðaratkvæði um nýja stjórnarskrá

Stjórn­ar­skrár­fé­lagið hefur skorað á tvo efstu menn á listum stjórn­mála­flokka um afstöðu þeirra til nýju stjórn­ar­skrár­innar. Þeir sem hafa svarað hafa allir nema einn svarað ját­andi hvort virða eigi nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Fram­bjóð­endur tíu flokka sem eru í fram­boði hafa svarað ját­andi spurn­ing­unni hvort þing­mönnum beri sið­ferð­is­leg og póli­tísk skylda til að virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem Alþingi boðar til. Eini flokk­ur­inn sem eru í fram­boði sem eiga engan full­trúa sem svarar þeirri spurn­ingu ját­andi eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Þetta kemur fram í áskorun Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins en á vef­síðu félags­ins eru fram­bjóð­endur krafðir svara um afstöðu sína gagn­vart nýju stjórn­ar­skránni.

Kosið um málið 2012

Þann 20. októ­ber 2012 var kosið um til­lögur stjórn­laga­ráðs um nýja stjórn­ar­skrá. Um var að ræða alls sex spurn­ingar en sú fyrsta var hvort við­kom­andi vildi að til­lögur stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá. Alls sögðu 64,2 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði já við þeirri spurn­ingu. Kjörsókn var 49 pró­sent.

Nú, fimm árum síðar, hefur ekki verið sam­þykkt ný stjórn­ar­skrá. Stjórn­ar­skrár­fé­lagið hefur unnið að því að réttur þjóð­ar­innar sem stjórn­ar­skrár­gjafa sé virtur. Hluti af þeirri vinnu er áskor­unin þar sem fram­bjóð­endur eru krafnir svara við ofan­greindri spurn­ingu.

Rúmur helmingur hefur sagt já

Alls hafa 63 af 118 fram­bjóð­endum sem áskor­unin nær til svarað henni ját­andi. Allir fram­bjóð­endur Pírata og Sam­fylk­ingar sem sitja í tveimur efstu sæt­unum á fram­boðs­lista þeirra hafa svarað ját­andi spurn­ing­unni hvort þing­mönnum beri sið­ferð­is­leg og póli­tísk skylda til að virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem Alþingi boðar til. Flestir hjá Vinstri grænum hafa einnig svarað ját­andi eða tíu af tólf og sex af átta hjá Alþýðu­fylk­ing­unni.

Ellefu fram­bjóð­endur Bjartrar fram­tíðar svara áskor­un­inni ját­andi. Tveir fram­bjóð­endur Dögunar hafa svarað ját­andi og aðeins einn hjá Sjálf­stæð­is­flokknum hefur svarað. Brynjar Níelsson svarar neit­andi og er hann einn sem tekið hefur þá afstöðu.

Einn fram­bjóð­andi hjá Mið­flokknum hefur tekið afstöðu, það er Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir. Sömu sögu er að segja hjá Viðreisn þar sem Arnar Páll Guð­munds­son hefur tekið afstöðu. Fimm af tólf hjá Flokki fólks­ins svara ját­andi og tveir af tólf hjá Framsókn.

„Hér gefst almenn­ingi kostur á að spyrja tvo efstu menn á listum stjórn­mála­flokka um afstöðu þeirra til nýju stjórn­ar­skrár­innar og lýð­ræðis. Stjórn­mála­flokk­arnir á Alþingi hafa hunsað vilja kjós­enda í fimm ár. Því er mik­il­vægt að krefja fram­bjóð­endur flokk­anna svars einmitt núna,“ segir á síð­unni.

Þar segir jafn­framt að hlut­verk Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins sé þrí­þætt. Í fyrsta lagi að vinna að því að grund­vall­ar­réttur þjóð­ar­innar sem stjórn­ar­skrár­gjafa sé virtur og í öðru lagi að efla umræðu um stjórn­ar­skrár­mál á Íslandi og um leið vit­neskju almenn­ings um mik­il­vægi stjórn­ar­skrár í íslensku sam­fé­lagi. Í þriðja lagi að fræða og safna saman upp­lýs­ingum um stjórn­ar­skrár­mál og gera aðgengi­legar almenn­ingi.

Fréttin var upp­færð klukkan 13:36 með nýjum upp­lýs­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár