Mynd: Brynjúlfur Brynjólfsson

Flaug frá Hornafirði til Höfðaborgar

Hefur þú séð rósast­ara? Þennan með bleika gogg­inn og eins og bleika svuntu? En grá­trönu? Suð­aust­ur­land er eins og trekt inn í landið frá Evrópu og þar er hent­ugt að fylgj­ast með fuglum sem hingað flækj­ast sem og hefð­bundn­ari teg­undum.

Tyrkja­dúfa, rósast­ari, hring­dúfa, víxl­nefur, glit­brúsi og grátrana eru meðal þeirra fugla sem flækst hafa hingað til lands í sumar. Á vef Fugla­at­hug­un­ar­stöðvar Suð­aust­ur­lands fuglar.is má nær dag­lega sjá stuttar fréttir um flæk­ing­ana, hvar þeir hafa sést og stundum kyn þeirra.

Þeir eru margir fugla­á­huga­menn­irnir á Íslandi. Til marks um það má nefna fjölda þeirra sem líkar við Facebook-síð­una Íslenskar fugla­teg­undir. Meðlimir hóps­ins eru um 14.600. Þar er deilt myndum af fuglum og aug­ljóst að Ísland er ríkt af góðum ljós­mynd­urum sem hafa þol­in­mæð­ina sem þarf til að mynda fugla.

Brynj­úlfur Brynj­ólfs­son er einn af þeim. Binni, eins og hann er kall­aður, er starfs­maður Fugla­at­hug­un­ar­stöðvar Suð­aust­ur­lands og Nátt­úr­stofu Suð­aust­ur­lands, og fylgist vel með fugla­líf­inu á því svæði. Hann talar fal­lega um þessi dýr sem auðga líf­ríkið á Íslandi og gegna þar mik­il­vægu hlut­verki og þá skiptir engu hvort að fugl­inn sé stór og mik­ill rán­fugl eða lít­ill spör­fugl.

Fugla­at­hug­un­ar­stöðin var stofnuð árið 2005 á afmæl­is­degi Hálfdáns Björns­sonar á Kvískerjum í Öræfum með það að mark­miði að halda á lofti og áfram þeim merku nátt­úru­rann­sóknum sem hann stund­aði allt frá árinu 1940. „Hálfdán var þrettán ára gam­all þegar hann fór að viða að sér upp­lýs­ingum um fugla,“ segir Brynj­úlfur í sam­tali við Kjarnann. „Við á fugla­at­hug­un­ar­stöð­inni erum ekki að gera nákvæm­lega það sama og Hálfdán gerði en erum að byggja ofan á hans gögn með því að telja og merkja fugla.“

Hálfdán var bóndi og alþýðu­vís­inda­maður, fæddur 14. mars árið 1927. Hann rit­aði fjölda vís­inda­greina um plöntur, skor­dýr og fugla­líf. Hann lést 10. febr­úar 2017, tæp­lega níræður að aldri.

Hálfdán og systk­ini hans á Kvískerjum vöktu áhuga margra sem þeim kynnt­ust á íslenskri nátt­úru. Í þeim hópi er Björn Gísli Arnarson, „hinn starfs­maður“ Fugla­at­hug­un­ar­stöðv­ar­innar. Björn ólst upp á Reyni­völlum í Suð­ur­sveit og hlaut hann ríku­legt nátt­úr­upp­eldi hjá nágranna sínum, Hálfdáni á Kvískerjum.

Kríur hafa mikið flugþol og kría sem merkt var hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands fannst síðar í Höfðaborg í Suður-Afríku.
Kríur hafa mikið flug­þol og kría sem merkt var hjá Fugla­at­hug­un­ar­stöð Suð­aust­ur­lands fannst síðar í Höfða­borg í Suður-Afríku.

En hvað er það nú eig­in­lega sem Fugla­at­hug­un­ar­stöðin á Suð­aust­ur­landi gerir?

Um 20. mars ár hvert setur Fugla­at­hug­un­ar­stöðin upp sér­stök fugla­net í Ein­arslundi, trjá­lundi skammt innan við Höfn í Horna­firði. Þar eru gerðar staðl­aðar merk­ingar á þeim fuglum sem koma í netin. Netin eru tekin niður í kringum 10. maí er varp­tím­inn hefst. Netin eru uppi alla daga, að minnsta kosti frá um klukkan sex að morgni og fram yfir hádegi. Og þeirra þarf að vitja á klukku­tíma fresti. Fugl­arnir sem í þau koma eru merktir, mældir og sleppt svo aftur út í frelsið.

Á klukku­tíma fresti, spyr blaða­maður í for­undran.

„Já, við skiptum þessu með okkur, ég og Bjössi. Þar sem við þurfum nú að vinna fyrir okkur þá getur þetta verið tölu­vert púslu­spil en ein­hvern veg­inn tekst okkur að sinna þessu,“ segir Brynj­úlfur.

Netin eru svo aftur sett upp á tíma­bil­inu 1. ágúst til 10. nóv­em­ber – alla daga sem veður leyfir.

Á milli þess að vakta netin og á þeim tíma­bilum sem þau eru ekki uppi eru Brynj­úlfur og Björn að merkja kríur, skúma og ýmsa mófugla þar sem þeir ná til þeirra. Að auki taka þeir að sér ýmis sér­verk­efni. Eitt þess­ara verk­efni er unnið í sam­vinnu við Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands og snýst um að safna skóg­armítlum af fuglum. „Skóg­armít­ill­inn stekkur á fugl­ana á þeirra vetr­ar­stöðvum og fær svo far með þeim hingað til lands á vorin. Þetta ger­ist stuttu áður en þeir leggja af stað og þess vegna eru þessir mítlar ekki stórir þegar þeir koma til Íslands. Svo hoppar hann af fugl­inum og reynir að finna sér ein­hvern annan hýsil þegar hann þarf á því að halda.“

Binni og Bjössi hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands setja upp net og merkja fugla í Einarslundi við Höfn í Hornafirði.
Binni og Bjössi hjá Fugla­at­hug­un­ar­stöð Suð­aust­ur­lands setja upp net og merkja fugla í Ein­arslundi við Höfn í Horna­firði.

En nóg um mítla.

Spurður um hvernig fugl­arnir á Suð­aust­ur­landi hafi það þetta sum­arið segir Brynj­úlfur að varp kríunnar virð­ist ganga vel – þar sem hún yfir höfuð verpi. „Aðal varp kríunnar hér er við Hala í Suð­ur­sveit og þar gengur allt vel. En það er aftur á móti ekk­ert varp að finna lengur við Jök­ulsár­lón þar sem fyrir nokkrum árum var gríð­ar­stórt varp.“

Hann segir að fyrir nokkrum árum hafi þar orpið yfir þús­und kríupör en að nú sé hægt að telja þau á fingrum ann­arrar handar. „Þegar við horfum til mó- og vað­fugla þá finnst mér það hafa minnkað síð­ustu árin hvað maður finnur af þeim. En það er auð­vitað alltaf breyt­ing á milli ára.“

Það sem geti skýrt þá miklu breyt­ingu snýst að sögn Brynj­ólfs lík­leg­ast um fram­boð á æti. „Þetta snýst jú allt um mat.“ Þá geti mann­anna verk einnig haft sitt að segja um afkomu fugla og ann­arra dýra.

Kjóinn dafnar betur en áður

En sumir fuglar virð­ast hafa það býsna gott á Suð­aust­ur­landi þetta sum­arið. „Eitt af því sem mér finnst jákvætt er að kjóa er að fjölga aftur eftir mikla lægð,“ segir Brynj­úlfur, „en á meðan hefur skúmnum hrakað hrika­lega síð­ustu ár og ára­tugi.“

Af spör­fuglum er það að frétta að svo virð­ist sem mar­íu­erlunni ætli að ganga vel í sínu varpi í sumar líkt og í fyrra. Skóg­ar­þröstum og þúfu­titt­lingum hafði fækkað nokkuð en Brynj­úlfur segir það ekki koma í ljós fyrr en í haust hvernig þetta sumar hafi reynst þeim.

Brynjúlfi finnst skemmtilegast að mynda hrossagauka.
Brynj­úlfi finnst skemmti­leg­ast að mynda hrossa­gauka.

En snúum okkur að flæk­ing­unum. Oft vekja þeir mikla athygli, sér­stak­lega ef þeir eru mjög fáséðir og jafn­vel lit­skrúð­ugir. Þessir tveir athygl­is­verðu þættir eiga við um einn vin­sælasta flæk­ing sum­ars­ins: Rós­ar­star­ann.

„Annars hefur verið til­tölu­lega rólegt í sumar í flæk­ing­unum,“ segir Brynj­úlfur en nefnir að í sveit­inni sé nú að finna grá­trönu og þá hafi hring­dúfur sést og séu farnar að verpa hér. Þegar Brynj­úlfur og Björn kom­ast í tæri við flæk­inga merkja þeir þá líka, rétt eins og aðra fugla.

Merk­ingar eru alþjóð­legar og þær eru stund­aðar út um allan heim. Að ýmsu er hægt að kom­ast með merk­ing­unum, t.d. hverjar vetr­ar­stöðvar fugl­anna eru, hvar þeir verpa og hverjar far­leiðir þeirra eru. „Það er jafn­vel hægt að sjá hvað þeir eru lengi á far­flugi,“ bendir Brynj­úlfur á. Þessar upp­lýs­ingar eru gagn­legar að mörgu leyti, til að mynda þegar kemur að far­sóttum á borð við fuglaflensur. „Það er alltaf verið að auka þekk­ing­una.“

Ef ein­hver úti í heimi finnur fugl sem merktur hefur verið af Fugla­at­hug­un­ar­stöð Suð­aust­ur­lands eru upp­lýs­ing­arnar sendar til Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands. „Við höfum fengið end­ur­heimtur allt frá Höfða­borg í Suður-Afríku. Þar fannst kría sem við höfðum merkt. Ein kría frá okkur fannst síðar í Banda­ríkj­unum.“

Einn fugl er Brynj­úlfi sér­stak­lega hug­leik­inn og það er skúm­ur­inn. „Skúm­ur­inn er okkar fugl,“ segir hann og bendir á að Fugla­at­hug­un­ar­stöðin og Nátt­úr­stofa Suð­aust­ur­lands sinni því verk­efni að fylgj­ast með afkomu hans – sem er orðin ansi slök og nú er hann kom­inn á válista. Erfitt sé að full­yrða hvað hafi valdið hruni í stofn­inum en ein kenn­ingin er sú að skúm­ur­inn hafi gert sér sjáv­ar­fang sem áður var hent af fiski­bátum og út í sjó að góðu en að nú sé farið að nýta það miklu betur og það hafi áhrif á skúm­inn.

Ertu á besta staðnum á land­inu til að fylgj­ast með fuglum?

„Þú færð mig nátt­úr­lega ekki til að segja nei,“ segir Brynj­úlfur hlæj­andi og bætir við: „Þar sem við erum nú líka að elt­ast við flæk­ings­fugla þurfum við víst að fara víðar.“

En vissu­lega er Suð­aust­ur­landið sér­stakt þegar kemur að fugla­lífi. „Þetta svæði er eins og trekt inn á landið frá Evrópu en svo dreifast fugl­arnir héðan. Að vera hér að skoða far­fugla og flæk­ings­fugla er mjög áhuga­vert en hér er minna að finna af varp­fuglum heldur en víða ann­ars staðar á land­inu. Það er ekki langt frá fjöru og til jök­uls, þannig að svæðið sem slíkt hentar vel til athug­unar á fuglum.“

Bjúgnefjur á flugi. Fuglinn er í miklu uppáhaldi hjá Binna.
Bjúgnefjur á flugi. Fuglinn er í miklu upp­á­haldi hjá Binna.

En á Brynj­úlfur upp­á­halds­fugl?

Hann hugsar sig um í stutta stund áður en hann svarar. Finnst spurn­ingin erfið. „Bjúgnefja er minn fugl enda hef ég fundið níu af þeim tíu sem sést hafa á land­inu,” svarar hann loks. „Mér finnst nú einna skemmti­leg­ast að taka myndir af hrossa­gaukum. Svo er alltaf gaman að finna fugla sem ekki hafa sést áður hér á landi eða eru sjald­gæfir, svo ég tali nú ekki um að finna nýja teg­und fyrir Evrópu.” En það hafa þeir félagar Binni og Bjössi báðir gert.

Ef þú vilt fylgj­ast betur með starfi Binna og Bjössa hjá Fugla­at­hug­un­ar­stöð Suð­aust­ur­lands getur þú fylgst með starfi þeirra á Facebook og á vefnum Fuglar.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár