Guðni fyrsti þjóðhöfðinginn til að ávarpa Hinsegin daga

Guðni ásamt Elizu Ried, Felix Bergsyni, Baldri Þórhallssyni, Örnu Dögg Einarsdóttur og Degi B. Eggertssyni.
Guðni ásamt Elizu Ried, Felix Bergsyni, Baldri Þór­halls­syni, Örnu Dögg Ein­ars­dóttur og Degi B. Egg­erts­syni. Mynd: Forseti.is

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, varð fyrsti þjóð­höfð­ing­inn í heim­inum til að ávarpa Gleði­göng­una eða sam­bæri­legar hátíðir í dag. Guðni flutti ræðu við Arnarhól á áfanga­stað Gleði­göng­unnar.

Í ræðu sinni sagð­ist Guðni ekki ætla að verða siða­post­uli né bylt­inga­sinni á for­seta­stóli og sagði að það væri ekk­ert stór­mál að hann flytti ræðu við þetta tæki­færi, jafn­vel þó mikið hafi verið látið með það. „Í raun hafa allir [hér] sama mál­stað til að verja, sama til­efni til að gleðj­ast. Frelsi og fram­farir, sam­staða, umburð­ar­lyndi og mann­rétt­indi. Þessi leið­ar­ljós eiga að skína skært í sam­fé­lagi fólks. Við fögnum hér frelsi. Ást­frelsi,“ sagði Guðni.

Á vefnum Gay Iceland.is er það full­yrt að Guðni hafi ekki aðeins orðið fyrsti íslenski for­set­inn til að ávarpa Gleði­göngu heldur fyrsti þjóð­höfð­ing­inn í heim­inum til að ávarpa opin­ber­lega sam­bæri­legar hátíðir í öllum heim­inum. Guðni seg­ist í sam­tali við Gay Iceland hafa fylgst með Hinsegin dögum í mörg ár og séð Gleði­göng­una með fjöl­skyldu sinni. „Þetta er alltaf jafn gaman,“ segir Guðni í sam­tal­inu sem fram fór á ensku.

Í ræð­unni sagði Guðni einnig að þetta frelsi sem fagnað var í dag væri mik­ils virði. Hann þekkti það af eigin raun úr æsku hversu dýr­mætt og ein­stakt það væri að hafa frelsi til þess að hafa ekki áhyggjur af því hvað aðrir halda um mann, eða hvað aðrir halda um mann. Hann sagði sam­fé­lagið hafa farið í rétta átt og spurði hvort við værum kannski komin á áfanga­stað. „En þess­ari frels­is­bar­áttu lýkur í raun aldrei,“ svar­aði Guðni sjálfur.

„Ég vil sér­stak­lega hvetja alla til að taka á for­dómum sem enn þarf að glíma við í heimi íþrótt­anna. Á Íslandi hefur lesbía orðið for­sæt­is­ráð­herra. Vonandi fáum við bráðum homma í eitt­hvað okkar ágætu karla­lands­liða,“ sagði Guðni og end­aði svo ræð­una á því að benda á að kannski væru bara allir „hinsegin“ því „þegar vel er að gáð þá er eng­inn eins og fólk er flest.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár