Ferðamenn eyddu 26 milljörðum á Íslandi í júní

Erlendir ferða­menn hafa aldrei eytt meiri pen­ingum á Íslandi en þeir gerðu í júní síð­ast­liðnum. Alls nam erlend greiðslu­korta­velta í mán­uð­inum tæpum 26 millj­örðum króna, sem er átta millj­örðum krónum meira en hún var í sama mán­uði 2015. Það þýðir að aukn­ingin á milli ára er rúm­lega 40 pró­sent. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar.

Það sem af er ári hafa erlendir ferða­menn greitt um 100 millj­örðum króna með kortum sínum. Mest hefur farið í flug­ferðir, eða um 19 millj­arðar króna, en um 18 millj­arðar króna fóru í gisti­þjón­ustu. Þá hafa þeir eytt 11,6 millj­örðum króna í verslun á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Með­al­velta í krónum talið er eilítið hærri en hún var í júní í fyrra, eða um 139 þús­und á hvern ferða­mann. Mest eyða ferða­menn frá Sviss, eða 245 þús­und krónum að með­al­tali, en Kín­verjar (67 þús­und krónur) og Pól­verjar (28 þús­und krónur) eru með lægstu með­al­velt­una.

Það kemur kannski fæstum á óvart en ferða­menn sem heim­sóttu Ísland hafa aldrei verið fleiri en í nýliðnum júní­mán­uði, þegar 186 þús­und slíkir fóru til og frá land­inu. Það er tæp­lega 36 pró­sent fleiri en komu hingað í júní 2015. Alls komu um 700 þús­und ferða­menn til Íslands á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sem er 183 þús­und fleiri en komu hingað á sama tíma­bili í fyrra og jafn margir og heim­sóttu landið allt árið 2012. Vert er að taka fram að júlí og ágúst eru vana­lega þeir mán­uðir sem flestir ferða­menn heim­sækja Ísland og því má búast við því að enn fleiri slíkir komi hingað til lands á síð­ari hluta árs­ins en gerðu það á fyrstu sex mán­uðum þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár