Innsýn í vaxtaturninn

Í fimm til­fellum af átta var Pen­inga­stefnu­nefnd ein­huga um vaxta­á­kvarð­anir. Í hinum þremur til­fell­unum deildi fólk í nefnd­inni um það hvernig ætti að haga vaxta­á­kvörð­un­inni.

Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, Seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Óhætt er að segja að miklir upp­gangs­tímar séu nú í efna­hags­lífi þjóð­ar­innar og er 7,2 pró­sent hag­vöxtur í fyrra ekki síst til marks um það. Í meira þrjú ár hefur verð­bólgan verið undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands, og flestir hag­vísar eru á þá leið að jákvæðir geta talist. Atvinnu­leysi er um þrjú pró­sent og tölu­verð spenna á vinnu­mark­aði vegna vönt­unar á vinnu­afli, einkum í starf­semi í bygg­ing­ar­iðn­aði og ferða­þjón­ustu.

Áfram deilt um vaxtastefnu

Þrátt fyrir þetta hafa deilur um vaxta­stefnu Seðla­banka Íslands ekk­ert minnkað, heldur frekar harnað ef eitt­hvað er. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans ákvarðar vexti en meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent.

Ýmsir hafa kallað eftir því að vextir verði lækk­aðir. Þar á meðal Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og for­ystu­fólk úr atvinnu­líf­inu og verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Ákallið eftir lækkun vaxta náði líka eyrum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, sem sagði í nýlegri yfir­lýs­ingu sinni, vegna úttektar á stöðu efna­hags­mála hér á landi, að tæki­færi væru til lækk­unar vaxta.

Spjótin bein­ast þar að fólk­inu í vaxta­turn­inum, ef þannig mætti að orði kom­ast. Í pen­inga­stefnu­nefnd­inni eru Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þórarinn G. Pét­urs­son, aðal­hag­fræð­ingur, Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, og Katrín Ólafs­dóttir, pró­fessor í hag­fræði.

Innan þess­arar nefndar fer fram rök­ræða um efna­hags­mál, sem síðan leiðir til ákvarð­ana um vexti á hverjum tíma. Starf nefnd­ar­innar er gagn­sætt að því leyti, að fund­ar­gerðir nefnd­ar­innar eru birtar tveimur vikum eftir vaxta­á­kvörðun, en í þeim má þó ekki greina hvernig ein­staka nefnd­ar­menn horfðu á málin á hverjum tíma. Á árs­fundi er hins veg­ar­birt yfir­lit yfir það hvernig nefnd­ar­menn greiddu atkvæði.

Fimm sinnum sammála

Ólíkt var eftir tíma, hvaða nefnd­ar­menn voru að styðja ákvörðun Seðla­banka­stjóra á hverjum tíma. Í fimm til­fellum af átta voru allir nefnd­ar­menn sam­mála um vext­ina, en deildar mein­ingar voru á þremur fundum.

Lög um Seðla­banka Íslands kveða svo á að pen­inga­stefnu­nefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Átta reglu­legir vaxta­á­kvörð- unar­fundir voru haldnir á árinu 2016, að því er fram kemur í árs­skýrslu Seðla­banka Íslands, en nefndin hélt einnig auka­fund 23. des­em­ber til að ræða gjald­eyr­is­mál.

Jafn­framt átti nefndin sam­eig­in­legan fund með kerf­is­á­hættu­nefnd til að ræða efna­hags­þróun, stöðu fjár­mála­kerf­is­ins, flæði á gjald­eyr­is­mark­aði og sam­spil pen­inga­stefnu og fjár­mála­stöð­ug­leika, að því er fram kemur í árs­skýrsl­unni.

Hvernig kusu nefndarmenn?

Vaxta­á­kvarð­anir nefnd­ar­innar voru með eft­ir­far­andi hætti, eins og þær koma fram í árs­skýrslu Seðla­banka Íslands.:

10. febr­úar: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu óbreyttir. Allir nefnd­ar­menn studdu til­lögu seðla­banka­stjóra.

16. mars: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu óbreyttir. Allir nefnd­ar­menn studdu til­lögu seðla­banka­stjóra.

11. maí: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu óbreyttir. Allir nefnd­ar­menn studdu til­lögu seðla­banka­stjóra.

1. júní: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu óbreyttir. Allir nefnd­ar­menn studdu til­lögu seðla­banka­stjóra. Seðla­banka­stjóri lagði einnig til að bindi­skylda yrði lækkuð úr 2,5% í 2% frá og með næsta bindi­skyldu­tíma­bili sem hæf­ist 21. júní. Allir nefnd­ar­menn studdu til­lögu seðla­banka­stjóra.

24. ágúst: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu lækk­aðir um 0,5 pró­sentur. Már Guð­munds­son, Gylfi Zoëga og Katrín Ólafs­dóttir studdu til­lög­una en Arnór Sig­hvats­son og Þórarinn G. Pét­urs­son greiddu atkvæði gegn henni og kusu heldur að vextir yrðu lækk­aðir um 0,25 pró­sentur.

5. októ­ber: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu óbreyttir. Allir nefnd­ar­menn studdu til­lögu seðla­banka­stjóra.

16. nóv­em­ber: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu óbreyttir. Már Guð­munds­son, Þórarinn G. Pét­urs­son og Katrín Ólafs­dóttir studdu til­lög­una en Arnór Sig­hvats­son og Gylfi Zoëga greiddu atkvæði gegn henni og kusu heldur að vextir yrðu lækk­aðir um 0,25 pró­sentur.

14. des­em­ber: Seðla­banka­stjóri lagði til að vextir bank­ans yrðu lækk­aðir um 0,25 pró­sentur. Már Guð­munds­son, Arnór Sig­hvats­son, Gylfi Zoëga og Katrín Ólafs­dóttir studdu til­lög­una en Þórarinn G. Pét­urs­son greiddi atkvæði gegn henni og kaus að vextir yrðu óbreyttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár