Björt framtíð veltur á breyttri karlmennsku

Karlmenn, hvar sem er í heiminum, verða að losa sig við þá tilfinningu að það sé þeirra hlutverk að vernda konur. Þetta segir keníski stjórnenda­ráðgjafinn Pauline Muchina sem bendir á að verndinni fylgi oft kúgun, stjórnun og aðrir drottnunar­tilburðir.

Endurskilgreiningar þörf
End­ur­skil­grein­ingar þörf Pauline Muchina, sem er alin upp í Kenía, segir að í mörgum sam­fé­lögum telj­ist karl­menn ekki til karl­manna, nema þeir séu ofbeld­is­hneigðir og sterkir. Þessar við­teknu hug­myndir um karl­mennsku grafi undan fjöl­skyldum, fyr­ir­tækjum og mögu­leikum þjóða til að sækja fram á við. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný tegund karl­mennsku er forsenda farsællar stjórnunar alþjóðlegra fyrir­tækja eða stofnana og ekki bara þess, heldur er hún grund­völlur þess að heims­byggðin öll eigi bjarta framtíðin fyrir höndum. Þetta er mat keníska ráðgjafans Pauline Muchina, gesta­kennara í MPM-náminu við HR, þar sem hún kenndi á námskeiðinu verkefna­stjórnun á framandi slóð. Pauline færir fyrir því rök að viðteknar karlmennsku­hugmyndir grafi undan fjöl­skyldum, fyrir­tækjum og mögu­leikum þjóða til að sækja fram á við. Eina leiðin til að koma á réttlæti og sjálf­bærri þróun sé að endur­skilgreina karl­mennsku frá grunni.

„Um allan heim hafa karlmenn alist upp í eitraðri karl­mennsku.“

Í fyrir­lestrum Pauline kom hugtakið neikvæð karl­mennska oft til tals. Hvernig skilgreinir hún hana, neikvæða karl­mennsku? „Um allan heim hafa karlmenn alist upp í eitraðri karl­mennsku. Í því felst sú trú að þú þurfir að vera árásar­gjarn til að vera karlmaður. Þú þurfir að vanvirða annað fólk, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár