Landsbankinn leiðréttir lán vegna mistaka Hagstofu

Kostn­aður Lands­bank­ans vegna mis­taka í útreikn­ingi Hag­stof­unnar á vísi­tölu neyslu­verðs hleypur á tugum millj­óna. Bankinn ætlar að leið­rétta lán um þús­und við­skipta­vina.

Um þúsund viðskiptavinir Landsbankans geta átt von á leiðréttingu á höfuðstóli lána sinna vegna mistaka í útreikningi neysluvísitölu.
Um þús­und við­skipta­vinir Lands­bank­ans geta átt von á leið­rétt­ingu á höf­uð­stóli lána sinna vegna mis­taka í útreikn­ingi neyslu­vísi­tölu. Mynd: Anton Brink

Lands­bank­inn ætlar að leið­rétta lán um þús­und við­skipta­vina sinna vegna mann­legra mis­taka í útreikn­ingi neyslu­vísi­tölu Hagstofu Íslands. Frá þessu greinir bank­inn í frétta­til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum í dag. Kostn­aður bank­ans vegna þessa nemur „nokkrum tugum millj­óna króna“.

Hag­stofan greindi frá því á fimmtu­dag að reiknuð húsa­leiga hefði verið van­metin við útreikn­ing vísi­tölu neyslu­verðs, sem mælir verð­bólgu. Þessi mis­tök hafa nú verið leið­rétt með þeim afleið­ingum að vísi­talan hækk­aði um tæp 0.5 pró­sent á milli mán­aða og langt umfram allar opin­berar verð­bólgu­spár. Þetta þýðir líka að 12 mán­aða verð­bólga hefur verið veru­lega van­metin und­an­farið hálft ár. Árs­verð­bólga, sem var 0,9 pró­sent í ágúst, mælist því 1,8 pró­sent í sept­em­ber.

Mis­tök Hag­stof­unnar hafa víð­tæk áhrif. Þeir sem tekið hafa ný verð­tryggð hús­næð­is­lán á því tíma­bili sem þau ná yfir munu til að mynda þurfa að greiða upp­safn­aðar verð­bætur af lánum sín­um. Þeir sem tóku lán í sept­em­ber­mán­uði munu auk sjá þau hækka hins vegar skarpar en ann­ars hefði orð­ið. Þeir sem ætla sér að taka verð­tryggð hús­næð­is­lán þessa dag­anna ættu að bíða fram í nóv­em­ber hið minnsta svo þeir þurfi ekki að greiða upp­safn­aðar verð­bætur tíma­bils sem þeir voru ekki með lán, vegna mis­taka Hag­stof­unn­ar. Þá mun húsa­leiga þeirra sem er bundin við þróun vísi­tölu neyslu­verðs hækka um kom­andi mán­að­a­mót.

Lands­bank­inn hefur ákveðið að koma til móts við við­skipta­vini sína og bera fjár­hags­legan kostnað vegna þess­ara mis­taka. „Þeir við­skipta­vinir Lands­bank­ans sem yrðu fyrir tjóni vegna þess­ara mis­taka þurfa ekki að hafa áhyggjur af hækkun á lánum sínum,“ segir meðal ann­ars í til­kynn­ingu frá bank­anum. Á næstu vikum verður mis­mun­ur­inn reikn­aður út og end­ur­greiddur inn á höf­uð­stól lán­anna sem um ræðir. Fyrirséð er að ein­hvern tíma mun taka að fram­kvæma leið­rétt­ing­una en við­skipta­vinir munu fá til­kynn­ingu um inn­borg­un­ina þegar að henni kemur.

Í til­kynn­ing­unni frá bank­anum segir enn fremur: „Þrátt fyrir að Hag­stofan telji þessi mis­tök smá­vægi­leg þá er ljóst að þau munu valda tjóni hjá þeim sem tóku verð­tryggð neyt­enda­lán hjá Lands­bank­anum á því tíma­bili sem reikn­ings­skekkjan var til staðar. Mikill meiri­hluti þeirra eru fyrstu kaup­endur sem tóku sitt fyrsta íbúða­lán hjá bank­anum á þessu tíma­bili.“

„Um 1.000 við­skipta­vinir Lands­bank­ans tóku verð­tryggð neyt­enda­lán á tíma­bil­inu sem um ræðir, einkum verð­tryggð íbúða­lán. Vanmat á vísi­tölu neyslu­verðs, sem nú á að leið­rétta aftur í tím­ann, mun leiða það af sér að eft­ir­stöðvar verð­tryggðra lána sem tekin voru á tíma­bil­inu hækka vegna vísi­tölu­breyt­inga sem áttu sér stað fyrir lán­töku.“

Hjá Arion banka er verið að meta stöð­una og áhrifin af þessum mis­tökum hag­stof­unnar og hvernig er rétt að bregð­ast við því. Hjá Íslands­banka er ekki búið að taka end­an­lega ákvörðun um hvaða leiðir á að fara í þessum efnum. Búist er við að ákvörðun muni liggja fyrir á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár